Vikan - 25.03.1993, Blaðsíða 21
Danny DeVito stendur hér viö hlið eftirlikingar af þessari mögnuöu „fígúru", Mörgæsinni, sem hann lék í Batman Returns. Aö baki grillir í
Jack vin hans Nicholson í gervi Jimmy Hoffa.
Aö loknum fundinum meö Danny DeVito
hitti hann félaga sinn Jack Nicholson
augnablik svo aö unnt væri aö hafa þá
saman á mynd, en HJS haföi haft viö
hann einkaviðtal fyrir Samúel fyrr þennan
sama dag. Nicholson: „Þegar tökur voru aö
hefjast fyrsta daginn tók ég sisvona utan
um axlir hans og þrýsti honum aö mér. Þá
sagöi hann: „Jack, lofaöu mér einu - ekki
vera of „röff“ gagnvart mér í myndinni því
þaö hefur margsannað sig, aö áhorfendur
hætta aö þola þá sem fara illa meö mig.“
um hann vitað að hann ætlaði á fund. Eftir
stendur orðrómurinn um spillingu verkalýðs-
leiðtogans og grunur um náin samskipti hans
við meðlimi mafíunnar.
í tilefni af sýningu myndarinnar hér á landi
var tíðindamaður Vikunnar staddur i París fyr-
ir skömmu þar sem hann hitti Danny DeVito,
leikstjóra og leikara, en hann er íslenskum
kvikmyndahúsagestum að góðu kunnur fyrir
eflirminnilegan leik sinn í fjölmörgum kvik-
myndum sem vinsælar hafa verið hér á landi.
Fundarstaður okkar var Hotel Athenee, eitt
praktugasta hótel í gjörvallri Evrópu. Þegar ég
kom þangað gangandi úr metrónum eða neð-
anjarðarlestinni, sem stoppar þar rétt hjá, var
röð af Rollsum og Jagúörum framan við bygg-
inguna, dyraverðir með pípuhatta og í ökkla-
síðum frökkum fylgdust með umferð fólks.
Danny DeVito var nýkominn frá því að
kynna mynd sína um Hoffa á kvikmyndahátíð-
inni í Berlín en hafði stutla viðdvöl í París
áður en hann hélt vestur um haf á ný.
Við hittumst í viðhafnarmiklu fundarherbergi
á jarðhæð, kampavín í glösum og skrautlegar
kökur og kex í skálum. Hann situr við eitt
borðið, alúðlegur á svipinn með spenntar
greipar ofan á borðinu. Hann stendur upp
þegar ég kem inn í herbergið og gengur nokk-
ur skref á móti mér. Hann er frjálslega klædd-
ur, í dökkum buxum og rauðri bómullarskyrtu
fráhnepptri í hálsinn. „Komdu sæll, herra
Sveinsson, og vertu velkominn. Ég er alveg
hissa að þú skulir hafa lagt á þig alla þessa
vegalengd til þess að hitta mig.“ Ég segi hon-
um að ég hafi rætt við Jack Nicholson
skömmu áður og ýmislegt fleira sé svo sem á
döfinni. „Það er gott,“ segir hann. „Það er
alltaf skynsamlegt að geta slegið tvær flugur í
einu höggi.“
- En það er einmitt það sem þú gerðir með
því að leika í myndinni um Hoffa og leikstýra
henni jafnframt. Er slíkt ekki svolítið erfitt?
„Það er stórkostlegt.“ DeVito hlær sínum
tístandi og smitandi hlátri. „Ég naut þess fram
í fingurgóma, ef ég á að segja eins og er. Það
er skemmtileg tilfinning að vera beggja vegna
myndavélarinnar þó að vissulega komi þær
stundir að ég sem leikstjóri þoli ekki leikarann
DeVito og öfugt. Skemmtilegast finnst mér þó
að vinna með góðu fólki. Mér þykir spennandi
að vera leikstjóri og leikari í senn og hafa á til-
finningunni að ég sé bæði að leika og stjórna
mjög vel það augnablikið. Þegar maður er
síðan að leika við hliðina á Jack finnst mér
það einfaldlega svo gefandi. Oft hugsa ég
með mér - ansi er þetta gott hjá okkur, þetta
ættum við að endurtaka, þetta var frábært!“
Og aftur skellir DeVito upp úr.
„Mér finnst þessi staða mjög heillandi
vegna þess meðal annars að maður þarf að
helga sig verkefninu algjörlega. Maður þarf að
setja sig inn í alla hluti, smáa sem stóra, og
það gerir leikstjórnina krefjandi en afar heill-
andi. Ekkert má fara framhjá leikstjóranum og
honum eru allir hlutir viðkomandi, eins og tón-
listin til dæmis.
6.TBL. 1993 VIKAN 21
TEXTI: HJALTIJÓN SVEINSSON / UÓSM.: HJS O.FL.