Vikan - 25.02.1993, Síða 54
TEXTI: JÓHANN GUÐNIREYNISSON
Grímugleði Vikunnar og Bylgjunnar:
GRÍMU-
r7 GESTIR
ÍVEÐUR-
HAM
Allmargir toku þátt í grímugleði Vikunnar og
Bylgjunnar fyrir skömmu og má með sanni segja
að allir sem mættu hafi verið í sannkölluðum
veður-ham. Sérlega góð stemmning skapaðist víða um land en
reikna má með að náttúruhamfaraspár Veðurstofunnar og ein-
dregin tilmæli Almannavarna til fólks um að skríða ofan í loft-
varnabyrgi hafi stuðlað að því að einhverjir hafi bara skraut-
búnir skemmt sér og sínum í heimahúsum.
En Ijóst er að skemmtanir sem þessar eiga fullt erindi hér á
ofanverðri jarðarkringlunni og hugmyndin er góð. Dansleikirnir
voru haldnir á fimm stöðum; í Sjallanum á Akureyri, á Hótel
íslandi í Reykjavík, á Okkur félögunum i Vestmannaeyjum, i
Þotunni í Keflavík og Firðinum, Hafnarfirði.
Búningahönnun var með miklum afbrigðum á öllum þessum
stöðum og vöktu tilþrif margra mikla kátínu. Viðurkenningar voru
veittar fyrir bestu búningana og lögðu fjölmargir mikinn metnað i
hönnun og gerð fatnaðar og annarra róttækra útlitsbreytinga.
Hér birtum við myndir sem Ijósmyndarar Vikunnar tóku á þes-
sum stöðum og við gefum þeim þau orð sem ósögð eru.
Að gefnu tilefni má í lokin geta þess að ákveðið hefur verið
að halda svona ball aftur að ári og hafa gárungar haft á orði að
þá skuli tákn viðburðarins vera ásjóna Guðjóns Petersen,
forstjóra Almannavarna! Þetta er þó vitaskuld mikið grín og
mikið gaman en ballið verður örugglega haldið.
Útsýnið var bara ágætt yfir dansgólfiö í Reykjavíkurdeild
grímugleói Bylgjunnar og Vikunnar. Þrátt fyrir veðurham úti
fyrir viðraði vel í geöi þeirra sem inni voru og skemmtu sér
konunglega. Þeir sem skriöu ofan í veöravarnabyrgi geta
nagaö sig í handarbökin þangaö til næsta ár en vonir standa
til aö þá veröi þessi skemmtilegi viðburður endurtekinn.
„Forsíóustúlkan" komin f
hendur djöfulsins aó því er
við best sjáum...
Hér eru vinningshafar saman
komnir. Aö baki mörgæsinni
má sjá parið Þóri Pál
Tryggvason og Huldu
Tryggvadóttur en hann
mætti sem skrímsli Franken-
steins og hún sem aóstoðar-
maóur skrfmslisins. Allir
höföu af þessu mikió gaman,
ekki síst Erla Friógeirs
Bylgjurödd sem auóvitaó var
■ sfnu fínasta pússi. Vióur-
kenningarnar voru auðvitaö
mjög ánægjulegar en f verö-
laun voru Tuborg bjór, pen-
ingaverólaun 10.000 og
málsveröur fyrir tvo á
Argentínu steikhúsi.
54 VIKAN 4. TBL. 1993