Vikan - 10.08.1989, Side 55
MÆFILEIKAPROF
Gœtir þú
rekið
þitt eigið
fyrirtœki?
Frh. af bls. 49
SVÖR ■■■■■
l.d) 2.b) og c) 3b) og d)
4.a) 5.b) og d) 6.a) og d)
7.b) 8.d) 9.d)
1-6
Líklega lætur þér ennþá best
að vinna í félagi við aðra frekar
en að hefja sjálfstæðan at-
vinnurekstur. Ekki eru allir vel
til þess fallnir að vera með
sjálfstæðan rekstur og hæfileik-
ar þínir gætu legið annars
staðar. En ef þú ert harðákveð-
in í að leggja í hann ein þá
veistu núna þínar veiku hliðar
og getur farið að bæta úr þeim.
7-10
Þú hefiir það til að bera
sem þarf við sjálfstæðan
rekstur. En þú þarft að bæta úr
almennri viðskiptaþekkingu
þinni. Lestu þér eins mikið til
og hægt er og vertu óhrædd
við að notfæra þér reynslu
annarra, spyrjast fyrir hjá þeim
og leita ráða.
11-13
Gott hjá þér. Þú hefúr hæfi-
leika á sviði viðskipta og þekk-
ingu á fjármálum. Þú ert tilbú-
in að hrinda hugmyndum þín-
um í ffamkvæmd. Gangi þér
vel.
HÆTTURNAR
Yfirleitt fara tvö af hverjum
þremur smáfyrirtækjum á
hausinn og eitt af hverjum
þremur gefst upp á fyrstu 30
mánuðunum. En 40% smáfyrir-
tækja lifa fyrstu 10 árin af og
almenna velgengnin fer vax-
andi. Einnig er meira um ráð-
gjöf til smáfyrirtækja en áður
var.
Hvers vegna ganga þá
ekki flest fyrirtæki? Hér er
Ilsti yflr hættusvaeðin sem
öll má rekja til lélegrar
stjómunar.
1. Of lítil fjármögnun. — Van-
metin útgjöld.
2. Of stórt lán. — Of miklir pen-
ingar fengnir að láni í hlutfalli
við eigið fjárframlag.
3. Of lágt verð. — Vegna sam-
keppni.
4. Vandamál með félaga. —
Vantar skriflegan samning og
síðan verður félögum sundur-
orða, sérstaklega ef félaginn er
vinkona/vinur eða ættingi.
5. Léleg fjármálastjórn. — Of
mikil eyðsla, gleymist að hafa
auga með bókhaldinu.
6. Ofpöntun. — Of margar
pantanir á stuttum tíma sem
leiðir til þess að ekki er hægt
að fjármagna þær.
7. Lítil sala. — Vantar markaðs-
setningu.
8. Einhæfar vörur.
9. Mjólkun á fyrirtækinu. — Of
miklir peningar teknir úr fyrir-
tækinu til persónulegra þarfa.
10. Skortur á áætlanagerð.
Hvernig geturðu þá tryggt
að fyrirtæki þitt byrji vel? í
fyrsta lagi þarftu að spyrja
sjálfa þig hvers vegna þú vilt
hefja rekstur og hvers þú
væntir af honum. Ef þú vilt
bara auka við tómstundagam-
an þitt skaltu gleyma því. Mað-
ur verður að hafa góða heilsu,
vera einbeittur, vera ffekur,
geta unnið langan vinnudag og
taka ekki mark á orðinu „nei“.
SPURÐU SJÁLFA ÞIG
Fjölskylduhagir þínir eru
jafnmikilvægir og ástæður þín-
ar og hæfileikar. Færðu stuðn-
ing ffá þeim sem standa þér
næst? Það verður vonlaus bar-
átta ef þú getur ekki fengið þá
á þitt band. Hugmynd þín að
fyrirtæki krefst góðrar
könnunar til þess að ganga úr
skugga um að hún sé fram-
kvæmanleg. Eru nægilega
margir tilbúnir til þess að
kaupa handsmíðuðu stofu-
borðin þín eða ryðffíu rörin
eða áklæðishreinsunarþjón-
ustu þína í nægilega langan
tíma til þess að þú getir mætt
kostnaði og fengið hagnað?
Hvar eru viðskiptavinir þínir?
Hverjir eru samkeppnisaðilar
þínir? Hvað getur þú boðið
viðskiptavinum þínum sem
aðrir geta ekki boðið upp á?
Hvað sem þú gerir — láttu
ekki fjárhagsáhyggjurnar verða
öllu öðru yfirsterkari. Ef hug-
mynd þín er gróðavænleg og
vel út hugsuð muntu um síðir
finna fjármagnið sem þú
þarfhast. Það mikilvægasta er
að þú njótir ffamtaks þíns. Það
á að vera gaman að hefja rekst-
ur á fyrirtæki sem nýtir hæfi-
leika þína til fulls.
VELGENGNI
í Norwich í Englandi býr
kona að nafrii Tricia Smith.
Hún var ffáskilin og átti 16 ára
dóttur þegar hún opnaði kven-
fataverslun sem sérhæfir sig í
fötum fyrir stórar konur. Eftir
að hún fékk hugmyndina gerði
hún rekstraráætlun til eins árs
með aðstoð bókar sem hún
rakst á: „The Greatest Little
Business Book“. Tricia segir:
„Þar sem ég vissi ekki hve mik-
ið ég skyldi kaupa eða hve
miklu ég ætti að eyða í það bjó
ég mér til einhverja upphæð
sem færi í lager og gerði áætl-
un um hve mikið ég gæti búist
við að selja á degi hverjum. Þá
gat ég nokkurn veginn reiknað
út tilvonandi gróða og sá hvað
ég hefði efhi á að borga í leigu
á verslunarhúsnæðinu."
Með þessa útreikninga í far-
teskinu fór hún til bankastjóra,
sem neitaði henni fýrst í stað
um lán. En effir miklar fortölur
og með því að taka annað veð
af húsinu sínu tókst henni að
sannfæra hann.
Svo safnaði Tricia eins miklu
af ókeypis upplýsingum og
ráðum og hún gat og þegar
hún hafði einhverjar spurning-
ar lagði hún þær fýrir kunn-
ingja sem voru í rekstri og við-
skiptum og höfðu reynslu. Eft-
ir að hún hafði fundið verslun-
arhúsnæði við hæfi og hafði
náð sambandi við fram-
leiðendur fór hún í eins manns
auglýsingaherferð. Hún notaði
dagblöðin, dreifirit, setti risa-
stórt auglýsingaskilti á bílþak-
ið hjá sér og bauð öllum við-
skiptavinum ókeypis léttvíns-
glas fyrstu vikuna sem verslun-
in var opin. Hún eyddi sem
svarar 360.000 krónum í aug-
lýsingar fyrsta árið en nú
leggur hún alltaf 4% af árlegri
fjárhagsáætlun í auglýsingar og
leggur áherslu á mikilvægi
þeirra.
Öll þessi vinna borgaði sig. f
versluninni, Conway’s Beauti-
ful Fashions in Larger Sizes,
seldist meira en hún hafði bú-
ist við og veltan á fyrsta árinu
var 3-780.000 krónur. Hún
hefúr nú opnað aðra verslun í
Ipswich, sem fyrrverandi við-
skiptavinur hennar rekur fyrir
hana, og er með á prjónunum
að opna fimm aðrar verslanir.
Hún ráðleggur fólki að setja
sér markmið. Allt annað kem-
ur ef það er gert. Hún varar
einnig við því að engar frí-
stundir muni gefast fýrsta árið.
Nokkrar bækur, sem gætu
orðið konum til aðstoðar við
að hefja rekstur á smáfyrirtæki,
eru: The Woman’s Guide to
Starting Your Own Business
eftir Deborah Fowler, sem gef-
in er út af Grapevine, Thors-
ons Publishing Group. Tlie
Greatest Little Business Book
eftir Peter Hingston, gefin út af
Hingston. The Small Business
Guide eftir Colin Barrow, gef-
ið út af BBC Publications.
Fyrirtækið mitt, útgefandi Fé-
lag íslenskra iðnrekenda, dreif-
ing Almenna bókaforlagið.
52 VIKAN 16. TBL1989
5ITTMVAÐ
Milcíl ferdalög bíða
Ungfrú Hollywood
A
þessu ári eru liðin tíu ár síðan tíma-
ritið Samúel og Hollywood tóku
höndum saman og völdu Ungfrú
Hollywood og buðu henni síðan
til kvikmyndaborgarinnar frægu í Banda-
______ C\/'11rnn irJA hliifttí»rl'i
Samúels. Nú hefur samstarf skemmtistað-
arins við Samúel verið endurvakið og leit
hafin að níu stúlkum á meðal gesta staðar-
ins til að taka þátt í keppninni sem standa
mun fram í janúar.
Stúlkurnar verða að öllum líkindum
ljósmyndaðar á sólarströndu í næsta mán-
uði og síðan kynntar þrjár og þrjár saman
á síðum Samúels og einnig á sérstökum
samkomum í Hollywood. Krýningarkvöld-
ið verður svo á Hótel íslandi í lok janúar
þar sem búast má við miklum fjölda áhorf-
enda eins og á fýrri krýningarkvöldum
keppninnar.
Vegleg verðlaun falla Ungfrú Holly-
wood í skaut. Nefhilega lúxusferð vestur
um haf til Hollywood rétt eins og fyrsta
stjarna skemmtistaðarins fór í á sínum
Þessi mynd var tekin af þeim Önnu Mar-
gréti Jónsdóttur og Ólafi Laufdal þegar
Anna Margrét hafði verið krýnd Ungfrú
Hollywood 1984. Þau sitja nú saman í
dómnefhd þeirri er velja skal Ungfrú
Hollywood 1990.
tíma. En auk þess mun hún fara í þriggja
vikna ferð til Japan þar sem hún verður
fulltrúi íslands í keppninni um titilinn
Miss Wonderland 1990, en stúlkur úr Feg-
urðarsamkeppni íslands hafa áður verið
fulltrúar landsins í þeirri keppni.
Framkvæmdastjórar keppninnar eru
tveir, þau Pétur Steinn Guðmundsson að-
stoðarframkvæmdastjóri SAM-útgáfúnnar
og Gróa Ásgeirsdóttir móttökustjóri á
Hótel Borg. Gróa er einnig framkvæmda-
stjóri Fegurðarsamkeppni íslands.
{ dómnefndinni situr að sjálfsögðu
fyrsta stúlkan sem hlaut titilinn Ungffú
Hollywood, Auður Elísabet Guðmunds-
dóttir, en auk hennar mun sitja í dóm-
nefnd önnur stúlka sem borið hefúr þann
sama titil, Anna Margrét Jónsdóttir. Síðar
átti hún eftir að bæta á sig tveimur titlum
til viðbótar; Fegurðardrottning Reykjavík-
ur og Fegurðardrottning íslands. Auk þess
komst hún svo í þriðja sæti keppninnar
um titilinn Miss World. Aðrir í dómnefnd
eru Ólafur Laufdal, eigandi Hollywood,
Þórarinn Jón Magnússon ritstjóri og Magn-
ús Hjörleifsson, Ijósmyndari.
Ráðgerðar eru fjölbreytilegar nýjungar í
tengslum við keppnina og ekki nokkur vafi
að hún mun draga að sér sömu athygli og
hér áður þegar þessir sömu aðilar stóðu
saman að vali Ungfrú Hollywood. □
Fyrsta stúlkan sem kjörin var Ungfrú
Hollywood, Auður Elisabet Guðmunds-
dóttir, í Hollywood Bandaríkjanna. Sú er
kjörin verður nú, áratug síðar, mun feta
t fótspor Auðar auk þess sem hún fer til
Japan. Auður Elisabet á sæti í dómnefnd-
inni núna. UÓSM.: ÓLAFUR HAUKSSON
Karlakórinn líka!
Hvert vígi karlmanna fellur á fætur
öðru. Kvenmaður er meira að segja
farinn að stjórna Karlakór Reykjavíkur.
Og nú velta margir því fyrir sér hvort
kvenfólk eigi eftir að fá jafúréttisráð til að
beita sér fýrir því að önnur eða þriðja hver
rödd í kórnum komi úr kvenmannsbarka...
„Það sem enginn sér"
Við seljum það ekki dýrara en við
keyptum það, en sagt er að til greina
hafi komið að gefa út á einni af safnplötum
sumarsins framlag íslendinga í Eurovision
með endurbættum texta. Nú skyldi lagið
heita: „Það sem enginn sér — og enginn vill
heyra..."
Sniðug sölubrella
Mikil og stöðug sala Skodabifreiða
hér á landi er talin felast í stórsnjallri
sölubrellu Jöfúrs. Nefnilega að hafa haft
Halla (bróður Ladda) í söludeild þessarar
tegundar smábíla.
Halli er svo lágvaxinn að Skodinn, sem
hann er að sýna viðskiptavininum, virðist
hin mesta „drossía".
BLAÐAVIÐTALIÐ
LEIDDI TIL ÚT-
GÁFU JÓLABÓKAR
Lesendur Vikunnar minnast vafalaust
viðtals sem birtist í blaðinu í fýrravor,
þar sem Regína á Ströndum talaði tæpi-
tungulaust úr pokahorninu. Viðtalið tók
Jón Kr. Gunnarsson.
Regína kom víða við í viðtalinu enda er
hún þekkt fyrir að hafa skoðanir á öllum
hlutum og skýra skorinort frá sínum við-
horfum. Þegar blaðamaður Vikunnar loks
stóð upp eftir langt og gott spjall við Reg-
ínu var honum orðið ljóst að eitt viðtal
nægði ekki til að gera þessari kjarnorku-
konu full skil. Til þess þyrfti heila bók.
f stuttu máli sagt; það varð að samkomu-
lagi þeirra á milli að ráðist yrði í bókarút-
gáfu. Handritið fór fyrir nokkru í prent-
smiðju og bókin verður á næsta jólabóka-
markaði. Er ekki að efa að hún á eftir að
seljast drjúgt.
16 TBL 1989 VIKAN 53
PÁLL KJARTANSSON