Vikan - 19.12.1940, Side 33
VIKAN, nr. 51, 1940
31
Öldungur sýnir
*
1,,Bjarnaborg“ við Hverfisgötu eru marg-
ar vistarverur og þar býr fjöldi fólks,
— flest olnbogabörn og fátæklingar,
sem almenningur er ekki að gera sér far
um að vita nein deili á. En í einni þessari
vistarveru, uppi á háalofti, býr öldungur
einn, sem vakið hefir á sér allmikla at-
hygli þessa dagana. Hann heitir Guðmund-
ur Kristinsson og var fyrrum bóndi, ætt-
aður úr Skagafirði, en fluttist til Reykja-
víkur árið 1907 og hefir dvalið hér síðan
og lengst af átt heima í Bjarnaborg. Hann
er rösklega sjötugur að aldri, og kemur
nú allflestum á óvart, með því að sýna
fjölda útskorinna gripa, og marga þeirra
snilldarlega gerða. Sýning þessi hefir ver-
ið í Safnahúsinu uppi og var opin rúm-
lega vikutíma. Hafði komið þangað margt
manna, og til marks um það, hve vel sýn-
ingargestum hefir litist á gripi þessa odd-
haga öldungs er það, að þegar sýningunni
var lokað, sunnudaginn 8. des, — en þá
hafði hún verið opin 16 klukkustundir
samtals, — var gamli maðurinn búinn að
selja þá alla, að undanskilinni einni ofur-
lítilli skoppara-kringlu. Enda lék gamli
maðurinn á als oddi og snerist eins og
snarkringla, svo að ekkert varð við hann
talað á þeim stað, þegar tíðindamaður
,,Vikunnar“ kom þangað og ætlaði að hafa
tal af honum. Og ekki var að því hlaupið,
að finna hann í Bjarnaborg, því að í stig-
unum upp á loftið þar, hefir sá sem þetta
ritar verið einna hræddastur um líf sitt.
Guðmundur er mesti hagleiksmaður og
hugvitsmaður líka. Enginn efi á því, að
þar hefir verið efni í mikinn lista.mann, ef
kringumstæðurnar hefðu verið eitthvað
öðruvísi. Tréskurð lagði hann ekki fyrir
sig fyrr en hann var orðinn fullorðinn, og
ekki eingöngu, fyrr en hann var orðinn
um fimmtugt. Þá fótbrotnaði hann svo illa,
að hann varð að hætta atvinnu, sem hann
100 listaverk
hafði áður stundað, — að vefa. Og þá mun
honum hafa þótt það koma sér vel, að
hann hafði einu sinni fengið ofurlitla til-
sögn í tréskurði hjá Stefáni heitnum Ei-
ríkssyni.
En Guðmundur hefir verið iðinn og all
afkastamikill um dagana. Árin sem hann
fékst við vefnað, mun hann hafa bókfært,
hvað hann óf mikið, og lætur nærri, að
dregill sá myndi ná frá pósthúsinu í
Reykjavík og upp undir Rauðavatn, ef
bútarnir væru festir saman og lagðir á
veginn. Er þetta mikil vinna, því að í
hverjum metra eru um 2400 skil.
Þó að lítið hafi farið fyrir Guðmundi,
þá hefir hann selt ákaflega margt smíðis-
gripa á ári hverju, síðan hann fór að fást
við þá list, og líklega fæstir vitað eftir
hvern gripirnir voru, sem þeir keyptu, því
að þeir voru seldir hér og þar, — einkum
þó á Thorvaldsensbazarnum. En elztu
gripirnir á sýningunni voru aðeins 10 ára
gamlir.
List Guðmundar er al-íslenzk, að vonum.
Hann hefir haft til fyrirmyndar ýmsa
þjóðlega muni og áhöld og gert eftir þeim
listaverk: taðkláfa, meisa, torfhrip, stokka,
klömbruhnausa, barkróka, klifbera og
hrossabresti. Fjöldan allan hefir hann
skorið af allskonar hirzlum, smáum og
stórum, svo sem öskum og ýmiskonar
kössum og kistum. Gripirnir, sem vekja
einna mesta athygli á sýningunni, munu
vera Högnakylfan og Sóleyjan. Er kylfan
einkar haglega gerð, skorin í íslenzkt birki,
lögðu surtarbrandi, og kylfuhausinn hin
mesta völundarsmíð, útbúin sem gesta-
þraut. Sóleyjan er allstór gripur og mun
eiga að vera kortaskál, en í fætinum eru
fimm askar.
Flestir eru gripirnir skornir í tré, en
margt var þarna einnig muna úr málmi og
hvalbeini, og ennfremur voru þar munir úr
hraunsteini, hörpudiskum og kufungum.
Það mun hafa verið fyrir áeggjan Matt-
híasar Þórðarsonar fornminjavarðar, að
Guðmundur réðist í að hafa þessa sýningu,
því að í slíkt hefir hann ekki ráðist áður.
Þó voru gripir eftir hann og ofnir dúkar
Sóleyjan, einn af eftirtektarverðustu
gripunum á sýningunni.
á iðnsýningunni 1921 og fékk hann þá
verðlaun fyrir hvorttveggja.
Þetta var ákaflega fróðleg sýning og að
mörgu leiti merkileg, — og fyrst og fremst
ramíslenzk.
Rúðugler
einfalt og tvöfalt, einnig 4, 5 og ó m/m
er venjulega fyrirliggjandi.
Útvegum ennfremur
allar tegundir af slípuðu, hömruðu og möttu gleri, einnig gangstétta- og veggjagler.
Svörum öllum fyrirspurnum um hæl.
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.