Vikan - 25.02.1993, Side 43
spyrnu sem leikin er á Ítalíu
og því hafi útsendingum
Stöðvar 2 verið tekið fegins
hendi. Það gefi tilefni til að
ætla að ítalskur getraunaseðill
geti vel gengið með vaxandi
vinsældum.
Samstarfið við Stöð 2 verð-
ur á þá lund að meðan stöðin
sýnir sunnudagsleikinn þá
birtast stöður í öðrum leikjum
alltaf öðru hverju. „Við verðum
líka með tölvu uppi á Stöð 2
þar sem við getum séð, allt
fram til þess að síðasta sek-
únda í síðasta leik rennur út,
hvar sá er á landinu sem hef-
ur möguleika á að hreppa
skerf af pottinum. Þetta er að
mörgu leyti svipað kosninga-
spákerfinu og flakkaranum
þar. Að öllum leikjum loknum
sjáum við strax fjölda miða
sem hljóta vinning, hvar þeir
sem fengu þrettán rétta voru
seldir, hverjir voru tölvuvaldir
eða eftir kerfi og svo framveg-
is. Og það líður ekki á löngu
þar til við sjáum vinningsupp-
hæðirnar."
Þetta síðasta getur verið á-
gætt að hafa í huga og fylgj-
ast með til að firra líkamann
óþarfa álagi. Til dæmis höfum
við þá eldri mann í huga sem
kom nýlega að sækja vinning
sem hann hélt vera fyrir
nokkrum röðum eða svo á
getraunaseðli. Þá vildi nú
bara svo ágætlega til að ávís-
unin, sem á hann var stíluð,
hljóðaði upp á rúmar tíu millj-
ónir, takk fyrir.
Úr svona fjörutíu milljóna
króna potti deilast vinningar á
þá leið að 27 prósent fara í 13
rétta eða tíu milljónir og átta
hundruð þúsund íslenskar
krónur, 17 prósent í 12, 18
prósent í 11 og 38 prósent í
tíu rétta. Þetta eru sömu hlut-
föll og eru í norræna pottinum
sem fyrir er.
TILRAUN Á LOTTÓTÍMA
Fólk getur keypt þessa get-
raunaseðla fram til lokunar-
tíma lottósins fyrir tíu krónur
röðina en hver röð er ein
táknaruna niður seðilinn með
einu tákni á hvern leik. Tölvu-
val er jafneinfalt á þessum
seðli eins og lottóseðlinum.
Og það má alveg geta þess
að hátt hlutfall þeirra sem
spila í getraunum, eða um
þrjátíu prósent, spilar með
tölvuvali. Þeir eru ekkert frek-
ar að fylgjast með fótboltan-
um sem slíkum. Til dæmis
var tíu milljón króna vinning-
urinn greiddur út á fimm
hundruð króna tölvuvalsseðil.
Snillinginn
Frank
Rijkaard
þarf vart
að kynna
en hann
leikur i ít-
alska fót-
boltanum
...ásamt
Marco Van
Basten,
engu
minni
snillingi.
Báöir eru
hjá AC
Milan, tap-
lausir
meira en
fimmtíu
leiki.
Þar var engin yfirmáta pæling
að baki, sá sem datt í þann
lukkupott var bara að spila í
getraunum og velti leiknum
ekkert sérlega fyrir sér, að því
er Viktor segir. En til að byrja
með verða ekki seldir ítalskir
getraunaseðlar nema til tæp-
lega hálfníu á laugardags-
kvöldum.
„Við viljum ekki fara út í
einhvern geipilegan kostnað
sem fylgir því að hafa kerfið
opið allt fram að leik meðan
þessi tilraun er gerð. Hins
vegar getum við selt í gegn-
um lottókerfið en verðum þar
af leiðandi að loka fyrir sölu á
tíma og lottóið eða tutt-
mínútur yfir átta á laug-
gengur
finnum
koma hingað,
bera hér upp
þetta verði gert
margir sem fylgjast með
ítalska boltanum,“ segir Vikt-
or og nú er ekki annað að
gera en að fylgjast grannt
með Ítalíutippinu og þeim
viðtökum sem það fær hjá ís-
lenskum og sænskum get-
spekingum. □
4.TBL. 1993 VIKAN 43