Vikan - 19.12.1940, Síða 24
22
VTKAN, nr. 51, 1940
Fréttamyndir.
Tennisdrottning og kóngur. Donald McNeill frá Oklahoma og Aiice
Marble frá Californíu óska hvort öðru til hamingju með sigurinn i
einmenningskeppni á tennis-landsmóti í Forest Hills í New York.
Gekk sér til heilsubótar. Fyrir tveimur árum varð John F. Stahl,
sem þá var 57 ára, að hætta störfum á pósthúsinu í San Francisco
vegna veikinda. Hann fór til Canal Zone sér til heilsubótar. En
dvölin þar varð honum til lítils gagns. Hann ákvað því að fara
gangandi heim til San Francisco, sem eru 4.500 km. Eins og myndin
til hægri sýnir, hefir hann hlotið heilsuna aftur á þeirri göngu.
Heiðraður fyrir flugafrek. George
E. Price, flugmaður í Los Angel-
es i Californíu hefir verðið sæmd-
ur heiðursmerki flugmanna fyrir
að lenda bilaðri hernaðarflugvél,
án þess að nokkurn sakaði.
Til herþjónustu. Nýliðar úr 71. herdeild Bandaríkjahers sjást hér á
myndinni, þar sem þeir koma frá því að hafa fataskipti áður en
herþjónustustarf þeirra hefst.
Fegurðardrottning Ameríku. Frú
Raymond Planchet, frá New Dorp,
var kjörin fegurðardrottning
Ameríku 1940, úr hópi þrjátíu
keppenda víðsvegar úr Bandaríkj-
unum, sem allar voru giftar. —
Samkeppnin fór fram i New York.
Gladys Swarthout, óperusöngkona
við Metropolitanóperuna i New
York sést hér á myndinni með
verðlaunabikar, sem hún hlaut í
Hollywood,- fyrir metaðsókn að
úti-óperunni þar, þegar hún söng
aðalhlutverkið i ,,Carmen“ síðast-
liðið sumar. — Áheyrendur voru
24.019.
Þriggja marka ungbarn. Þessi tólf þumlunga reglustika sýnir lengd
Virginíu litlu Burgess, sem er tveggja og hálfs mánaöar gömul.
Hún vó þrjár merkur, þegar hún fæddist. Líkumar fyrir því, að
hún lifði voru taldar ein á móti þúsund. Nú er hún rúmlega sex
merkur og virðist dafna prýðilega.