Vikan - 10.08.1989, Qupperneq 50
SNYRTinG
Jcvfnvel veikustu neglur geta oriið langar
Brynhildur Þorsteinsdóttir snyrti-
fræðingur gaf lesendum góð ráð
varðandi handsnyrtingu og
naglalökkun í 9. tbl. Vikunnar og
að þessu sinni segir hún frá því hvernig
hægt er að byggja upp jafnvel veikustu
neglur, þannig að þær geti orðið langar og
fallegar.
Nöglin er í lögum og á milli þeirra er
bæði raki og fita, þannig að þegar nöglin
mýkist eða þornar af einhverjum orsökum
þá hættir lögunum við að losna hvert frá
öðru og neglurnar klofna. Neglur sumra
hafa ríkari tilhneigingu til þess arna en
annarra og konur sem hafa þannig neglur
gefast vanalega upp á að safna nöglum. En
ýmislegt er til á markaðnum sem getur
komið nöglunum til hjálpar; styrkt þær
þannig að þær geti orðið langar án þess að
klofna. Brynhildur vinnur með REVLON
vörur þannig að hún kynnir hér það sem
til er í því merki nöglunum til bjargar.
Langar neglur verða ekkl til á einum
degi! Það tekur jafnvel sterkustu neglur
nokkrar vikur að ná einhverri lengd.
I fýrsta lagi nærir naglabandakremið,
sem getið var í fyrri greininni, naglabönd-
in og hefur um leið góð áhrif á neglurnar.
Kremið er notað á hverjum degi, jafht á
lakkaðar sem ólakkaðar neglur.
Uppbyggingarkúrar
fyrir neglurnar
Síðan eru til sérstök efni til að bera á
neglurnar. Þau hafa þá eiginleika að
styrkja veikar neglur, næra naglaböndin og
hina óuppkomnu nögl. Active Grow frá
Revlon er eitt slíkra efna og með reglu-
legri notkun þess má byggja upp veikar
neglur. Dropateljari er á umbúðum Active
Grow og er 1 dropi af efninu settur á hvert
naglaband — á hverju kvöldi — og því
nuddað vel inn. í fyrsta sinn sem efnið er
notað þá verður nöglin að vera alveg hrein
og án alls lakks eða annarra efna. Síðan er
óhætt að lakka neglurnar.
Árangur fer vanalega að sjást eftir þrjár
vikur, en til að byggja nöglina vel upp þá
eru tveir mánuðir lágmarkstími. Þessi
meðferð, sé hún framkvæmd samvisku-
samlega, gefur mjög góðan árangur sem
endist í 6 mánuði eða lengur. Meðferðin
er síðan endurtekin eftir þörfum.
Nýjasti naglauppbyggingarkúrinn ffá
Revlon er hlaup sem kallast Nail Builder
Gel og inniheldur það kalsíum. Þetta efhi á
að virka svo vel að munur finnst á nöglinni
strax eftir fyrstu notkun. Þegar hlaup-
blandan einstaka er borin á nöglina þá
myndar hún sterka húð á nöglinni, sem
eykur á þykkt naglarinnar um leið og hún
ver hana og nærir. Líkja má áferðinni á
þessari húð við skjöld fyrir nöglina, svo
sterk á hún að vera og hún er fallega gljá-
andi þannig að nöglin virkar lökkuð. Auk
þess að nota það eitt sér, þá má einnig
nota hvort tveggja sem undirlakk eða yfir-
lakk - og það tekur aðeins örskamma
stund að þorna. Brynhildur sagðist þekkja
til konu sem hefði verið búin að prófa allt
mögulegt fyrir neglurnar, án árangurs.
Hún hefði verið búin að sætta sig við að
Þegar naglauppbyggingarefni eru borin
á nöglina þá mynda þau um hana eins
konar skjöld sem ver hana og nærir,
þannig að jafnvel veikustu neglur eiga að
geta orðið langar.
hún gæti ekki haft langar neglur, en ákvað
þó að prófa einu sinni enn þegar Nail
Builder Gel kom á markaðinn. Hlaupið
virtist innihalda þau efni sem hennar negl-
ur þurftu á að halda því nú er hún með
langar fínar neglur.
Og naglalakkið endist
þá og endist
Að lokum vildi Brynhildur segja frá
naglalakksþynninum frá Revlon, Solvent.
Hver kannast ekki við það að eftir jafhvel
mjög skamman tíma er nýja naglalakkið
orðið svo þykkt og óþjált að ómögulegt er
að nota það lengur, þannig að það endar
jafhvel í ruslafötunni þó glasið sé hálffullt.
En með því að nota aðeins örfáa dropa af
þynninum út í lakk sem farið er að þykkna
þá verður það eins og nýtt — og það má
setja þynni út í aftur og aftur — þannig að
hægt er að nota lakkið upp til agna. Bryn-
hildur sagði að konur hefðu kvartað yfir
því að þeim fýndist þynnirinn nokkuð dýr,
en þær gleymdu því að hvert glas dugir í
fjölmörg naglalakksglös þannig að líta
má á eitt glas af naglalakksþynni sem fjár-
festingu til nokkurra ára.
Poppkornsæði
Vr insældir poppkorns virðast ætla að
haldast um aldur og ævi. Eftir að ör-
bylgjupoppkornið kom á markaðinn virð-
ist það meira að segja enn vinsælla en
nokkru sinni - enda afbragðs gott úr ofn-
inum. Poppkorn er ríkt af trefjaefnum og
kolvetnum en margir aðdáendur þess eru
í þeim hópi fólks sem alltaf er að hugsa um
línurnar og margir hafa því spurt hvort
poppkorn sé fitandi. Eflaust ef borðað er
allt of mikið af því en af upplýsingunum
hér má ráða hversu mikið óhætt sé að
borða.
Tegund Hita- einingar Fita (1 bolli) (grömm)
Án bragðefna, poppað án fitu 23 minna en 1
Poppað ífitu 41 2
Örbylgjupopp, saltað 35-70 2-4
Sykurhúðað 134 1
FRÓÐLEIKUR
48 VIKAN 16.TBL1989