Vikan - 01.10.1992, Blaðsíða 73
RÚNNSTYKKI - Brauð eral-
mennt fitusnautt.
RÆKJUR - Mikiö prótein en lítið
salt.
SAFI ÚR ÁVÖXTUM - Mikið af
kalíum, nauðsynlegu steinefni, en
margar hitaeiningar úr sykri.
SMAKÖKUR - Lítið af vítamín-
um, mikið af sykri og fitu.
SMJÖR - Mikil fita en hitaein-
ingar ekki fleiri en í smjörlíki til
steikingar.
SNAKK - Án næringarefna.
SPERGILKÁL - Mikið af A- og
C-vítamínum.
SÚKKULAÐI - HREINT - Fita
og sykurtil helminga.
SÚKKULAÐI - FYLLT - Með
meiri fitu en hreint súkkulaði.
SVEPPIR - 90 % vatn, mikið af
trefjum.
SVESKJUR - Aðallega kolvetni
en einnig töluvert af trefjum.
TÓMATUR - Fitulaust álegg.
TÓMATSÓSA / SINNEP
- Sykur, fita og salt.
TÚNFISKUR- Með A- og
D-vítamín.
UNDANRENNA - Fitusnauð
en með jafnmikið kalk og
nýmjólk.
VÍNARBRAUÐ - Mikið af sykri
og fitu.
VINBER - Mest kolvetni (ávaxta-
sykur).
ÞORSKUR - Fitusnauður og
próteinauðugur.
*
MEGRUNAR-PÓSTURINN
Á næstunni verður hér í Vikunni fastur þáttur sem við köllum
Megrunar-póst. Umsjón með þættinum hefur María Ásgeirsdóttir
lyfjafræðingur og Guðrún Þóra Hjaltadóttir næringarfræðingur.
Þeir sem vilja fá ráðleggingar viðvíkjandi megrun og
offituvandamálum er bent að senda bréf til Vikunnar og skulu
umslögin merkt „M-póstur".
Reykingar og þyngd
Kæri póstur.
Fyrir nokkru hætti ég að reykja en ég hafði yfirleitt reykt um 20 sígarettur á dag. Frá því að ég
hætti hef ég þyngst um 2 kíló. Þó hef ég passað mig mjög vel hvað mataræði snertir því ég hafði
heyrt að fólk borðaði meira og þyngdist við að hætta að reykja. Ég finn ekki til meiri svengdar en
þrátt fyrir það eykst þyngdin. Ég hef miklar áhyggjur því ég ætla mér ekki að verða feit. Hver er
skýringin á þessu?
Elín.
Kæra Elín.
Tóbaksreykingar auka brennslu líkamans og hún minnkar um u.þ.b. 10% þegar maöur hættir
skyndilega að reykja eins margar sígarettur og þú gerðir. Segjum að þú brennir u.þ.b. 2100 kkal á
dag. Það þýðir að þú verður að minnka neyslu þína um 210 kkal frá því sem þú ert vön til þess að
halda þyngd þinni. Annars þyngistu. 210 kkal samsvara 30 g af fituvef og það gerir 900 g á
mánuði. Reykingafólk verður því að borða minna þegar það hættir að reykja. Ég er þó alls ekki að
hvetja þig til að byrja aftur; afleiðingar reykinga eru mun alvarlegri en afleiðingar offitu.
Fituhnúðar á mjöðmum
Kæri póstur.
Ég er með fituhnúða á mjöðmunum en þó ekki þyngri en ég á að vera samkvæmt töflunni. Mér
finnst þetta hræðilega Ijótt. Hyrfi þetta ef ég færi í megrun?
Dísa.
Dísa mín.
Því miður er næstum ómögulegt að „svelta burtu“ svona fitu án þess að þú verðir horuð og allt
of létt. Þetta hverfur heldur ekki við nudd. Ef um stóra hnúða er að ræða fjarlægja lýtalæknar þá
með fitusogi en það er dýrt og eingöngu gert þegar konur eru undir sálrænu álagi vegna lýtisins.
Kallað á hjálp
Kæri póstur.
Ekki henda bréfinu í körfuna því þetta er neyðarkall. Og ég skal segja þér að það er erfitt fyrir
okkur fitubollurnar að biðja um hjálp. Samkvæmt goðsögninni eigum við að vera „feitar, ánægðar
og hjálfúsar stúlkur". Ánægðar! Við getum sko ekki „leyft“ okkur annað. Hjálpfúsar! Við „þorum“
ekki að segja „nei“ því við viljum að öllum líki við okkur. Við erum alltaf reiðubúnar að rétta öðrum
hjálparhönd ef með þarf, hlusta á vandamál annarra og hugga þá sem þurfa öxl til að gráta við.
Þetta er ekkert líf og erfitt að geta aldrei látið tilfinningar sínar í Ijós. Ég er 45 ára ,160 sm á hæð
og 89 kíló. Ég er gift og hjónaband mitt er í svo sem í lagi en tilfinningahitinn af skornum skammti.
Ég elska manninn minn en þori ekki að láta tilfinningar mínar í Ijós af ótta við að hann vísi mér á
bug. Maðurinn minn þolir ekki vaxtarlag mitt og þess vegna er ekki um neitt kynlíf að ræða. Með
kærri kveðju.
J.J.
Kæra vinkona.
Þakka þér fyrirþetta opinskáa bréf. Þessa líðan þekkjum við flest sem höfum glímt við þetta
vandamál. Það versta sem getur gerst núna er að þú missir móðinn. Sýndu nú hvað í þér býr og
byrjaðu að nota Nupo-létt. Ég veit að það kemur þér að gagni.
NupoMétt