Vikan - 19.12.1940, Blaðsíða 35
VIKAN, nr. 51, 1940
33
Véfréttin.
Mörjí ung og upprcnnandi stúlka þráir að i'á að vita það er hér segir:
Hver muni verða maðurinn hennar; hvernig hann muni biðja hennar;
hvemig hann muni verða útlítandi; hvort hann mmii verða auðugur eða
snauður; góður eða vondur; hvort hann muni clska hana mikið eða lítið;
hvernig brúðkaupið muni verða, og hvar hún muni búa.
Sem betur fer, höfum vér fengið áreiðanlega véfrétt i þessum efnum.
Hana höfum vér fengið sem arf frá forfeðrum vorum, eða formæðrum öllu
heldur, er höfðu sjálfar gengið úr skugga um, hve skýrt og skorinort hún
tjáði slík tíðindi, — ef hún þá aftók ekki með öliu, að um nokkra giftingu
væri að ræða. — Þessi ómissandi véfrétt er spilaspálistin.
Vilji einhver stúlka vita alla þessa hluti, er nú vom nefndir, verður hún
að leggja spilin sjö sinnum.
Hver verður maðurinn þinn?
f>ú skalt taka aila gosana fjóra úr
spilunum, og laufaásinn. Spil þessi
leggur þú svo upp í loft á borðið.
Gosarnir tákna þá menn, er stúlkan
sú, sem spáð er fyrir, getur valið í
milli. Einn þeirra, það er að segja sá,
er stúlkan hefir mestar mætur á, þarf
ekki að vera nafngreindur. En hina
skal nefna sínum réttu heitum. Ef
stúlkan á einhverjar vinkonur, sem
viðstaddar eru, ætti þeim ekki að
verða skotaskuld úr því að skira gos-
ana. En laufaásinn táknar piparmey.
Þessu næst er stúlkan látin draga
eitthvert spil úr stokknum. Skulum
við þá gera ráð fyrir, að hún dragi
hjartaþristinn. Þá er og „sort“ henn-
ar hjartasortin og táknar hjarta-
drottningin hana sjálfa. Spádómslist-
in byrjar nú með því, að tekið er
hvert spilið á eftir öðru, og þeim
rennt undir þessi spil, er liggja á
borðinu; er byrjað að leggja undir
það spil, er liggur til vinstri handar
og svo í röð undir hin fjögur. Og
þegar búið er að leggja alla röðina,
er byrjað að nýju, unz hjartadrottn-
ingin kemur. Ber að taka eftir því,
undir hvaða stokk hún kemur, því
hér getur að lesa hið fyrsta svar vé-
fréttarinnar.
Fyrsta hjartaspilið, er liggur næst
fyrir ofan hjartadrottninguna, tákn-
ar það, að mannsefnið heilsar stúlk-
unni, og verður maður að snúa því
þannig (sjá 1.). Þegar svo þetta sama
hjartasjpil kemur næst, þegar spilin
eru lögð fyrir ofan hjartadrottning-
una, þá merkir það, að mannsefnið
talar við hana, og er þá spilinu snú-
ið þannig (sjá 2.). Og þegar það
kemur þriðja sinn, þá merkir það, að
maðurinn sækist eftir hcnni. Og er
því þá snúið þannig (sjá 3). Og þegar
það svo kemur í fjórða skipti, þá
merkir það bónorðið.
Þegar hjartadrottningin er komin
í ljós, eru öll spilin tekin og stokkuð,
að undanskildum þessum fimm, sem
lögð voru fyrst á borðið, þ. e. gos-
unum og laufásnum. Og það getur
vel atvikast svo, að allir þessir fjórir
menn geri bæði að heilsa stúlkunni,
tala við hana, sækjast eftir henni og
biðja hennar, því slíkt ber stundum
við í lífinu. En þegar fyrsta bónorð-
ið er komið, verðum við að leggja
það sérstaklega á minnið og athuga
hverju hún svarar. En svar hennar
kemur í næsta þætti.
Ef hjartadrottningin fellur undir
laufaásstokkinn, þá merkir það, að
stúlkan verður ólofuð, þegar hún er
orðin tvítug. Komi hún undir sama
stokk annað sinn, merkir það, að hún
verður ólofuð, þegar hún hefir fimm
um tvítugt. Og fari eins þriðja skipt-
ið, þá merkir það, að ástarguðinn
hefir ekki enn komið fram á sjónar-
sviðið, þótt undarlegt megi heita. Og
fari þannig hið f jórða sinn, — því svo
örg geta forlögin orðið, — þá er auð-
sætt, að stúlkan á fyrir sér að enda
aldur sinn sem piparmey. Og þegar
búið er að leggja spilin þannig fjór-
um sinnum, er ekki til neins að spá
frekar fyrir vesalings stúlkunni. Þá
er útséð um, að hún muni ekki gift-
ast.
Eins og gefur að skilja, getur vé-
fréttin alveg eins sagt fyrir um gift-
ingu karlmanna. Og þær breytingar,
sem verður að gera á spádómsaðferð-
inni, getur hver meðalgreindur mað-
ur gert sjálfur. Það er og ef til vill
rétt að geta þess hér, að margur
ungur karlmaður hefir mikinn hug á
því að vita, hver muni verða konan
hans og hvemig bónorðið muni tak-
ast o. s. frv.
Fær hann „já“ eða „nei“?
Nú hefir maðurinn komið og beðið
hennar. En þá er eftir að vita, hvemig
hún tekur honum. Spilin eru stokkuð
vel og vandlega. Síðan er þeim flett
upp hverju á eftir öðm, og segir
maður þá við hvert spil ,,já“ eða ,,nei“
á víxl, þannig ,,já“ við fyrsta spil
og ,,nei“ við annað og ,,já“ við þriðja
o. s. frv. Og þegar svo hjartadrottn-
ingin kemur, fer svarið, er biðillinn
fær alveg eftir því, hvort ,,já“ eða
,,nei“ fellur á hana. Ef það er ,,já“,
er þegar byrjað á þriðja þætti. En
sé það „nei“, þá er sá biðillinn, er
hefir fengið hryggbrotið, tekinn burt
af borðinu. Er þá byrjað aftur að
nýju á fyrsta þætti, unz biðill er kom-
inn, ef piparmærin hefir þá ekki
hramsað stúlkuna.
Hvernig mun hann verða útlítandi?
Til þess að fá að vita þetta, er ekki
annar vandinn en að leggja spilin
sem hér er sýnt. Verður að gæta þess,
að hafa þau öll á grúfu.
Til þess nú að vita, hvað þessi spá-
dómur leiðir í ljós, snýr maður spil-
□
h.->
I----------------------------
/V.f
unum við. Byrjar á efsta spilinu. Ef
það er svart, þá merkir það, að mað-
urinn sé svarthærður, en ef það er
rautt, þýðir það, að hann sé ijóshærð-
ur. En ef ennis spilið er svart, þá er
nokkum veginn víst, að maðurinn er
fremur skyni skroppinn, en sé það
rautt, er hann gáfaður. Ef bæði
augna spilin eru svört, þá þýðir það,
að hann er dökkeygður, en ef þau
eru bæði rauð, er hann bláeygður. En
sé annað þeirra svart en hitt rautt,
þá er ekki því að leyna, að maðurinn
er rangeygður. Ef munn spilið er
rautt, er hann maður fríður sýnum,
en sé það svart, er hann ekki fríður
og fremur leiðinlegur. Ef handleggja
spilin eru bæði rauð, em handleggir
hans fagrir, en ljótir og luralegir, ef
spilin eru bæði svört. En sé annað
svart og hitt rautt, eru handleggir
hans skakkir eða snúnir og hið sama
er að segja um fætur hans. Ef hjarta
spilið er rautt, er hann valmenni, en
sé það svart, er hann líklegur til að
verða harðstjóri. Ef peninga spilið er
rautt, er maðurinn auðugur, en sé
það svart, er hann blásnauður. Allt
þetta er að vísu gott að vita, en þó
vil ég minna ungfrúna á það, að hún
hefir nú sagt „já“, og hér verður þvi
vart um þokað.
Mun hann unna henni mikið?
Til þess að ganga úr skugga um
þetta, þarf ekki annað en taka spil
unnustans (gosann sem táknar hann)
og stinga því inn í stokkinn. Þar
næst á að stokka spilin. Að því búnu
er spilunum flett upp hverju á eftir
öðm og þulin þessi góðkunna spá-
þula, hvað eftir annað: „Elskar hann
mig af öllu hjarta, yfir máta, ofur
heitt, harla lítið og ekki neitt." —
Það svar, er fellur á gosann, sýnir til-
finningar mannsins.
Hvar mun hann biðja hennar?
Hvar mun hann biðja hennar? Ger-
ir hann það á dansleik, eða á
skemmtigöngu, eða innan fjögra
veggja heimilisins eða ef til vill skrif-
ar hann henni reglulegt bónorðsbréf ?
Fyrir þetta má komast með því, að
hafa sömu aðferð og í síðasta þætti,
nema hvað maður hefir aðra þulu,
og er hún á þessa leið: Dansleik,
bréfi, úti, inni. Og er hann þá látinn
sjálfur gefa hið rétta svar. Því komi
gosinn þegar sagt er t. d. „bréfi“, er
auðsætt að hann muni skrifa henni
bónorðsbréf.
Hvernig fer brúðlsaupið fram?
Þá má geta nærri, að ungfrúin vill
fegin fá að vita, hvernig hún ferðast
Framhald á bls. 36.