Vikan - 25.03.1993, Blaðsíða 32
PIXIES HÆTTIR!
Boston-rokksveitin Pixies er
hætt. Söngvarinn Black
Francis (upprunalegt nafn:
Charles Michael Kitteridge
Thompson IV) er að smíða
sólóplötu sem að sögn kunn-
ugra verður mun poppaðri og
jafnvel „bítluð" miðað við plöt-
ur Pixies sem urðu alls fimm
talsins: Come on Pilagrim,
▲ Charles
Michael
Kitteridge
Thompson
IV eða
Frank
Black/
Black
Francis.
Hættur í
Pixies
sem heyra
nú sög-
unni til.
Surfer Rosa, Doolittle, Bossa-
nova og Trompe Le Monde.
Allt eru þetta prýðisgóðar
rokkplötur og var Pixies ein á-
hrifamesta sveit sem lengi
hefur komið frá Boston. Plata
Frank Black, sem er nýja
nafnið hans Charles, mun
bera það nafn. Frumlegt!
Um ástæður þess að Pixies
hætti sagði Black Franc-
is/Frank Black að ekki hefðu
verið neinar illdeilur í gangi
innan hljómsveitarinnar heldur
liti hann þannig á málin að
þetta væri eins og þegar kvik-
myndaleikstjóri, sem hefði
gert margar kúrekamyndir,
yrði leiður á því og vildi gera
öðruvísi myndir.
Minning Pixies lifir, það er
víst.
DJAGGERINN
f SÓLÓSTUDI
Maður er nefndur Mick
Jagger. Hljómsveit er nefnd
Rolling Stones. Þau eru „par“
en þar eru innanbúðarvand-
ræði þessa dagana vegna
snögglegra uppgjafar bassa-
leikarans Bill Wyman sem var
orðinn þreyttur og skyldi eng-
an undra. Bassaleikara skal
þó finna, hvort sem hann
verður karlkyns eða kven-
kyns. Rollingarnir skulu rúlla!
Á meðan þessu fer fram
birtist þriðja sólóskífa Djag-
gersins og ber hún heitið
Wandering Spirit. (Uppá-
stungur um þýðingu: Flökku-
andinn, Flökku(vín)andinn,
Ráfandi draugur (indíánamál),
Reikandi andi (líka indíána-
mál), Rásandi andi, Rásandi
sprútt!) Fyrri plötur kappans,
She’s The Boss (1987) og
Primitive Cool (1985), þóttu
engin meistaraverk en
kannski tekst honum betur
Djaggerinn getur bæöi veriö
krúttlegur og ótrúlega
ómyndarlegur.
upp á þessari. Meðal sam-
starfsmanna Mikkarans má
nefna gamla (trommu)húða-
jálkinn Jim Keltner, blásarann
góða Courtney Pine, slag-
verksleikarann Lenny Castro
og annan Lenny, Kravitz, sem
var sjálfur að gefa út plötuna
Are You Gonna Go My Way.
KLASSÍSKUR COSTELLO
Declan MacManus er Skoti,
en hvaða Skoti? Jú, við þekkj-
um hann betur sem Elvis
Costello. Hann var að gefa út
plötu eins og fleiri og kallar
hana The Juliet Letters. Titill-
inn vísar til hins fræga leikrits
eftir Shakespeare, Rómeó og
Júlíu, en hugmyndina að plöt-
unni fékk Elvis/Declan þegar
hann frétti að prófessor nokk-
ur ( Verona á Ítalíu tæki að
sér að svara bréfum sem Júl-
íu bærust! Slík bréf urðu hon-
um síðan innblástur við gerð
textanna og tónlistarinnar
sem, vel á minnst, er leikin af
strengjakvartettinum The
Brodsky Quartet. Sá hefur
starfað í tuttugu ár og sérhæft
sig í kammermúsík, sérstak-
lega eftir Dmitri Shostakovich.
Og um útkomuna segir
Costello: „Platan er hvorki
klassísk né poppuð. Þetta er
plata með nokkrum lögum eft-
ir okkur og þau eru þarna til
þess að hlusta á þau. Þetta er
ekki plata sem fólk hefði átt
að búast við eða ætti að hafa
gert sér einhverjar hugmyndir
um fyrirfram." Þess má geta
að Elvis Costello semur tvö
ög með Paul McCartney á
aýjustu plötu hans, Off the
Ground.
ÍSMOLINN
OG RÁNDÝRIÐ
Rapptónlist er eins konar al-
heimstungumál svartra. í
rappinu segja flytjendur meðal
annars frá ísköldum og oftar
en ekki grimmum veruleika
sem svartir, sérstakiega í
Bandaríkjunum, búa við.
Rapptónlistin er líka banda-
rískt fyrirbæri sem og aðal-
rapparinn um þessar mundir,
ísmolinn eða lce Cube (hans
rétta nafn er O’Shea Jack-
son). Ice Cube, sem er aðeins
23 ára gamall, var einn af
stofnendum alræmdrar rapp-
lce Cube. Vinsælasti og einn haróasti rapparinn um þessar
mundir.
Elvis Costello/Declan MacManus. Er ekki meö strengi í
skrokknum eftir samstarfiö viö strengjakvartettinn The
Brodsky Quartet.
32VIKAN 6.TBL.1993