Vikan - 25.02.1993, Síða 66
mnwnaii
Garcia fyrir væntanle9a áhorfendur
Armand °9 Þvl afráða framleiðendur
Assante að hætta við að gera kvik-
og James mynd eftir því þótt það sé vel
Edward skrifað. Fyrir getur komið að
Cortés hreinlega se enginn markaður
sem lík- fyrir handritin, söguþráðurinn
lega veró- á einfaldlega ekki við tíðar-
uraidrei andann. Tískusveiflur eru í
gerö.
heimi kvikmyndanna eins og
annars staðar.
Hér á eftir verður minnst á
nokkur handrit sem eru vel
skrifuð en vegna þess að þau
þykja skrýtin eða kalla á of
mikla fjárfestingu eru þau látin
afskiptalaus og hvíla á hillum
kvikmyndaframleiðenda og
safna ryki um ókomin ár.
Óskarsverðlaunahandrita-
höfundurinn Nicholas Kazan,
sem hlaut viðurkenningu fyrir
handrit sitt að myndinni
Reversal of Fortune, hefur
skrifað þykkt handrit sem heit-
ir Cortés og fjallar um
spænska landkönnuðinn
Cortés. Þar er greint frá stríði
spænskra hermanna gegn
konungi Azteka, Montezuma
II f Mexíkó, og hvernig
indíánaþjóðinni var eytt.
Handritið lýsir á raunsæjan
hátt hvernig Cortés og 400
manna herlið hans gereyddi
200.000 manna herliði
Montezuma II. Þetta er hand-
rit að stórmynd og hafa margir
nafntogaðir leikstjórar verið
orðaðir við verkið. Má nefna
Peter Weir, Oliver Stone og
Paul Verhoeven sem síðast
gerði Basic Instinct. Lokið
var við handrit þetta árið 1988
en litlar líkur eru á að mynd
verði gerð eftir þvi. Til þess
reynist verkið of kostnaðar-
samt. Hjá kvikmyndafram-
leiðslufyrirtækinu PentAmer-
ica Pictures er talið að þurfi
minnst 50-75 milljónir Banda-
ríkjadala til að hrinda verkinu í
framkvæmd. Það er kreppa í
kvikmyndaiðnaðinum eins og
í öðrum iðnaði í heiminum um
þessar mundir. Ef hins vegar
Cortés yrði að veruleika er
þegar búið að skipa leikara í
aðalhlutverkin. Þeir eru Andy
Garcia (sem Cortés), Arm-
and Assante (The Mambo
Kings) og Edward James
Olmos (American Me, Stand
and Deliver).
Hið dularfulla mál Benja-
míns er titill á handriti sem
byggt er á smásögu eftir
bandaríska rithöfundinn F.
Scott Fitzgerald (The Great
Gatsby, The Last Tycoon).
Steven Spielberg ætlaði upp-
haflega að leikstýra verkinu
sem átti að kosta í kringum 40
milljónir dala en hann varð að
hverfa frá því þar sem hann
tók að sér að leikstýra Hook,
The Jurassic Park (sem verð-
ur sýnd f september á íslandi
og fjallar um vélknúna risaeðlu
í skemmtigarði). Auk þess
mun Steven Spielberg leik-
stýra myndunum Mr. Magoo
og Schindlers List.
Kvikmyndaframleiðandinn
Ray Stark er búinn að eiga
kvikmyndaréttinn að smásög-
unni í yfir tuttugu ár. En hvers
vegna verður handritið, sem
Robin Swicord skrifaði, ekki
gert að kvikmynd? Jú, fram-
leiðendur telja að myndin eigi
ekki við núna þar sem hún
greini frá djassleikaranum
Benny Goodman og Billy
Holliday. Sögupersóna verks-
ins, Button, kynnist þessum
sögufrægu persónum auk
þess sem hann tekur þátt í Ví-
etnamstríðinu og verður ást-
fanginn af tískudrottningu sem
hvetur hann til að gerast popp-
söngvari. Þetta er þvælinn og
margbrotinn söguþráður. Það
skal tekið fram að handritið
heitir á frummálinu The Curi-
ous Case of Benjamin Butt-
on og er eingöngu lauslega
byggt á smásögu eftir F. Scott
Fitzgerald þar sem rithöfundur-
inn lést árið 1941. Ef verkið
yrði að veruleika er ætlunin að
láta hinn síunga Tom Cruise
fara með aðalhlutverkið.
Handritið Lenya er byggt á
sannsögulegum atburðum og
greinir frá stórbrotnu lífi
tveggja einstaklinga, Lotte
Lenya og Kurt Weil sem voru
litríkir listamenn. Ef þetta
handrit verður einhvern tím-
ann að kvikmynd á hún að
líkjast myndinni Cabaret sem
gerð var 1972 með þeim Lizu
Minelli og Michael York.
Kvikmyndaframleiðslufyrirtæk-
ið All Girl Productions hefur
í fjögur ár reynt að koma verk-
inu af stað en fólk í bransan-
um telur að ekki sé markaður
fyrir enn eina söngleikjamynd.
Hugsanleg leikkona er Bette
Midler (Forthe Boys).
Þekkt handrit, sem búið er
að safna ryki í fjögur ár, heitir
Revolution (ekki myndin sem
gerð var 1985 og kolféll árið
eftir og var með Donald
Sutherland og Al Pacino í að-
alhlutverkum). Handrit þetta
segir frá ameríska frelsisstríð-
inu 1776-1783 og hugsanleg-
ir leikarar eru þeir Kenneth
Branagh (Dead Again, Henry
V, Petes Friends), Gene
Hackman (sem Benjamin
Franklin), Daniel Day Lewis
(sem George Washington) og
Alec Baldwin (sem John
Hancock). Leikstjóri yrði Bret-
inn Stephen Frears (The
Grifters, Hero). Handritið er
300 síðna langt og ýmsir
framleiðendur í kvikmynda-
borginni Hollywood hafa dá-
samað verkið en benda hins
vegar á að það sé alltof langt
og kostnaðarsamt. Auk þess
útheimtir myndin erfiðar bar-
dagasenur, dýra búninga, lik-
ön og ýmis mannvirki í fullri
stærð. Af þessum ástæðum
verður myndin sennilega
aldrei gerð.
Að lokum má geta þess að
stundum er búið að undirbúa
alla kynningu fyrir væntanlega
kvikmynd, búið að gera litríkt
og dýrt veggspjald og fleira en
allt kemur fyrir ekki. Kvikmynd
er stundum ekki gerð einfald-
lega vegna þess að þeir sem
ætluðu að fjármagna verkið á-
kveða að hætta við vegna
þess að þeir telja verkið of á-
hættusamt. Þetta gerðist með
mynd sem átti á heita Mario
and the Magician og til stóð
að yrði með enska öndvegis-
leikaranum Malcolm
McDowell og Mary Steen-
burgen. Handritið með sam-
nefndum titli er byggt á skáld-
sögu eftir Thomas Mann.
Myndin á að gerast árið 1929
í ítölsku sjávarþorpi. Sagan
fjallar um stjórnmálaástand
þess tíma á Ítalíu þegar svart-
stakkar Mússolínis eru byrjað-
ir að láta að sér kveða. Auk
þess snýst sagan um þjóninn
Mario sem verður ástfanginn
af konu sem er í ástlausu
hjónabandi. Upphaflega áttu
sem sagt Malcolm og Mary
Steenburgen að leika í mynd-
inni en hætt var við á síðustu
stundu. Sögusagnir eru nú á
kreiki um að þýskir aðilar ætli
að hrinda verkinu í fram-
kvæmd. Austurríski stórleikar-
inn Klaus Maria Brand-
enauer (Mephisto, Colonel
Redl) er sagður eiga að fara
með aðalhlutverkið. Er svo
markaður fyrir þessa tegund
kvikmyndar? Það getur tíminn
einn leitt í Ijós. □
66 VIKAN 4.TBL. 1993