Vikan


Vikan - 25.03.1993, Page 29

Vikan - 25.03.1993, Page 29
Saf'apressa I ENWOOD Chef er kostagripur lagar innan hverrar deildar akademíunnar kjósa um fimm aðila sem þeir tilnefna úr eigin röðum. Samtökin í heild sinni ákveða síðan hvaða myndir koma til greina í valinu um bestu myndina. Sérstakar nefndir sjá um útnefningu á afburðamönnum í ýmsum tæknilegum greinum og á þeim myndum sem þykja skara fram úr af kvikmyndum á öðru tungumáli en ensku. Það hefur vakið athygli hér í kvikmyndaborginni að ó- venju margar af kvikmyndun- um, sem eru tilnefndar í ár, eru ekki framleiddar af stóru kvikmyndagerðarfyrirtækjun- um í Hollywood heldur sjálf- stæðum framleiðendum með ódýrari framleiðslu. Margir leiða að því getur að ástæðan sé sú að lítið sé um nýbreytni f Hollywood og meðal- mennskan sé þar allsráðandi. Vandamálið er að sumra áliti ekki síst að kvikmyndirnar hér eru orðnar svo dýrar í fram- leiðslu að svigrúmið til áhættu og ævintýramennsku er úr sögunni. Miramax kvikmyndafyrir- tækið hefur forustuna í tilnefn- ingum „litlu“ fyrirtækjanna með ellefu tilnefningar, sex fyrir The Crying Game eins og áður sagði og þrjár fyrir En- chanted April sem segir frá dvöl fjögurra kvenna á sveita- setri við Miðjarðarhafið. Þriðja myndin frá fyrirtækinu, Passion Fish, er tilnefnd fyrir besta handritið og aðalhlut- verkið sem er í höndum Mary McDonnell. Forstöðumaður Miramax, Harvey Weinstein, sagði að hann teldi þetta vera upphafið að tímabærri upp- stokkun í sögu óskarsverð- launanna og kvikmyndaiðnað- arins í heild. Hann bætti því við að hann væri þeirrar skoð- unar að genginn væri í garð uppskerutími þess starfs sem hófst með myndunum Sex, Lies and Videotape og My Left Food. Hingað til hefur engin kvik- mynd sem framleidd er af öðr- um en einhverjum Hollywood- risanna verið kjörin besta myndin. Helstu fulltrúar þeirra í ár, með fjórar tilnefningar hvor, eru A Few Good Men og Scent of a Woman sem hefur komið mörgum á óvart með vinsældum sfnum. A Few Good Men stóð ekki fylli- lega undir þeim vonum sem við hana voru bundnar þegar tilnefningarnar voru lesnar í húsi akademíunnar í Beverly Hills að viðstöddum blaða- manni Vikunnar og öðrum fréttamönnum. Það kom á óvart að hvorki var Rob Reiner nefndur fyrir leikstjórn né Tom Cruise fyrir aðalhlut- verkið í myndinni. Menn spyrja sjálfa sig hvort aka- demían haldi að myndin hafi leikstýrt sér sjálf en mörgum finnst þetta vera endurtekning frá því í fyrra þegar litið var framhjá Barbra Streisand, leikstjóra Prince of Tides. Mynd Clints Eastwood, Unforgiven, nýtur nokkurrar sérstöðu meðal mynda sem tilnefndar eru sem best leiknu kvikmyndir ársins 1992. Myndin tilheyrir framleiðslu litlu fyrirtækjanna ekki síður en risanna þótt hún sé fram- leidd undir merki Warner Brothers. Clint var gefinn laus taumurinn við gerð myndar- innar og hann gat leyft sér að fara eigin leiðir, burtséð frá öllum formúlum og hagnaðar- sjónarmiðum. Árangurinn lét heldur ekki á sér standa og myndin hlaut níu tilnefningar eins og kunnugt er og það í öllum helstu flokkunum. Fyrirtækið Buena Vista, sem sér um dreifingu á kvik- myndum framleiddum undir hatti Walt Disney, hvort sem þær eru markaðssettar undir þeim merkjum eða heimfærð- ar á Hollywood Pictures eða Touchstone Pictures, bítur í það súra epli eða hljóta að- eins fimm tilnefningar og allar fyrir teiknimyndina um Aladd- ín og töfralampann. Gamli ris- inn 20th Century Fox er held- ur ekki í toppbaráttunni að þessu sinni og varð að láta sér nægja tvær tilnefningar fyrir Hoffa og jafnmargar fyrir Toys. Setjum okkur nú í spor völvunnar góðu sem segir til um heimsviðburði fyrir hönd Vikunnar og athugum hvort snefil af spádómsgáfu hennar sé að finna hjá fulltrúa blaðs- ins í kvikmyndaborginni. The Crying Game er mest umtalaða myndin hér vestra af leiknu kvikmyndunum sem eru tilnefndar til óskarsverð- launanna að þessu sinni. Myndin fór rólega af stað þannig að tilnefningin sjálf kom flestum í opna skjöldu. Margir sjá hana sem undir- málsaðilann í samkeppninni og vona að hún skjóti risunum ref fyrir rass. Myndin hefur það umfram keppinauta sína Fáanlegir aukahlutir: Innifaiið í verdi: ;• m □ Blandari □ Þeytari □ Grænmetisrifjárn □ Hnoðari ' i □ Hakkavél □ Hrærari j|"fl '. ' r~V □ Safapressa 11 .-■ . •*' □ Kartöíluílysjari Verð Kr. 21.575. - stgr. HEKLA v «* V v-v , □ o.n. LAUGAVEGI 174 S. 695500/695550 * ..,**• *Tv\ v.'e, ■ v. ”2* ' ' 'S> '“ 'V £'• f » I 1 *.ij. 31 V '.~J!ÍSs 1 ■ Æ •* * Blandari Grænmctisrifjárn Hakkavél Kartöfluflysjari

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.