Vikan - 25.03.1993, Blaðsíða 46
MYNDIR OG TEXTI: HÓLMFRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR
Ódýrt en gott
SUNNUDAGSFISKUR
700 g ýsuflök
2 dl rjómi
1/2 dós niöursoðnir sveppir
1 lítill laukur, saxaöur smátt
100 g rækjur
salt, pipar, karrí og aromat
hrísgrjón, ca 3 dl
Sjóöið hrísgrjónin. Roðflettið
fiskinn og skerið í stykki.
Blandið salti, pipar og aromat
saman við hveiti og veltiö fisk-
inum upp úr blöndunni. Steik-
ið laukinn og takið hann af
pönnunni. Bræðið smjörlíki,
stráið karríi (eftir smekk) yfir
og steikið fiskinn á báðum
hliðum í feitinni. Helliö rjóm-
anum og sveppunum með
soðinu út í. Látið sjóða að-
eins. Bætið lauknum út í.
Þekið botn eldfasts fats
með hrísgrjónunum. Setjiö
fiskinn og sósuna yfir og bak-
iö í heitum ofni í 10-15 mínút-
ur. Dreifiö rækjunum yfir þeg-
ar rétturinn er tekinn úr ofnin-
um. Skreytið að vild. Hér er
skreytt með grænkáli, sítrónu-
og tómatsneiðum.
PASTASÓSA
1 búnt steinselja
2 stór hvítlauksrif
130 g valhnetur
1 ’/i dl ólífuolía
60 g rifinn parmesanostur
Saxið steinseljuna smátt,
hakkið hneturnar, merjið hvít-
laukinn og blandið öllu vel
saman. Gott er að hræra
þetta í blandara (mixara) ef
hann er til. Saltið og piprið
eftir smekk. Sósan verður
frekar þykk. Hún geymist vel í
lokuðu íláti í kæliskáþ. Það er
gott að þragðbæta ýmsa rétti
með henni, til dæmis pitsur og
pastarétti. Prófiö hana til
dæmis í sósu með soðnum
pastaskrúfum:
Nokkrar sneiöar af skinku
skornar í bita. Sveppir, ferskir
eða niðursoðnir. Kryddað
með pasta- og pitsukryddi frá
Knorr, salti og pipar. 2-3 msk.
pastasósa. Rjóma hellt yfir og
látið sjóða svolitla stund.
Soðnum pastaskrúfum bland-
að saman við og rétturinn er
tilbúinn.
46 VIKAN 6. TBL. 1993