Vikan - 25.02.1993, Síða 36
SALARKIMINN
SIGTRYGGUR JÓNSSON SÁLFRÆÐINGUR
SVARAR LESENDUM
Bréf til Sigtryggs geta snúist um samskipti kynjanna, sam-
skipti barna og foreldra, samskipti milli hjóna, kynlíf og
annaö þaö sem lýtur aö sálfræöi og sálfræöilegum vanda-
málum. Bréfin mega vera nafnlaus eöa undir dulnefni.
Utanáskriftin er:
Sigtryggur Jónsson sálfræöingur, Álftamýri 3,108 Reykjavík
FRAMHJAHALD
Kæri sálfræöingur.
Ég er gift og hef verið það í
tæplega tuttugu ár. Við eigum
þrjú börn sem öll eru komin á
unglingsaldur. Hjónabandið
hefur verið gott alla tíð eða
það hélt ég að minnsta kosti.
Ég fékk hins vegar harkaleg-
an skell nú skömmu eftir ára-
mót þegar ég uppgötvaði að
maöurinn minn hafði haldið
framhjá mér í langan tíma.
Þegar ég komst að þessu
skellti ég því framan í hann og
hann viðurkenndi það en
sagði jafnframt að það væri
búið, því hefði lokið rétt fyrir
jól svo ég þyrfti ekki að hafa
áhyggjur af því að það héldi
áfram. Hann sagðist sjá eftir
því og að það hefði verið
hann sem lauk því og að
hann hefði haft samviskubit
alla þessa mánuði sem fram-
hjáhaldið hefði staðið yfir.
Hann bað mig afsökunar og
lofaöi að þetta kæmi ekki fyrir
aftur. Svo taldi hann sig laus-
an allra mála. Hann segist
ekkert meira hafa um málið
að segja, geti ekkert sagt
annað en „fyrirgefðu".
Ég held að ég vilji halda
hjónabandinu áfram en
vandamálið er að ég get ekki
fyrirgefið honum og held á-
fram að kvelja mig og velta
mér upp úr þessu. Hann skilur
það ekki og segir mér bara að
ég geti treyst honum héðan í
frá og verði bara að láta þetta
tilheyra fortíðinni. Ég get það
bara ekki. Ég geng á hann
hvað eftir annað og hann virð-
ist vera að verða þreyttur á
því, vísar mér stöðugt á bug
og segist ekki geta sagt neitt
meira.
Hvað get ég gert og hvern-
ig get ég fengið hann til þess
að ræða þetta nánar til þess
að við getum lokið þessu og
gert málið upp? Hvernig er
hægt að byrja upp á nýtt, án
þess að Ijúka þessu máli fyrst
á einhvern hátt? Ég óttast að
ekki bara framhjáhald hans
hafi eyðilagt hjónabandið
heldur sé ég að eyðileggja
það með því að geta ekki fyr-
irgefið honum. Gefðu mér nú
góð ráð.
Með fyrifram þökk,
Gunna
Kæra Gunna.
Að yfirvinna þann tilfinninga-
og trúnaðarbrest sem veröur
við framhjáhald getur verið
mjög erfitt og það er greinilegt
að þér líður illa núna og sérð
enga leið út úr þessu. Það er
hins vegar ýmislegt sem vant-
ar í bréfiö þitt til þess að ég
geti sett mig fullkomlega inn f
36 VIKAN 4. TBL. 1993