Vikan - 01.10.1992, Blaðsíða 19
lært og munað, setningar,
hreyfingar og ekki síst þær
hugsanir sem aö baki liggja
hverju einstöku orði, hverri
einstakri hreyfingu. Það er
erfitt og þarf oft mikiö úthald
og einbeitingu til að standa
undir stóru hlutverki í heilli
leiksýningu.
Stressið við kvikmyndaleik
er að halda yfirsýninni og
spennunni - að geta dottið
inn í að túlka afmarkað, lítið
atriði sem er ekki kvikmyndað
fyrr en nokkrum vikum síðar.
í kvikmynd er lítil frumsýn-
ing á hverjum degi en auðvit-
að er hægt að henda hlutum
og endurtaka ef þeir koma
einhvern veginn ekki út eins
og til var ætlast.”
- Hvort finnst þér meira
heillandi aö starfa við?
„Mér finnst bara óskaplega
gaman að vera leikari, hvort
sem það er í kvikmynd eða á
sviði. Að skapa persónur, lifa
sig inn í tilfinningalíf og
reynsluheim annars fólks,
gera það skilyrðislaust að
sínu, elska það og verja og
vita um leið um alla veikleik-
ana finnst mér mjög heillandi
starf.”
- Hvernig var samstarfiö
viö Álfrúnu?
„Það var alveg frábært.
Hún er alveg einstaklega dug-
leg lítil kona og hæfileikarík.
Kannski eru börn bestu leikar-
arnir. Þau eru opin, einlæg og
falleg. Alla vega þarf góður
leikari að varðveita vel „barn-
ið“ í sér.“
FANN5T ÉG
MIKIL HETJA
- Manstu eftir einhverjum
skemmtilegum atvikum frá
kvikmyndatökunni?
„Já, já, en skondnar sögur
eru ekki mín sterkasta hlið.
Ég ætla í staðinn að segja þér
litla reynslusögu. Viö vorum
að undirbúa senu þar sem
Halla er að seiða til sín ást-
mann sinn og hendir sér að
endingu í sjóinn. Þessa senu
átti að taka í Ijósaskiptunum.
Eitthvaö dróst undirbúningur-
inn og allir vissu að það var
I oröið ansi tvísýnt með birtuna.
Samt var ákveðið að láta slag
standa og senan filmuð. Ég
henti mér í ískalt Atlantshafið
og lét ölduna flæða yfir mig
I eins og mælt hafði veriö fyrir
um. Mér fannst ég vera mikil
hetja þegar ég reis upp úr
J sjónum, gekk á land og hugs-
aði með mér: „Fínt, þá er
þetta búiðl" Það kom hins
vegar í Ijós, þegar filman kom
úr framköllun nokkrum dögum
síðar, að birtan hafði verið
orðin of lítil þannig að taka
þurfti þetta atriðið aftur. Það
skrítna var þó að seinni takan
var miklu minna mál fyrir mig
af því að ég vissi að hverju ég
gekk."
- Þú hefur leikið í aragrúa
af kvikmyndum fyrir utan sjón-
varpsþætti. Hvaö eru þær
orönar margar?
„Ekki kannski aragrúa en
nokkuð mörgum á íslenskan
mælikvarða. Ég hef tekið þátt
( þessu íslenska „kvikmynda-
vori“ svo að segja frá upphafi,
bæði sem leikari og aðstoðar-
leikstjóri. Ég lít svo á að það
sé ennþá vor, það er ekki
komið sumar. Við erum ekki
komin á það stig að geta sagt
að við höfum einhvern alvöru
kvikmyndaiðnað hér á landi.
Ekki svo að skilja að við höf-
um ekki gert margar ótrúlega
góðar myndir sem meðal ann-
ars hafa fengið tilnefningar,
verðlaun og mikla athygli á
kvikmyndahátíðum erlendis.
Ef íslensk kvikmyndagerð
hefði alvöru bakhjarl, ef við
hefðum aðgang að dreifikerf-
um og markaði, þá liti dæmið
öðruvísi út vegna þess að
metnað skortir ekki í íslenska
kvikmyndagerð."
AÐ LEIKA NAKIN
- Nú hefur þú ekki oft sést
mjög fákiædd, hvorki í kvik-
myndum eöa á sviöi. Var það
einhver sérstök ákvöröun aö
koma fram nakin í þessari
mynd?
„Ég hef reyndar komið fram
bæði fáklædd og nakin á leik-
sviði. Slíkt er alltaf ákvörðun
leikstjóra. Ef forsendurnar eru
nægilega sterkar getur verið
réttmætt að fara fram á að
leikari afklæöi sig. Og ef leik-
ari á annað borð tekur að sér
hlutverk gengst hann inn á
alla þætti þess. Það þýðir ekki
að segja „Nei, því miður" þeg-
ar á hólminn er komið - ekki
ef það er vitað og samþykkt
fyrirfram að svona eigi senan
að vera.“
- Viö hvaö ertu aö starfa
núna?
„Við erum að undirbúa sýn-
ingar á leikritinu Ríta gengur
menntaveginn á litla sviðinu í
Þjóðleikhúsinu. Þetta er
tveggja manna leikrit eftir
Willy Russel en kvikmynd
byggð á þessu leikriti var
mjög vinsæl fyrir nokkrum
árum, Educating Rita. Frum-
sýning verður f byrjun októ-
ber. Arnar Jónsson leikur á
móti mér í þessu verki. Þetta
er bráðfyndið leikrit sem gam-
an er að takast á við,“ segir
Tinna að lokum. □
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
A ÞITT
VIÐSKIPTAKORT
HEIMA HÉR?
REYKJAVÍKURVEGI 64 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 652620 • HEIMASÍMI 52030
Hreinsum allan venjulegan fatnað með bestu vélum sem
fáanlegar eru í dag. Tökum i þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum
einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
Þjáist þú af —
vðövabólgu, bakverk, brjósklosi, þvagleka,
gigt, tognun eöa viltu bara grennast.
Trlmm-form geturhjálpaö
Bjóöum einn prufutíma.
SNYRTISTOFA ÁRBÆJAR
ROFABÆ 39
SÍMI 68 93 10
HflRGHEIOSLUSTOFR HÖLLU MflGHUSDOTTUR
HIDLEITI7 * Síhl BS55B2
Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík
sími: 39990
Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari,
Ásta K. Árnadóttir, Elva B. Ævarsdóttir,
Þórunn A. Gylfadóttir, Halla R. Ólafsdóttir.
20. TBL. 1992 VIKAN 19
i