Vikan - 25.02.1993, Page 47
vinna úr í gegnum svör mín og líka aðrir bréf-
ritarar sem sent hafa mér álíka frásagnir af
sjálfum sér. Hann þakkar fyrirfram fyrir grein-
argóö svör eins og hann segir sjálfur og óskar
mér alls góðs. Fyrir þetta vil ég þakka honum
sérstaklega eins og reyndar hinum líka sem
þannig eru hugsandi til mín og hafa látið það í
Ijós í bréfum sínum. Áfram nota ég innssei
mitt, hyggjuvit og reynsluþekkingu til svar-
anna.
ÓHREINU BÖRNIN HENNAR EVU
Einhvern tíma, ef ég man rétt, heyrði ég þá
hugmynd, sennilega haföa úr Þjóðsögum
Jóns Árasonar, aö mjög sérstök og harla ó-
venjuleg ástæða væri fyrir tilvist huldufólks.
Sennilega er þjóðsöguskýringin sú kenning
eða hugmynd um upphaf huldufólks sem
ýmsir eldri íslendingar og sumir jafnvel löngu
látnir hafa talið nokkuð tilkomumikla og senni-
lega, þó furðuleg sé og fremur óraunsæ.
Sagan segir að eitt sinn hafi Eva átt von á
Drottni sjálfum í heimsókn en af ærnu tilefni
væntanlega tókst henni ekki að þvo öllum
börnunum sínum áður en Guð kom í bæ. Hún
faldi því í snarheitum þau óhreinu býsna kirfi-
lega. Þegar síðan á heimsókn Drottins leið
var hún spurð hvort hún ætti ekki fleiri börn en
þá fullyrti þessi ágæti upphafsmaður mann-
kyns að svo væri alls ekki. Eins og við vitum
veit Guð allt og gerði sér vitanlega grein fyrir
óráðvendni Evu. Hann sagði því við hana í
framhaldi af barnleynd hennar eitthvað á
þessa leið: „Það sem látið er vera hulið mér
mun jafnframt í framtíðinni verða hulið fyrir
mönnum.“
MÓTSAGNAKENNDAR
OG MERGJAÐAR
í framhaldi af því að huldufólk var gert að af-
komendum Adams og Evu með þessum sér-
staka hætti má segja að í flestum sögum af
því hafi mátt finna þónokkurn mun á mennsk-
um mönnum og þessum einstaklingum sem
byggja hulduheima. Þó viröast þeir líkir okkur
fljótt á litið í gegnum skyggn augu huldufólks-
sjáenda. Huldufólk hefur náttúrlega verið
flestum óskyggnum ósýnilegt vegna þess aö
það lifir og býr í annars konar veröld, í vídd
sem er á margan máta ólík okkar mannanna.
Hugsanlega urðu í gegnum aldirnar margar
frásagnir af huldufólki mun mótsagnakenndari
en efni stóöu til. Kannski er það einmitt sök-
um þess að eftir því sem þær voru mergjaðari
og furðulegri þótti auðvitað meira í þær varið.
Til eru sögur af huldufólki sem eru þaö
blendnar og tvíræðar að erfitt er að átta sig á
því hvort um er að ræða ótæpilegt ímyndun-
arafl sögumanna eða hreinlega skáldaleyfi
þeirra sem sögðu frá. Það gæti líka verið
staðreynd að engir tveir upplifi sjón á heim
huldufólks á nákvæmlega sama máta þrátt
fyrir að í öllum aðalatriðum kunni sjáendum
að bera saman.
MISGOTT OG MÁTTUGT
Eins og vissulega kemur fram í frásögn Steins
er engum vafa undirorpið, alla vega miðað við
obbann af einmitt svona frásögnum, að um er
að ræða heim sem er hulinn öðrum en útvöld-
um og virðist hann, eins og Steinn segir, eiga
ýmislegt sammerkt með mannheimum þrátt
fyrir að vera jafnframt frábrugðinn. í hinum
ýmsu frásögnum kemur fram að þetta leynd-
ardómsfulla fólk á sér furðulegar hliðar og
misgóðar. Stundum hefur því verið fleygt og
sannreynt að það sé býsna máttugt og góð-
gjarnt. Aftur á móti er erfitt að trúa því sem
stundum hefur verið sagt að það geti valdi
hvers kyns óskunda og jafnvel armæðu í lífi
manna. Ef það gerist er sennilegt að tilefnið
sé að þess mati ærið, sem sagt að gert hafi
verið á hlut þess og það því kosið að hefna
sín svo um munaði. Til gamans má meira að
segja geta þess að það hefur verið til fólk sem
hefur trúað því að huldufólk gæti ráðið yfir
veðri og vindum.
MISMUNANDI HLUTSKIPTI OG
KRISTILEG TILTRÚ
Það er augljóst að Steinn hefur frekar góða
reynslu af samskiptum sínum við huldufólki.
Hann segir það hafa hjálpað sér í ýmsum og
ólíkum tilvikum, jafnvel fundið fyrir sig dýr sem
horfið hafa með dularfullum hætti af heimili
hans. Þetta er náttúrlega meiri háttar.
Augljóslega kemur fram í þeim frásögnum
sem ég hef undir höndum frá lesendum að
engu er líkara en í hulduheimum sé hlutskipti
einstaklinganna misgott. Sumir virðast búa í
skrautlegum og íburðarmiklum höllum í mikilli
auðlegð en aðrir í óeigulegum og hrörlegum
vistarverum, þar sem fremur ríkir arðmæða
og fátækt en nokkuð annað og mikilfenglegra.
Það kemur jafnframt fram [ þjóðsögunum,
ekki síður en í nútímafrásögnum, að huldufólk
virðist kristið og eiga sér trúarlega hefð sem
er áþekk því sem við þekkjum best. Þá er til
dæmis átt við að það syngi til dæmis sálma,
fari með bænir og taki jafnframt hinni postul-
legu blessun.
ÁSTIR HULDUFÓLKS
OG MANNA
[ gamla daga var því oftar en ekki haldið fram
að ástir hefðu á stundum tekist með mönnum
og huldufólki. Af þessum frásögnum hefur
kveðið svo rammt að jafnvel hefur í ítarlegum
frásögnum verið talað um ákveðna einstak-
linga sem hugsanlega afkomendur foreldra af
mannheimi annars vegar og svo hins vegna
af hulduheimi. Rökin fyrir þannig frásögnum
hafa meðal annars verið þau að huldufólks-
drottningum hafi fyrir ill örlög verið vísað alfar-
ið úr hulduheimi og þær í þannig aðstæðum
og öngþveiti ráðist í örvæntingu sinni sem bú-
stýrur á sveitabæi. i framhaldi af því hafi þær
náö að tengjast mennskum mönnum, jafnvel
eins og áður sagði ástarböndum, og síðan
getið með þeim börn.
ÆVINTÝRAKENNDAR
OG ÓRAUNSÆJAR
Það veröur að segjast eins og er að vegna
þess hvað frásagnirnar af huldufólkinu hafa
veriö ævintýrakenndar og óraunsæjar á
stundum er kannski ekki furða þó ýmsir hafi í
gegnum aldirnar efast stórlega um tilvist þess.
Hitt er svo annað mál að það hafa gerst atvik
og komiö upp atburðarásir tengdar möguleg-
um samskiptum manna og huldufólks sem
óumdeilanlega hafa fremur undirstrikað tilvist
þessa hulduheims og þeirra sem í honum
venjulegast búa. Enda hefur grunur alþýðu-
manna um tilvist huldufólks verið það almenn-
ur í gegnum aldirnar að varla er með sanni
hægt að segja að um tóma ímyndun sé að
ræða.
Sem sjáandi get ég sjálf ekki annað en
staðfest við Stein að þetta sem hann er að
upplifa og tengir huldufólki getur verið stað-
reynd og meira að segja mjög eðlileg. Það
sem hann segist upplifa hafa menn og konur
um allan heim sagst hafa upplifað um aldir,
þó ekki séu frásagnirnar endilega nákvæm-
lega eins. Þær eru þó nægjanlega keimlíkar til
að um einhvers konar skyldleikasamband sé
að ræða, jafnvel þó lönd og heimsálfur skilji
þær að.
LEYNDARDÓMSFULL VERÖLD
Hvað er í raun eðlilegt að upplifa og hvað ekki
er í eðli sínu mjög afstætt. Það sem einum er
algjörlega raunverulegt getur öðrum virst full-
komlega óraunverulegt og á það ekki síst við
þegar kemur að dulargáfum einstaklinga. Ver-
öldin er sennilega mun leyndardómsfyllri en
við viljum vera láta, að minnsta kosti flest.
Kannski er það viss einfeldni, þegar dýpra er
skoðað, að fullyrða að eitthvað sé í raun yfir-
máta eðlilegt, alveg eins og við værum alvitur
og gerðum okkur fullkomna grein fyrir öllu
sem telja mætti eðlilegt og bókstaflega gjör-
þekktum allt.
SUMT VERÐUR
ÁFRAM HULIÐ
Sumt í okkar ágætu tilveru verður auðvitað á-
fram hulið. Alveg eins er það og verður stað-
reynd að sumir sjá eða munu sjá einhvers
konar hulduheima og þá sem þar búa. Aðrir
sjá þetta bara alls ekki. Sjálfri finnst mér ein-
hvern veginn, miðað við það sem ég hef upp-
lifað úr hulduheimum, að huldufólk sé verur
sem eru í eðli sínu og athöfnum einstaklingar
sem byggja tilvist sína og atgervi eins og þær
væru með eðli sem liggur andlega einhvers
staðar mitt á milli manns og engils.
Eða eins og einfeldningurinn sagði einu
sinni við vini sína og brosti í kampinn: „Elsk-
urnar mínar, ég hef séð huldufólk frá frum-
bernsku og veit að í þessu fólki býr einn af-
markaður og gagnlegur vaxtarbroddur eilífð-
arinnar. Það er því til staðar og á fullan rétt á
að fá tilveru sína staðfesta, jafnvel þó að það
sé ósýnilegt meginþorra manna. Vísindalegar
staðreyndir á hverjum tíma eru nefnilega ein-
ungis bundnar takmörkuðum skilningi ein-
stakiinga og til lengri tíma litið getur sá skiln-
ingur reynst eins og hver önnur tálsýn eða
hreinlega hugsanaskekkja vegna tíðarand-
ans. Þetta sjónarmið sanna mýmörg dæmi
óumdeilanlega. “
Vonandi lærist Steini smám saman að
meta þessa sérstöku og dulrænu sérgáfu sína
án umtalsverðra áhyggna.
Með vinsemd,
Jóna Rúna
Vinsamlegast handskrifið
bréf til Jónu Rúnu og
látið fylgja fullt nafn og
kennitölu, ásamt dul-
nefni. Svörin byggjast á
innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og þvi
miður er alls ekki hægt
að fá þau i einkabréfi.
Utanáskrift er:
Jóna Rúna Kvaran, ^
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík