Vikan - 25.03.1993, Page 22
Leikstjórí og leikari í senn. „Þaö er skemmtileg tilfinning aö vera beggja vegna myndavel-
arinnar þó aö vissulega komi þær stundir aö ég sem leikstjóri þoli ekki leikarann DeVito og
öfugt.“
DeVito í hlutverki Bobby Ciaro, fylgismannis
Jimmy Hoffa í blíöu og stríöu.
Ég haföi líka mjög gaman af aö leika í
myndinni, ég fór þar meö heillandi hlutverk aö
mínum dómi. Ég leik Bobby Ciaro en persóna
hans er samsuða úr nokkrum samslarfs-
mönnum Hoffa. Þegar ég hafði lesiö handritið
yfir í fyrsta sinn var ég sannfærður um aö á
þessu hlutverki vildi ég fá aö spreyta mig.“
Danny DeVito kemur á óvart fyrir þaö hvaö
hann er blátt áfram og eðlilegur. Hann geislar
af lífsgleði og viömót hans er meö þeim hætti
aö maður gæti strax treyst honum fyrir lífi
sínu. Hann er afar smávaxinn en maöur hætt-
ir aö taka eftir því eftir að hafa spjallað viö
hann í stutta stund. Hann hefur sterkan per-
sónuleika og þá útgeislun sem þarf til þess aö
gera hann að stórmenni á hvíta tjaldinu.
ÆTLAÐI AÐ LÆRA FÖRDUN
DeVito starfaöi viö garðyrkju fyrst eftir að
hann lauk gagnfræöaskóla. Aö því kom síöan
aö hann fór aö starfa sem hárgreiðslusveinn
á hárgreiðslustofu systur sinnar í New Jersey.
Um þær mundir fékk hann einnig áhuga á
föröun og sótti um skólavist í New York
Academy of Dramatic Arts í New York til þess
að nema leikhús- og kvikmyndaförðun. Hann
komst inn í skólann og námiö hófst. Auk förö-
unarinnar þurfti hann aö sækja tíma í ýmsum
leikhúsfræðum og fyrr en varöi var hann far-
inn aö einblína á leiklistina - hann vildi verða
leikari. Aö loknu leiklistarnáminu lék DeVito í
nokkrum leikhúsverkum en kvikmyndirnar
heilluðu hann meira. Hann stefndi hátt en
mátti þola atvinnuleysi um skeið.
Árið 1970 tók hann þátt í sviðsútgáfunni á
leikritinu One Flew Over the Cuckoo’s Nest
og lék þar hina eftirminnilegu persónu Martini,
sem hann síðan endurtók í sjálfri kvikmynd-
inni. Á meðan hann tók þátt í ööru sviðsverki,
The Shrinking Bride, kynntist hann leikkon-
unni Rheu Perlman sem hafði verið í hópi á-
heyrenda eitt kvöld. Innan tveggja vikna voru
þau farin aö búa saman en ellefu árum síöar
giftu þau sig loksins og nú eiga þau saman
þrjár dætur, fimm, sjö og níu ára. Þegar hér
var komið sögu voru þau bæöi orðin vel
þekktir leikarar úr sjónvarpsmyndaflokkum,
hann sem aðalleikarinn í Taxi og hún í
Cheers sem betur er þekkt undir heitinu
Staupasteinn hér á landi og hefur veriö sýnt
viö góöan orðstír.
Eftir aö hann sló í gegn hefur honum ævin-
lega vegnaö vel á hvíta tjaldinu, hvort sem
hann hefur veriö fyrir framan eða aftan töku-
vélinu. Má í því sambandi nefna myndir eins
og Romancing the Stone, Jewel of the Nile,
Wise Guys, Ruthless People, Tin Man, Twins,
Other People's Money og Batman Returns.
Myndir þær sem hann hefur leikstýrt og um
leiö fariö meö stórt hlutverk í eru Throw
Momma from the Train og The War of the
Roses auk Hoffa sem nú hefur bæst á listann.
VARÐ AÐ FÁ JACK Í LIDIÐ
- Hvers vegna valdir þú Jack Nicholson til aö
leika Hoffa?
„Viö Jack unnum fyrst saman þegar við lék-
um í One Flew Over the Cuckoo’s Nest. Þá
Jimmy Hoffa var meðal annars sakaóur um
aó eíga viðskipti vió mafíuna og taka þátt í
skipulagöri glæpastarfsemi. Hér eru þeir
Danny DeVito og Armand Assante í
hlutverkum Bobby Ciaro og mafíuforingjans
Carol D'Allesandro.
var fullyrt aö hann væri einmitt rétti maðurinn
til aö leika McMurphy. Ég held aö hann sé
líka fæddur til aö leika Jimmy Hoffa.
Við höfum starfað saman í fjórum myndum,
Cuckoo’s Nest, Goin' South og nú síðast í
Hoffa. Eftir aö við lékum fyrst saman mælti
Jack með mér viö alla leikstjóra sem hann
vann meö eftir það, hann er traustur vinur.
Jack er svo ótrúlega likur Hoffa á marga
lund og þess vegna vissi ég aö hann yröi
mjög trúverðugur í hlutverkinu. Sjálfur er hann
mjög trúr vinum sínum og starfi en þaö ein-
kenndi einmitt Hoffa mest. Jack er meira aö
segja af hollensk-írskum ættum eins og hann.
Þaö gekk þess vegna allt upp, ég varö aö fá
Jack í lið með mér.
Við höfum verið góöir vinir síöan 1974 þeg-
ar viö lékum saman f Cockoo’s Nest. Það er
gaman aö segja frá því aö viö eru fæddir og
aldir upp í nágrenni hvor viö annan í New
Jersey. Reyndar var mikill rígur á milli hverf-
anna, sem liggja hlið viö hliö, og þess vegna
fengum viö ekki tækifæri til aö kynnast fyrr,
auk þess sem ég er talsvert yngri en hann,
fæddur 1944 en hann er fæddur 1938.“
DeVito brosir út undir eyru. „Ég haföi þó fylgst
meö Jack frá því ég var unglingur af því aö
náfrænka mín og systir hans þekktust og því
kom hann oft til tals. Þaö var stundum minnst
á þennan unga mann sem var að gera þaö
gott í kvikmyndaborginni Hollywood.
Mér fannst mjög skemmtilegt að vinna að
Hoffa og ennþá ánægjulegra vegna þess aö
Jack var meö í öllu dæminu. Þaö er alltaf
traust fyrir leikstjóra aö vera sannfærður um
aö vera meö rétta leikarann í hlutverkinu sem
skiptir mestu máli. Þaö er líka svo uppörvandi
aö vinna meö manni sem hefur alla þessa
þekkingu og hæfileika, auk þess sem hann
gjörsamlega hellir sér í verkið og kafar ofan í
þersónuna sem hann leikur. Hann vinnur
mjög mikiö og er meö hugann viö leikinn allan
sólarhringinn meðan á tökum stendur. Þess
má samt til gamans geta að Jack gaf sér tíma
til aö fara á leiki uppáhaldskörfuboltaliðsins
síns, LA Lakers, f NBA deildinni meðan á
upptökum stóð hjá okkur í Chicaco og Detroit.
Ég slóst auðvitað í för meö honum, það var
frábært."
KOM Á ÓVART
- Þetta er stærsta verkefniö sem þú hefur tek-
ist á hendur fram af þessu, varstu ekkert
smeykur viö þaö?
„Fyrir utan allt efnið sem við lásum og
kynntum okkur um Hoffa skoðuðum viö heil
ósköp af myndum af honum, úr dagblööum,
tímaritum og sjónvarpi, til þess aö geta gert
okkur sem gleggsta grein fyrir hvernig hann
hafi litið út og hvaöa mann hann haföi aö
geyma. Eitt sinn sagöi Jack: „Þessi mynd er
tekin áöur en hann fór í fangelsið og þessi eft-
ir að hann kom út. Sjáöu framtennurnar, þær
eru öðruvísi. Við tókum eftir því aö ein tönnin
haföi svolítið skagaö út úr munninum og setti
svip á hann. Samkvæmt myndunum lét hann
gera viö tönnina á meðan hann var í fangels-
inu. Jack vildi líkjast honum sem mest og því
var bætt svolitlu viö nefið á honum um leið og
tönninni var komiö fyrir.
Ég hef aldrei tekist á hendur svo stórt verk-
efni fyrr og aldrei veriö bundinn yfir einni kvik-
mynd svo lengi. Ég fékk handritið aö Hoffa í
hendurnar fyrir rúmum þremur árum og mynd-
in hefur ekki skiliö viö mig enn. Raunin er líka
22VIKAN 6. TBL. 1993