Vikan - 10.01.1991, Page 4
LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
NU ER ÞA
S/íLKERA-
SVEIFLAN
Elin Hirzt, fréttamaður á Stöð 2, Ingimunaur Sigfusson, forstjóri
Heklu, prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Friðrik
Friðriksson, framkvæmdastjóri hjá Skrifstofuvéium hf.
Páll Stefánsson Ijósmyndari fylgist með Sigmari B. Haukssyni
leggja eitthvað fróðlegt til málanna um matseldina ...
... og gestirnir settu upp svuntur og kokkanúfur áður en máltíð
hófst.
Gunnlaugur Helgason á útvarpi FM og íris Erlingsdóttir, ritstjóri
Gestgjafans.
Café Ópera heitir veit-
ingastaöur viö Laekj-
argötu. Þeir aðiiar
sem hafa rekið staðinn hafa
leitast við að aðlaga hann
þörfum og væntingum þess
litríka viðskiptamannahóps
sem hann hefur sótt, með því
að koma sífellt á óvart með
óvenjulegum nýjungum. Enda
jafngildir stöðnun dauðadómi í
rekstri sem þessum. Með
þetta að leiðarljósi hefur nú
enn á ný verið ákveðið að laga
staðinn að breyttum forsend-
um skemmtanalífsins.
Pað nýjasta á matseðli Café
Óperu er nokkuð sem kallað
hefur verið Sælkerasveifla.
Það sem hér er á ferðinni er að
gesturinn eldar sjálfur, annað-
hvort fyrir sjálfan sig eða
sessunaut sinn, á þar til gerð-
um litlum pönnum.
í Café Romance er innan-
gengt úr Café Óperu en hugs-
unin á bak við það er fyrst og
fremst aukin þjónusta við gesti
staðarins. Það er eðlilegt fram-
hald af máltíð á Café Óperu
að láta matinn sjatna í þægi-
legu umhverfi yfir góðum veig-
um á Café Romance.
Meotylgjandi myndir eru frá
kvöldstund sem góður hópur
sælkera átti á staðnum fyrir
skömmu - og gæddi sér að
sjálfsögðu á gómsætum rétt-
um tilreiddum með sælkera-
sveiflu...
4 VIKAN l.TBL.1991