Vikan - 01.10.1992, Page 59
Gunnarsson, Úrvali-Útsýn;
Ágúst Einarsson, Lýsi hf. og
Herluf Clausen, Café Óperu.
Fyrsta formlega Akademíu-
kvöldið var haldið 26. septem-
ber 1991 á Café Óperu. Ríkti
mikil spenna og var mál
manna að verðlaun sem þessi
kæmu sér eins vel fyrir við-
skiptalífiö og „óskarinn“ kemur
kvikmyndalistinni til góða.
Akademían ásamt mökum var
samankomin til að tilkynna úr-
slitin, ásamt frammáfólki úr at-
vinnulífinu, á sérstökum
blaðamannafundi. Þar sem
þetta var fyrsta árið sem Aka-
demían starfaði voru vinn-
ingshafarnir þrír og voru þeir
og makar þeirra viðstaddir
bæði blaðamannafundinn og
hófið.
STARFSHÆTTIR
AKADEMÍUNNAR
Hver Akademíumeðlimur til-
nefnir þá aðila sem hann telur
samkvæmt sinni bestu sam-
visku að eigi útnefningu skilið.
Hann rökstyður valið og send-
ir inn sem algjört trúnaðarmál.
Tilnefningunum er safnað
saman og þeir fimm aðilar
sem fá flest atkvæði eru valdir
í undanúrslit. Úrslitin eru svo
loks kunngerð og verðlaunin
afhent í kvöldverðarboði Café
Óperu að viðstöddum aðilum
úr viðskiptalífinu.
Akademían tilkynnir fyrir-
fram nöfn þeirra fimm aðila
sem tilnefndir hafa verið fyrir
starfsárið 1992-1993. Úrslitin
verða síðan kunngjörð í gala-
kvöldveröarhófi á Café Óperu
fimmtudagskvöldið 8. október
næstkomandi. Heiðursgestir
verða utanríkisráðherra ís-
lands, Jón Baldvin Hannibals-
son - en hann er jafnframt
ræðumaður kvöldsins - og
eiginkona hans, Bryndís
Schram. Veislustjóri verður
fréttastjóri Stöðvar 2, Ingvi
Hrafn Jónsson. Skemmtiatrið-
um kvöldsins verður haldið
leyndum.
FYRSTA
AKADEMÍUKVÖLDID
Fyrsta formlega Akademíu-
kvöldiö var haldið fimmtu-
dagskvöldið 26. september
1991 á Café Óperu í Lækjar-
götu. Veislustjóri var Magnús
Kristjánsson. í tilefni þessa
viðburðar hafði yfirmatreiðslu-
meistari staðarins, Jón
Snorrason, útbúið sérstakan
átta rétta hátíöarmatseðil.
Meðal skemmtiatriða var atriði
úr Töfraflautunni eftir Mozart í
flutningi félaga úr íslensku óp-
erunni. Söngvarinn góðkunni
Einar Júlíusson söng gamlar
perlur og loks kom hápunktur-
inn, fiðluleikur Guðnýjar Guð-
mundsdóttur konsertmeistara.
Var listafólkinu frábærlega
tekið. Margt góðra gesta var
samankomið á Café Óperu
þetta kvöld enda komust færri
að en vildu. Var mál manna
að vel hefði til tekist með
fyrsta Akademíukvöldið. Var
það ekki síst að þakka starfs-
fólki Café Óperu sem stóð sig
með miklum sóma við að
skapa þessa einu sönnu
stemmningu sem á við á
kvöldi sem þessu.
AKADEMÍAN
1991-1992
í Akademíunni 1991-1992
sátu Friðrik Pálsson, SH; Val-
ur Valsson, íslandsbanka;
Magnús Oddsson, Ferða-
málaráði; Baldvin Jónsson,
Stöð 2; Hjördís Gissurardóttir,
gullsmiður og verslunareig-
andi; Jón Ásbergsson, Hag-
kaup; Ingimundur Sigfússon,
Heklu; Helgi Jóhannsson,
Samvinnuferðum og Herluf
Clausen, Café Óperu.
Að lokum þetta: Vonandi
verður Akademía Café Óperu
kveikjan að hvatningu, vakn-
ingu í anda stúdentanna sem
yfir mat og drykk funduðu og
fundu þær lausnir sem dugöu
til að frelsa þjóðina úr hlekkj-
um erlends yfirvalds og eigin
vanmetakenndar. Vonandi
verður hún verðugt innlegg í
þá baráttu aö nýta hugvit og
andagift íslendinga til að láta
drauma þeirra sjálfra - og
okkar allra - rætast.
Engin þjóð getur verið stolt
af sjálfstæði sínu nema af því
að hún er frjáls, viðskiptajöfn-
uður jákvæður og verðmæta-
sköpunin í hlutfalli við þarfir
og kröfur fólksins sem landiö
byggir. íslendingar geta átt
framtíðina fyrir sér en það
þarf margt að gera til þess að
styrkja stöðuna. Þess vegna
var Akademían stofnuð; sem
lögeggjan til þeirra sem á víg-
línunni standa, svo draumur-
inn um ísland, landið góða og
gjöfula, megi rætast næstu
kynslóðum á nýrri öld. □
i *
M)\EST\K
EAU
TOIIETTE
KATURAL
SPRAY
THE WAY YOU ARE - THE WAY YOU GO
LONESTAR.
TlSÖI.lSlAmK:
HYC.KA, Rcykj;i\ikurapotoki. IIYCHvA. Kiiniilunni. IMíOl.rs
AI’ÓTEK. Kringlunni. REC.MII Íl AIU OIN. 1 augavcui. SOl l ÍA.
lllcmmtoriii. NANA. Holagarði. lOmÍSKAN, AOalstrati. APOH.K
CiARDAH.K.I AR. Hrismóum. - SNYRTIl.ÍNAN. Fjaróarkaupum Hln.
RANGÁR Al’OTKK. llvolsvelli. llellu. SI JORNl AI’OIKK. Akureyri.
SKKKOSS Al’ÓTKK. Sellbssi. ANNKTTA; Kellavik. DÍANA, Olafslirói.