Vikan - 25.03.1993, Blaðsíða 11
► ísréttur
Perlunnar.
► Innbök-
uö grisa-
hryggjar-
sneiö meö
grænmeti
og myrkil-
sveppa-
sósu.
lega er hátt til lofts og vítt til
veggja - en það er einmitt
kosturinn. Sitji maður einn
með spúsu sinni af einhverju
tilefni í friði og ró yfir dýrindis
máltíð er Perlan staður sem
býður upp á slíkt andrúmsloft.
Séð hefur verið til þess að
mjög gott bil er milli borða,
nægilegt til þess að fólk hafi
það á tilfinningunni að vera
hæfilega út af fyrir sig. Þar við
bætist að matargestir dreifast
á allan hringinn, sem er býsna
stór.
Það fer vel um matargesti í
Perlunni og kemur margt til
auk umhverfisins. Athygli vek-
ur að borðin eru stærri en
gengur og gerist og bjóða því
hverjum og einum upp á
meira olnbogarými, hvort sem
tveir sitja við borð eða fleiri.
Yfirleitt er talið nægilegt að
hafa 80x80 cm rými fyrir
hvern gest og sums staðar er
jafnvel ekki gert ráð fyrir
nema 60x60 cm. Hér er boð-
ið upp á 90x90 cm. Borðin
eru jafnframt þannig úr garði
gerð að þegar fjórir sitja við
þau eru þau ferhyrnd en
verða sex manna hringborð
þegar fjórir vængir, sem eru
undir borðplötunni, eru lagðir
niður.
Vandaður borðbúnaður í
Perlunni vekur athygli og má í
því sambandi benda á diska
og bolla úr beinpostulíni,
voldug hnífapörin og fagur-
lega munstruð kristalsglös.
VERÐUR AD GÓÐU
En ekki dugir að hafa um-
hverfið og aðbúnaðinn úrval
ef þjónustan og veitingarnar
eru ekki í samræmi við það.
Undirritaður hefur hvort
tveggja reynt, tekið þátt í þrjú
hundruð manna veislu og set-
ið í góðra vina hópi við sex
manna borð. í báðum tilvikum
var frammistaða þjónustuliðs
óaðfinnanleg, kurteis og lipur,
og í raun aðdáunarverð í fyrra
tilvikinu þar sem reyndi á
snerpu og skipulag fram-
reiðslu og eldhúss.
Og maturinn úr fransk-ís-
lenska eldhúsinu er fyrirtak og
er af ýmsu að taka. Við mæl-
um með eftirfarandi réttum:
FORRÉTTIR
Laxa-„terrine“ með reyktum
laxi, framborið með reyktum
laxahrognum.
Kálfalifrar-„mousse“, borin
fram með grískri smjördeigs-
köku með portvínshlaupi.
Blandaður íslenskur kavíar
framreiddur með rússneskum
lummum, sýrðum rjóma og ís-
lensku brennivíni.
6. TBL. 1993 VIKAN 1 1