Vikan


Vikan - 01.10.1992, Side 73

Vikan - 01.10.1992, Side 73
RÚNNSTYKKI - Brauð eral- mennt fitusnautt. RÆKJUR - Mikiö prótein en lítið salt. SAFI ÚR ÁVÖXTUM - Mikið af kalíum, nauðsynlegu steinefni, en margar hitaeiningar úr sykri. SMAKÖKUR - Lítið af vítamín- um, mikið af sykri og fitu. SMJÖR - Mikil fita en hitaein- ingar ekki fleiri en í smjörlíki til steikingar. SNAKK - Án næringarefna. SPERGILKÁL - Mikið af A- og C-vítamínum. SÚKKULAÐI - HREINT - Fita og sykurtil helminga. SÚKKULAÐI - FYLLT - Með meiri fitu en hreint súkkulaði. SVEPPIR - 90 % vatn, mikið af trefjum. SVESKJUR - Aðallega kolvetni en einnig töluvert af trefjum. TÓMATUR - Fitulaust álegg. TÓMATSÓSA / SINNEP - Sykur, fita og salt. TÚNFISKUR- Með A- og D-vítamín. UNDANRENNA - Fitusnauð en með jafnmikið kalk og nýmjólk. VÍNARBRAUÐ - Mikið af sykri og fitu. VINBER - Mest kolvetni (ávaxta- sykur). ÞORSKUR - Fitusnauður og próteinauðugur. * MEGRUNAR-PÓSTURINN Á næstunni verður hér í Vikunni fastur þáttur sem við köllum Megrunar-póst. Umsjón með þættinum hefur María Ásgeirsdóttir lyfjafræðingur og Guðrún Þóra Hjaltadóttir næringarfræðingur. Þeir sem vilja fá ráðleggingar viðvíkjandi megrun og offituvandamálum er bent að senda bréf til Vikunnar og skulu umslögin merkt „M-póstur". Reykingar og þyngd Kæri póstur. Fyrir nokkru hætti ég að reykja en ég hafði yfirleitt reykt um 20 sígarettur á dag. Frá því að ég hætti hef ég þyngst um 2 kíló. Þó hef ég passað mig mjög vel hvað mataræði snertir því ég hafði heyrt að fólk borðaði meira og þyngdist við að hætta að reykja. Ég finn ekki til meiri svengdar en þrátt fyrir það eykst þyngdin. Ég hef miklar áhyggjur því ég ætla mér ekki að verða feit. Hver er skýringin á þessu? Elín. Kæra Elín. Tóbaksreykingar auka brennslu líkamans og hún minnkar um u.þ.b. 10% þegar maöur hættir skyndilega að reykja eins margar sígarettur og þú gerðir. Segjum að þú brennir u.þ.b. 2100 kkal á dag. Það þýðir að þú verður að minnka neyslu þína um 210 kkal frá því sem þú ert vön til þess að halda þyngd þinni. Annars þyngistu. 210 kkal samsvara 30 g af fituvef og það gerir 900 g á mánuði. Reykingafólk verður því að borða minna þegar það hættir að reykja. Ég er þó alls ekki að hvetja þig til að byrja aftur; afleiðingar reykinga eru mun alvarlegri en afleiðingar offitu. Fituhnúðar á mjöðmum Kæri póstur. Ég er með fituhnúða á mjöðmunum en þó ekki þyngri en ég á að vera samkvæmt töflunni. Mér finnst þetta hræðilega Ijótt. Hyrfi þetta ef ég færi í megrun? Dísa. Dísa mín. Því miður er næstum ómögulegt að „svelta burtu“ svona fitu án þess að þú verðir horuð og allt of létt. Þetta hverfur heldur ekki við nudd. Ef um stóra hnúða er að ræða fjarlægja lýtalæknar þá með fitusogi en það er dýrt og eingöngu gert þegar konur eru undir sálrænu álagi vegna lýtisins. Kallað á hjálp Kæri póstur. Ekki henda bréfinu í körfuna því þetta er neyðarkall. Og ég skal segja þér að það er erfitt fyrir okkur fitubollurnar að biðja um hjálp. Samkvæmt goðsögninni eigum við að vera „feitar, ánægðar og hjálfúsar stúlkur". Ánægðar! Við getum sko ekki „leyft“ okkur annað. Hjálpfúsar! Við „þorum“ ekki að segja „nei“ því við viljum að öllum líki við okkur. Við erum alltaf reiðubúnar að rétta öðrum hjálparhönd ef með þarf, hlusta á vandamál annarra og hugga þá sem þurfa öxl til að gráta við. Þetta er ekkert líf og erfitt að geta aldrei látið tilfinningar sínar í Ijós. Ég er 45 ára ,160 sm á hæð og 89 kíló. Ég er gift og hjónaband mitt er í svo sem í lagi en tilfinningahitinn af skornum skammti. Ég elska manninn minn en þori ekki að láta tilfinningar mínar í Ijós af ótta við að hann vísi mér á bug. Maðurinn minn þolir ekki vaxtarlag mitt og þess vegna er ekki um neitt kynlíf að ræða. Með kærri kveðju. J.J. Kæra vinkona. Þakka þér fyrirþetta opinskáa bréf. Þessa líðan þekkjum við flest sem höfum glímt við þetta vandamál. Það versta sem getur gerst núna er að þú missir móðinn. Sýndu nú hvað í þér býr og byrjaðu að nota Nupo-létt. Ég veit að það kemur þér að gagni. NupoMétt

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.