Vikan - 01.10.1992, Síða 13
ráðandi í huga sér og hafa
alltaf á tilfinningunni að maður
geti engu breytt.“
- Eftir að þú hefur séð
þessa mynd á hvíta tjaldinu í
öllu sínu veldi, hvar finnst þér
hún vera í röðum þeirra ís-
lensku mynda sem þú hefur
séð?
„Til þess að gera þetta af-
skaplega einfalt þá finnst mér
hún vera ein af okkar
ákaflega fáu stórmyndum á
okkar íslenska mælikvarða.
Það sem kom mér mest á
óvart, eftir að ég sá hana á
frumsýningunni - og það má
kannski koma fram að ég
hafði ekkert séð af henni
áður, var hversu vel hafði tek-
ist að gera þetta allt saman
stórt og hversu mikil stórmynd
þetta er. Þá er ég að tala um
skipið, landslagið, hvernig
það kom út, hvernig þau náðu
hafinu og öllu því. Ég hélt að
þessi mynd væri smærri í
sniðum - þangað til á frum-
sýningardaginn."
MAÐUR ÞOLDI
SIG EKKI
- Hvernig var að sitja þarna
og bíða eftir að sjá sjálfan
sig?
„Maður er kominn yfir þá til-
finningu að vera kvíðinn. Hún
var verst fyrstu tíu árin og síð-
an fer maður að sjóast og
verður ekki eins brjálaður.
Þetta var voðalega vont fyrst.“
- Hvernig þá?
„Maður er bara svo asna-
legur þarna á tjaldinu þar sem
andlitið á manni er flennt út í
sex sjö metra að breidd. Mað-
ur hreinlega þolirsig ekki, Svo
fer manni að verða alveg
sama - ekki það að maður
hafi batnað neitt heldur deyfist
maður fyrir þessu," segir Helgi
og hlær dátt.
„Mér finnst tónlistin í mynd-
inni alveg gríðarlega góð og
mér finnst hún ásamt kvik-
myndatökunni undirstrika
rækilega að þetta er ein af
þeim stórmyndum sem við
höfum gert. Tónlistin fær
mann til að njóta þess sem
hefur verið gert. Dæmi um
það er hvernig hún lyftir undir
sjávarsenurnar og svo áfram
og áfram.
Það sem hafði einnig mikil
áhrif á mig á þarna við frum-
sýninguna var til dæmis
hversu ánægður ég var með
frammistöðu Frakkanna. Nú
vissi ég lítið um leikferil þeirra
en var mjög ánægður með
þeirra senur og hefði jafnvel
kosið að sjá meira af þeim.
Ég get bara nefnt sem dæmi
senu sem mjög auðvelt hefði
verið að gera klúðurslega.
A í hlutverki
afans f „Svo
á jöröu sem á
hirnni".
HLÁTUR
ENGIN SÁLUHJÁLP
- Nú hefur þú góðan saman-
burð á milli kvikmyndaleiks og
leiks í leikhúsi. í hvernig hlut-
föllum myndir þú vilja hafa
þessa vinnu ef þú mættir
ráða?
„Það er ágætt að blanda
þessu. Ég get ekki tekið undir
með ýmsum samstarfsmönn-
um mínum sem finna sig ekki
í túlkun sinni nema þeir séu
uppi á sviði fyrir framan áhorf-
endur og finni einhverja
strauma á milli. Ég hef hins
vegar alltaf haft miklu meira
gaman af æfingum þannig að
ég nýt þess ekki endilega að
vera með fullt hús af fólki og
hef reyndar ekkert mjög gam-
an af því. Það hefur því fallið
mér mjög vel í geð að leika í
kvikmyndum. Mér finnst líka
mjög gaman að fást við þessa
tækni. Maður verður að leika
sinn hlut og ögunin er allt
önnur. Til dæmis er nauðsyn-
legt að vita hvort maður er í
mjög víðri mynd eða þröngri.
Sé maður í þröngri veit maður
að ekki má hreyfa sig meira
en sentímetra því það þýðir
mikla hreyfingu á tjaldinu. Ef
maður er hins vegar í víðri
mynd getur maður hreyft sig
mikið við að koma hlutverki
sínu frá sér fyrir myndavélina.
Þetta er meðal annars ögrun
sem mér finnst skemmtileg."
- Gefur þetta þér meira en
sviðsleikurinn?
„Ég get eiginlega ekki neit-
að því.“
- Finnst þér ekkert slæmt
hversu sundurleitur leikurinn
er - að leika allt stykkið í
pörtum og jafnvel ekki í tíma-
röð?
„Þetta krefst þess að
leikarinn pæli sjálfur í hlutun-
um, standi klár á því hvar
hann er staddur í sögunni og
hafi mótað sér skoðun um
þróun hlutverksins og mynd-
arinnar. Maður er miklu meira
upp á sjálfan sig kominn í bíó-
mynd við að passa upp á
þetta allt saman en á sviði.
Þar er stykkið
æft sex tíma á
dag í tvo mán-
uði í náinni
samvinnu við
I e i kstj ó ra .
Hann er alltaf
fyrir framan
mann og þetta
þróast hægt og
rólega, nánast
í heilu lagi og
alltaf í réttri
tímaröð. í kvik-
myndinni er
alls ekki óal-
gengt að byrja
á hápunkti sínum eða jafnvel
aftast og svo sé stungið niður
fæti víðsvegar í myndinni eftir
því sem aðstæður krefjast.
Það útheimtir að maður verð-
ur að vera með það alveg á
hreinu hvað maður er að
gera.“
- Nú hefur þú mikið verið í
skapgerðarhlutverkum. Lang-
ar þig aldrei til að söðla um og
vera i hlutverkum með léttara
yfirbragði?
„Þetta hefur nú verið svolít-
ið í bland í gegnum tfðina en
ég kann ágætlega við þetta.
Það er ekkert sáluhjálparatriði
fyrir mig að salurinn hlæi. Ég
dey ekkert þótt hann hlæi
ekki, jafnvel þó að setning eigi
að vera fyndin."
- Hvað er á döfinni hjá þér
núna?
„Það er frumsýning fram
undan í Þjóðleikhúsinu, á leik-
ritinu Hafinu eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Maður fær oft á tíðum
einnig símhringingar utan úr
heimi og send handrit til yfir-
lestrar en það eru allt lang-
tíma markmið. Eitt amerískt
handrit og eitt spánskt eru á
borðinu hjá mér og bfða síns
tíma. Að framleiða kvikmynd
er óskaplega langt ferli. Menn
eru að fara á milli kvikmynda-
félaga og fjármögnunarfyrir-
tækja, þeir eru að raða saman
leikurum og alls konar póstum
þannig að þetta tekur óra-
tíma.“
► „Hún gerir
hann síöan
aö nokkurs
konar
seiðkarli á
miööldum."
Það er þegar hinn mikli vís-
indamaður, dr. Jean Babtiste
Charcot, er að klæða dúkk-
una sína og ungi strákurinn
kemur inn. Þetta er alveg ein-
staklega falleg sena og það er
frábært þar sem svo stutt er í
að hún hefði orðið hallæris-
leg.“ _
- Áttirðu erfitt með að skilja
þínar persónur?
„Nei, það fannst mér ekki.
Þeir buðu ekki upp á neinar
sálfræðilegar djúpkannanir.
Mér fannst þeir liggja báðir
tveir nokkuð Ijósir fyrir."
- Hverjir voru erfiðustu kafl-
arnir í leiknum?
„Ég vil taka það fram að
þetta voru ekki mjög erfið
hlutverk að leika. Fyrsti dag-
urinn var samt nokkuð erfiður
þar sem í kvikmyndum er lítið
æft áður en farið er f tökur og
ég byrjaði á nokkuð átakamik-
illi senu þar sem karlinn á
fjórtándu öld ræðst á fólk sem
stendur í kringum smiðjuna.
Þetta er sterkasta senan mfn í
allri myndinni og ég var í raun
lítið farinn að melta persón-
una þannig að mér fannst
svolftið glæfralegt að byrja á
henni án nokkurrar aðlögun-
ar.“
- Hvernig fannst þér að
vinna með leikkonunni ungu,
henni Álfrúnu?
„Við hittumst að vísu ekki
oft en hún stóð sig eins og
hetja og kemur gríðarlega vel
út.“
ÁST, ÖRLÖG, DULUÐ, DAUÐI