Vikan


Vikan - 25.03.1993, Síða 11

Vikan - 25.03.1993, Síða 11
► ísréttur Perlunnar. ► Innbök- uö grisa- hryggjar- sneiö meö grænmeti og myrkil- sveppa- sósu. lega er hátt til lofts og vítt til veggja - en það er einmitt kosturinn. Sitji maður einn með spúsu sinni af einhverju tilefni í friði og ró yfir dýrindis máltíð er Perlan staður sem býður upp á slíkt andrúmsloft. Séð hefur verið til þess að mjög gott bil er milli borða, nægilegt til þess að fólk hafi það á tilfinningunni að vera hæfilega út af fyrir sig. Þar við bætist að matargestir dreifast á allan hringinn, sem er býsna stór. Það fer vel um matargesti í Perlunni og kemur margt til auk umhverfisins. Athygli vek- ur að borðin eru stærri en gengur og gerist og bjóða því hverjum og einum upp á meira olnbogarými, hvort sem tveir sitja við borð eða fleiri. Yfirleitt er talið nægilegt að hafa 80x80 cm rými fyrir hvern gest og sums staðar er jafnvel ekki gert ráð fyrir nema 60x60 cm. Hér er boð- ið upp á 90x90 cm. Borðin eru jafnframt þannig úr garði gerð að þegar fjórir sitja við þau eru þau ferhyrnd en verða sex manna hringborð þegar fjórir vængir, sem eru undir borðplötunni, eru lagðir niður. Vandaður borðbúnaður í Perlunni vekur athygli og má í því sambandi benda á diska og bolla úr beinpostulíni, voldug hnífapörin og fagur- lega munstruð kristalsglös. VERÐUR AD GÓÐU En ekki dugir að hafa um- hverfið og aðbúnaðinn úrval ef þjónustan og veitingarnar eru ekki í samræmi við það. Undirritaður hefur hvort tveggja reynt, tekið þátt í þrjú hundruð manna veislu og set- ið í góðra vina hópi við sex manna borð. í báðum tilvikum var frammistaða þjónustuliðs óaðfinnanleg, kurteis og lipur, og í raun aðdáunarverð í fyrra tilvikinu þar sem reyndi á snerpu og skipulag fram- reiðslu og eldhúss. Og maturinn úr fransk-ís- lenska eldhúsinu er fyrirtak og er af ýmsu að taka. Við mæl- um með eftirfarandi réttum: FORRÉTTIR Laxa-„terrine“ með reyktum laxi, framborið með reyktum laxahrognum. Kálfalifrar-„mousse“, borin fram með grískri smjördeigs- köku með portvínshlaupi. Blandaður íslenskur kavíar framreiddur með rússneskum lummum, sýrðum rjóma og ís- lensku brennivíni. 6. TBL. 1993 VIKAN 1 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.