Vikan - 25.02.1993, Síða 32
- SEGIR GUÐMUNDUR ÁRMANN USTMÁLARt^w
SEM MÁLAR NÚ AF KRAFTI f GAML'A ^
ÞVOTTAHÚSINU f GRÓFARGILI
'CD OO
CZ> Cl_
t-o
rv rv~
:CD :C3
-=C UO
Fyrsta minning mín frá
myndlistartilburðum er
frá því ég var sjö ára
gamall, nýbyrjaður í Laugar-
nesskólanum. Kennarinn lót
okkur hafa blað sem var af-
langur renningur og sagði
okkur að nú skyldum við
teikna skip. Ég gerði það. Ég
man eftir að ég teiknaði lítið
skip og svo bara sjó í kring.
Kennarinn skammaði mig,
sagði að ég hefði átt að teikna
skip en ekki sjó. Þetta varð til
þess að hann rak mig heim,
þess vegna man ég svona vel
eftir þessu. Honum fannst lík-
lega ég ekki hafa viljað gera
eins og hann sagði. Mín hug-
mynd var auðvitað alls ekki
að sleppa frá einu eða neina
heldur var meiningin að leysa
þetta verkefni eins vel og ég
gat.
Kennarinn hefur ekki vitað
hvað í nemandanum bjó „...og
líklega hvorugur okkar þá,“
segir viðmælandi okkar, Guð-
mundur Ármann Sigurjóns-
son, myndlistarmaður á Akur-
eyri, formaður Gilfélagsins og
einn af hugmyndasmiðunum
á bak við Listagilshugmyndina
í Grófargilinu í hjarta Akureyr-
arbæjar. Það hvarflar að
manni þegar gengið er um
Listagilið að Gilfélagið og á-
hangendur þess eigi eftir að
verða álíka áhrifamiklir í bæj-
arlífinu í framtíðinni og KEA
var í eina tíð, að minnsta kosti
í miðbæ Akureyrar. í Grófar-
gili, þar sem KEA hafði lengst
af stærstan hluta starfsemi
sinnar, ráða nú Gilfélagsmenn
ríkjum. Þar er Myndlistarskól-
inn kominn í hús, þar hafa
listamenn vinnustofur og sýn-
ingarsali. Listasafn Akureyrar
verðurtrúlega komið þar undir
þak áður en langt líður og ætl-
unin er að þarna verði mikill
tónleikasalur. í Listaskálan-
um, gömlu þvottahúsi á bak
við Myndlistarskólann, finnum
við Guðmund Ármann mynd-
listarmann og fáum hann til
þess að rifja upp með okkur
hvað á listamannsdaga hans
hefur drifið frá því hann teikn-
aði of lítið skip og of mikinn
sjó á renninginn í Laugarnes-
skólanum.
LÆRDI
PRENTMYNDAGERÐ
„Ég hef nú komið víða við. Ég
er fæddur á Ránargötu 13, í
doktorshúsinu sem kallað var,
fæddur Vesturbæingur en
flyst að vísu mjög snemma
yfir f Austurbæinn, alla leið
32 VIKAN 4. TBL.1993