Vikan - 25.02.1993, Page 33
▲ Guó-
mundur
Ármann
vió mynd-
ina Jafn-
vægi frá
1987. Hún
er í tveim-
ur hlutum,
máluö
meó olíu-
litum á
striga.
inn á Langholtsveg. Foreldrar
mínir byggðu eitt af sænsku
húsunum á móts við Lang-
holtsbæinn, sem þarna var, og
ég átti mín uppvaxtarár í kring-
um Langholt og búskapinn
þar. Fótboltinn var stundaður á
Langholtstúninu þar sem nú
eru Sólheimar og Ljósheimar.“
Guðmundur hélt áfram að
teikna þótt hann hefði verið
rekinn heim eftir tilraunina í
sjö ára bekk og hann segir að
þegar hann hafi verið kominn
í gagnfræðaskóla hafi sér ver-
ið farið að ganga vel í teikn-
ingu. „Ég fékk alltaf dálítið
hátt í teikningu og leikfimi en
af öðrum námsgreinum get ég
ekki státað."
Listamaðurinn tengist Vik-
unni töluvert því hann lærði
prentmyndagerð í Rafgraf þar
sem Vikan var unnin á þess-
um tíma. „Ég hafði verið
sendill í prentsmiðjunni Eddu
þegar Svan Sigurðsson, nú í
Svansprenti í Kópavogi, var
þar og var þá oft að teikna
karlana í prentsmiðjunni.
Svan vissi því að ég hafði
gaman af að teikna og spurði
hvort ég vildi ekki læra prent-
myndagerð og það varð úr.
Síðustu tvö árin í náminu var
ég svo einnig í myndlistar-
námi á kvöldnámskeiðum og
fyrstu sýninguna mína hélt ég
á Mokkakaffi 1961. Þá sýndi
ég abstraktverk, teikningar.
Ég hafði uppgötvað penna
sem hægt var að fylla með
bleki og skipta um penna í eft-
ir þörfum og með þeim fór ég
að teikna alls konar form. Mér
þótti svo óskaplega gaman að
gera beinar og fínar línur. Ég
fékk bara nokkuð góða dóma
fyrir þessa sýningu og byrja
upp úr því í Myndlista- og
handíðaskólanum. Ég fór á
málarabraut í málaradeild.
Margir nemendanna fóru í
eitthvert hagnýtt nám, teikni-
kennaranám eða auglýsinga-
nám, en ég þóttist hafa efni á
að vera bara á málarabraut-
inni af því ég var að Ijúka
minni fagmenntun. Ég útskrif-
ast úr skólanum 1967.“
FULLTRÚI SVÍA Á
ÆSKULÝÐSBIENNAL Í
ÓSLÓ
Hvert liggur svo leiðin?
„Ég leitaði fyrir mér um
skóla ( Bandaríkjunum og
sótti um inngöngu í University
of Florida fyrir áeggjan Jó-
hanns Eyfells sem hafði verið
þar. En ég komst ekki f skól-
ann af því ég hafði ekki stúd-
4. TBL. 1993 VIKAN 33