Vikan


Vikan - 25.03.1993, Blaðsíða 41

Vikan - 25.03.1993, Blaðsíða 41
LEIKUR MEÐ LEIKSVIÐ Frh. af bls. 16 aö þessir aöilar skilji og treysti hvor öörum sem best. Sam- tímis því sem æfingar byrja eru gjarnan lagðar fram teikn- ingar að búningum og líkan aö leikmyndinni ásamt vinnuteikn- ingum. Æfingarnar standa yfir- leitt í um þaö bil fimm til átta vikur og þann tíma er ég á staðnum í nokkurs konar verk- stjórnarvinnu. Þá er maður á stöðugum þönum á milli deilda, byrjar kannski á smíöa- verkstæðinu á morgnana og fer síðan yfir á saumastofuna og í leikmunadeildina. Þegar leikmyndin er loks komin á sviðið og búningar og leikmun- ir að miklu leyti líka hefst sam- vinnan með leikstjóranum á ný. Við skoðum í sameiningu alla þá þætti sem eru saman- komnir á sviðinu og þá er gott að hafa nógan tima til að betrumbæta verkið. Allt það sem heitir útlit á sviðinu hef ég með að gera. Leikmyndin öðl- ast síðan líf með lýsingunni en leikstjóri og leikmyndahöfund- ur vinna með Ijósameistara til að ná fram þeim áhrifum sem óskað er eftir." BÚNINGAR OG BÓKASKREYTINGAR - Ert þú þá með alla verk- fræðilega þætti á hreinu eins og burðarþol og þess háttar? „Nei, sem betur fer hefur leikhúsið yfir að ráða hæfu og reyndu tæknifólki sem sér al- farið um þessi atriði. Ég geri til dæmis engar smíðateikn- ingar heldur aðeins fallmyndir og grunnplan fyrir sviðið, að vísu í réttum hlutföllum en út- færslan er síðan í þeirra höndum. Sum smáatriðin stækka ég upp í einn á móti tíu en þetta er ekkert eins og ég sé að senda vinnuna í burtu á fjarlægan stað heldur finnum við úrlausnir á vanda- málunum í sameiningu á staðnum. Án náinnar sam- vinnu við tæknifólkið væri þessi leikhúsvinna nær ó- hugsandi vegna þess að smíðaverkstæði í leikhúsi er til dæmis allt annað en verk- stæði sem fjöldaframleiðir húsgögn. í hvert einasta skipti koma upp atriði sem hefur ekki verið tekið á áður og þá nýt ég þeirrar reynslu sem þetta fagfólk býr yfir.“ - Þú hannar búningana fyr- ir Ronju ræningjadóttur. Er al- gengt að leikmyndahöfundar sjái líka um hönnun þeirra ? „Það er allur gangur á því. Sumir leikmyndahöfundar vilja láta aðra sjá um búningana en ég á mjög erfitt með að skilja þarna á milli. Það er á- kveðinn heildarsvipur á sýn- ingunni sem mér er annt um og ég þori ekki eða get í raun og veru ekki brotið hann upp. Hins vegar er ég stundum meö aðstoðarmanneskju og hún hefur reynst mér mjög vel. Sviðið er ein myndræn heild þannig að ef ég get mögulega gert hvort tveggja finnst mér það kostur." - Þú sýndir mér áðan bók sem þú ert að myndskreyta. Lítur þú fyrst og fremst á þig sem leikmyndahöfund eða getum við átt von á að sjá þig drepa niður fæti á fleiri stöð- um í listalífinu? „Leikmyndin er sá tjáningar- máti sem á best við mig. Að myndskreyta bækur byrjaði sem smáverkefni sem rak á fjörur mínar og hefur undið upp á sig. Ég hef mjög gaman af því og á sínum tíma, þegar ég leitaði álits hjá virtum lista- mönnum um hvers konar list- nám mundi henta mér best, var mér bent á grafík eða bókaskreytingar. Ef það hefur verið leyndur draumur hjá mér þá er hann orðinn að veruleika líka. Þetta tengist náttúrlega mjög sterkt því í báðum tilfell- unum er verið að gera mynd út frá texta og bókaskreyting- arnar eru eins og auðgandi leikfimi fyrir huga og hönd." Það hefur orðið mér Ijóst á spjalli okkar að Hlín er sér- staklega blátt áfram, ósnobb- uð og gerir ekki mikið úr hæfi- leikum sínum. Gagnrýnendur hafa hins vegar verið duglegir að lofa verk hennar og Björn Th. Björnsson sagði meöal annars um myndræna út- færslu hennar á Ljóni í síð- buxum að hún væri eitt það snjallasta sem hann hefði séð á (slensku leiksviði. Sverrir Hólmarsson tók í sama streng í umsögn sinni um Jólaævin- týri Dickens þegar hann sagði að leikmynd Hlínar væri snilldarverk sem sameinaði fegurð, leikrænt notagildi og táknræna undirstrikun með mjög óvenjulegum hætti. Nú með vorinu verður spennandi að fylgjast með framhaldinu hjá Hlín við ball- ettinn Coppeliu með íslenska dansflokknum. Hún veröur einnig á ferðinni í Þjóðleikhús- inu ( uppfærslu á Kjaftagangi eftir Neil Simon þannig að nóg er aö gerast hjá þessari fjölhæfu listakonu. □ STJÖRNUSPA HRÚTURINN 21. mars - 20. apríl Það á eitthvaö nýtt og spennandi eftir að gerast í lífi þínu á næstunni. Þú munt athuga hvað ýmsum persónulegum samböndum þínum líður á sviði fjármála, kunn- ingsskapar og jafnvel ástarmála. Margt bendir til þess að ástin sé á uppleið og framtíðin björt. NAUTIÐ 21. apríl - 21. maí Þú átt svolítið erfitt með að sætta þig við þær breytingar sem verða í kringum þig en þær eru samt til bóta. Þú munt eiga skemmtilegar og uppörvandi sam- ræður í ákveðnum félagsskap sem gæti breytt ýmsu fyrir þig. TVÍBURARNIR 22. maí - 21. júní Nú er rétti tíminn til að skipuleggja framtíðina og taka sig á, hvort sem er I námi eða starfi, herða lesturinn og jafnvel biðja um launahækkun á vinnustað. Reyndu að láta Ijós þitt skína á þeim svið- um sem þú er sterkastur fyrir. KRABBINN 22. júní - 23. júlí Vertu kröfuharðari á sjálf- an þig og djarfari við að koma ár þinni fyrir borð og gæta stöðu þinn- ar. Þú munt upplifa víxlverkun milli vinnunnar og einhvers sviðs í lífi þínu sem þú hefur hingað til getað haldið út af fyrir þig. UÓNIÐ 24. júlí - 23. ágúst Lifðu lífinu lifandi og hafðu hugfast hugtakið ,,er á meðan er”. Til hvers er að hafa áhyggjur út af engu? Þú skalt halda þínu striki í vinnu og einkalífi en reyndu fyrir alla muni að gera þér hlutina ekki svona erfiða. Framtíðin virðist bera ýmislegt gott í skauti sér. MEYJAN 24. ágúst - 23. sept. Slakaðu aðeins á og ekki reyna að gera á næstu tveimur vik- um allt sem þú hefur látið sitja á hakanum. Skipuleggðu verk þín lengra fram í tímann og reyndu síð- an að temja þér markvissari vinnu- brögð bæði heima og heiman. VOGIN 24. september - 23. okt. Hugsaðu þig vel um áður en þú tekur ákveönu tilboði sem virðist fela í sér gull og græna skóga. Samskipti þín við maka þinn eða einhverja persónu þér mjög nátengda munu veita þér bæði gleði og hamingju og það kemur glöggt fram í fari þínu næstu vik- urnar. SPORÐDREKINN 24. október - 22. nóv. Þú munt ná góðum árangri ef þú breytir matarvenjum þínum og hugsar betur um líkamshreysti þína. Þú nýtur þess að leika þér að orðum og hugmyndum en gerðu það ekki á kostnað annarra. Hlust- aðu á góð ráð félaga þinna og samstarfsfélaga. BOGMAÐURINN 23. nóvember - 22. des. Þú ert þessa dagana í skapi til að leyfa ástinni að njóta sín, auk þess sem þér finnst tími til að njóta góðs matar og drykkjar. Þér mun gefast tækifæri til þessa alls að nokkru marki en það mun engu að síður ekki breyta því að þér finnist eitthvað vanta upp á hina fullkomnu hamingju. Reyndu að komast að því hvað þaö er. STEINGEITIN 23. desember - 20. jan. Hreinskilni hefur ekki verið þín sterkasta hlið upp á síðkastið og þú hefur átt í vandræðum með að trúa öðrum fyrir tilfinningum þín- um. Þér mun reynast best að koma til dyranna eins og þú ert klæddur og fara ekki I felur með neitt gagn- vart kunningjum þínum og vinum. VATNSBERINN 21. janúar - 19. febrúar Þér virðist jafnvel sam- skipti þín við næstu nágranna vera orðin meiri og nánari en góðu hófi gegnir. Þess vegna er líklega kom- ið að því að þú dragir þig hæfilega í hlé og látir lítið fyrir þér fara um sinn. Hreinskilni er best til að koma í veg fyrir tortryggni annarra. FISKARNIR 20. febrúar - 20. mars Oft er sagt um fiska aö þeir eigi erfitt með aö hugsa skýrt. Það hefði kannski mátt til sanns vegar færa upp á síðkastið en nú ertu aftur kominn niður á jörðina og getur tekist á við erfiðustu verkefni og vandamál sem krefjast lausnar. Geföu samt ímyndunaraflinu rúm til að njóta sín. 6. TBL, 1993 VIKAN 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.