Vikan - 25.03.1993, Blaðsíða 10
TEXTI: HJALTIJÓN SVEINSSON / UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
VEITINGASTAÐUR MÁNAÐARINS
VANDUR AÐ VIRÐINGU SINNI
argir kalla hana
borgarprýði og má
það til sanns vegar
færa. Sumir eiga ekki orð yfir
ágæti mannvirkisins, aðrir
finna því allt til foráttu. Hvað
sem því líður stendur hún efst
í Öskjuhlíðinni, flestum veg-
farendum og gestum sínum til
augnayndis og ánægju. Það
eru þremenningarnir Gísli
Thoroddsen, Stefán Sigurðs-
son og Bjarni Árnason, sem
jafnframt er kenndur við
Brauðbæ eða Óðinsvé, sem
annast rekstur hússins og
veitingastaðarins, sem líklega
á hvergi sinn líka. Perlan er
stærri og glæsilegri en staðir
sem maður hefur séð erlendis
og kallast mega sambærilegir
vegna þess að þeir snúast
með gesti sína innanborðs.
Það sem fyrst vekur athygli,
þegar fólk kemur inn í þetta
makalausa hús í fyrsta sinn,
er stærðin, lofthæðin, fram-
andi gróður og óvenjulegar
víddir, þessi stóri geimur.
Matargestir halda með lyft-
unni beinustu leið upp á
fimmtu hæð þar sem veitinga-
staðnum er haganlega fyrir
komið en hæðin er í raun þrí-
skipt. Fyrst er það kjarninn
sem sjálfur veitingastaðurinn
snýst um í orðsins fyllstu
merkingu. í kjarnanum er mót-
taka, fatahengi og eldhús, auk
þess sem barinn er byggður
ofan á hann að hluta til. í
kringum kjarnann og hjálminn,
sem ber gluggana og ytra
byrði byggingarinnar, snýst
kringlan, þar sem matargestir
sitja. Þeir upplifa því breyti-
lega útsýn frá borðum sínum
á báða bóga. Þegar þeir hefja
máltíðina eru þeir ef til vill
með flugvöllinn á aðra hönd
og móttökuna á hina. Þegar
þeim verður litið upp á milli
rétta hafa þeir Háteigskirkju
og Esjuna til annarrar handar
og eldhúsvegginn til hinnar
með barinn trónandi ofan á.
ÚT AF FYRIR SIG
í GÓÐU OLNBOGARÝMI
Margir kunna að halda að
Perlan sé fremur staður fyrir
brúðkaupsveislur og þá sem
fara út að borða margir sam-
an, staður fjöldans en ekki
ástfangna parsins sem ætlar
að gera sór dagamun. Vissu-