Vikan - 10.01.1991, Blaðsíða 2
10. JANÚAR 1991
1. TBL. 53. ÁRG.
VERÐ KR. 295
Vikan kostar í áskrift kr. 224
eintakið ef greitt er með gíró
en kr. 191 ef greitt er með VISA.
Áskriftargjaldið er innheimt fjórum
sinnum á ári, sex blöð í senn.
Athygli skal vakin á þvi að greiða
má áskriftina með EURO eða VISA
og er það raunar æskilegasti
greiðslumátinn.
Aðrir fá senda gíróseðla.
VIKAN kemur út aðra hverja viku.
Tekið er á móti áskriftarbeiðnum í
síma 91-83122.
Útgefandi: Sam-útgáfan.
Framkvæmdastjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Ritstjóri og ábm.:
Þórarinn Jón Magnússon
Auglýsingastjóri:
Helga Benediktsdóttir
Höfundar efnis í þessu tölublaði:
Valgerður Jónsdóttir
Guðný Þ. Magnúsdóttir
Þorgeir Ástvaldsson
Guðmundur Sigurfreyr Jónasson
Þorsteinn Eggertsson
Atli Hraunfjörð
Stefán Sæmundsson
Arnþór Hreinsson
Gunnar H. Ársælsson
John Coleman
Guðjón Baldvinsson
Þorgerður Traustadóttir
Ágústa Johnson
Jóna Rúna Kvaran
Súsanna H. Jónsdóttir
Gisli Ólafsson
Myndir ( þessu tölublaði:
Magnús Hjörleifsson
Kristján Logason
Sigurður Stefán Jónsson
Lísa Björk Davíðsdóttir
Þorsteinn Eggertsson
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Binni, ÞJM og m.fl.
Útlitsteikning:
Þórarinn Jón Magnússon
Setning og umbrot:
Sam-setning
Filmuvinna, prentun, bókband:
Oddi hf.
Forsíðumyndina tók
Magnús Hjörleifsson
Módel: Guðrún Eyjólfsdóttir
Förðun: Kristín Stefánsdóttir
með No Name snyrtivörum.
4 CAFÉ ÓPERA
kynnir nú nýjung sem staður-
inn vill kalla Sælkerasveiflu.
Vikan kynnti sér hvernig sú
sveifla gengur fyrir sig.
ÞORGERÐUR
O TRAUSTADÓTTIR
skrifar um undrun sem Björn á
Botni vakti þegar hann mætti á
sínum tíma skitugulur á þorra-
blót...
. STJÖRNU-
0 SPEKINGURINN
Gunnlaugur Guðmundsson
rekur sögu sína í Vikuviðtali
og svarar spurningum eins og
t.d. um fordóma í garð stjörnu-
spekinnar og fer nokkrum orð-
um um það sem stjörnuspekin
segir honum að vænta megi af
nýja árinu.
n HJÚKRUNAR-
I U FORSTJÓRI
Sunnuhlíðar í Kópavogi hefur
unnið mikið og gptt starf í
þágu þroskaheftra. í viðtali við
Vikuna lýsir hún þeim óhugn-
anlegu viðhorfum sem ríktu al-
mennt í garð þroskaheftra þar
til á allra síðustu árum, en sjálf
kynntist hún þeim harkalega af
eigin raun þar eð hún á tvö
þroskaheft börn.
1 4 VÖLVAN
lýkur I þessu tölublaði Vikunn-
ar að segja fyrir um atburði
ársins 1991 og nú skoðar hún
heimsmálin, en í síðasta tölu-
blaði fjallaði hún um atburði
innanlands. Það er ekki aðeins
hér á landi sem völvuspádóm-
anna er beðið með eftirvænt-
inu. Strax á nýársdag höfðu al-
þjóðlegar fréttastofur dreift
þeim vítt og breitt um Evrópu
með leyfi Vikunnar og þeim
verið gerð skil I dagblöðum,
útvarpi og sjónvarpi. Áhuginn
er eðlilegur þegar haft er í
huga hversu sannspá völvan
hefur reynst í veigamestu
atriðum á undanförnum árum.
Næqir bar að minna á spá
hennar um fall Berllnarmúrsins
og átökin við Persaflóa.
1 8 YOKO ONO
hefur gengið hart fram í að
eigna sér allt sem gert er í
nafni og minningu Johns heit-
ins Lennon. Svo rösklega
gengur hún til þeirra verka að
mönnum er farið að þykja nóg
um...
HEILDRÆN
Z U HEILSUFRÆÐI
er það sem útskýrt hefur verið
sem samverkandi heild huga,
líkama, tilfinninga og andlegra
þátta. Vikan birtir fróðlega
samantekt um þessi fræði i
þessu tölublaði.
O/I QUEEN
z4 OF EUROPE
var valin á Taiwan fyrir nokkru.
SAM-útgáfan sendi þangað
fulltrúa íslands, Lísu Björk
Davíðsdóttur, sem hafnaði í
þriðja sæti Hollywood-keppn-
innar 1990. Lísa Björk segir
frá keppninni í Vikuviðtali.
n_ LEIKMANNS-
Z/ ÞANKAR
Atla Hraunfjörð fjalla að þessu
sinni um framlíf og vitnar hann
þar sem fyrr í kenningar dr.
Helga Pjeturss.
ROCKY HORROR
ZO PICTURE SHOW
ein vinsælasta rokkópera allra
tíma, er að komast á svið Iðn-
ós fyrir tilstilli menntaskóla-
nema Hamrahlíðarskólans. Er
hér um að ræða eina viða-
mestu nemendasýningu sem
sett hefur verið upp hér á
landi.
01 UPPINN
O I ÁAKUREYRI
er ein stærsta krá landsins.
Vikan leit þar inn til að kynnast
því hvernig ölið fer í Norðlend-
inga.
MISTÖK í
KVIKMYNDUM
geta verið ótrúleg en samt far-
ið framhjá áhorfendum. Vikan
rifjar upp nokkur spaugileg
mistök úr þekktum kvikmynd-
um.
35 UTMYNDASÖGUR
36 PIXIES
náði heimsfrægð á aðeins fjór-
um árum. Vikan rifjar upp feril
hljómsveitarinnar.
38 RYÐ
kvikmynd sem gerð er eftir
leikritinu Bílaverkstæði Badda,
er svo fagmannlega unnin að
unun er á að líta eins og fram
kemur í kvikmyndaumsögn Vik-
unnar.
or. AFTURGÖNGUR
OV FASTAGESTIR
er heiti smellinnar smásögu í
þessari Viku.
40 LÉTT KROSSGÁTA
An. FALLEGIR
4Z FÓTLEGGIR
eru markmiðið með æfingum
þeim sem Ágústa Johnson
kennir lesendum í þessu tölu-
blaði og því næsta.
. JÓNA RÚNA
44 KVARAN MIÐILL
svarar bréfi frá móður sem
segist hafa fundið óþægilega
til nærveru framliðinna...
.. UNGBARNA-
46 PEYSA
og húfa fyrir 0 til 3ja mánaða
er það sem er á prjónunum hjá
okkur í hannyrðaþætti þessar-
ar Viku.
48 KROSSGÁTA
2 VIKAN l.TBL. 1991