Vikan


Vikan - 25.03.1993, Side 45

Vikan - 25.03.1993, Side 45
JONAS JONASSON SKRIFAR NAUT i FLAGI KANNSKI Eg skrapp úr kyrrðinni við sjóinn suöur til Reykjavíkur tii að bursta skóna mína. Ég hef getið þess að ég het um tíma setið í góðu yfirlæti í litlu sjáv- arþorpi, laus við eril og þras, framapot pg andstyggð sem því fylgir. Ég var varla kominn í borgina okkar allra þegar ég gekk fram á eldri mann en ég, sem var á leiðinni ekkert sér- stakt og ég spurði hann hvort ég mætti verða honum sam- ferða þangað. Mér til einhverr- ar undrunar sagðist hann stundum lesa pistlana mína í Vikunni og ég gladdist fyrir hennar hönd. „Þú ert alltof mildur," sagði þessi gamli maður og horfði dálítiö á stelpurnar sem komu á móti okkur í fallegum flokk- um. „Af hverju notarðu ekki plássið sem þú hefur til að taka á málum?" Ég svaraði ekki strax, átti ekkert svar en varð að játa að maðurinn hafði rétt fyrir sér, ég er ekki náttúraður fyrir has- ar á prenti. Ég er aldrei að leysa neitt þegar óg skrifa, óg er alls ekki að bjarga heimin- um, til þess eru svo gríðarlega margir kallaðir, ég er alls ekki að tukta menn því ég finn dá- litið til með þeim sem þyrfti verulega að tukta. Meðan við gengum áfram áleiðis að engu sérstöku hugsaði ég um ýmsa þá menn sem ég kannast við og eru ó- forbetranlegir sjálfsdýrkendur, mannhundar í allri framkomu, starfa með fólki og fyrirlíta það, ráða framtíö margra sem í angist þora ekki að kvarta, eru meðhöndlaðir eins og tafl- menn, sérlega hannaðir fyrir ýmsa þá sem sitja í góðum stöðum, með öll þessi völd að velta sér upp úr og kunna alls ekki að fara með þau. Þetta litla land okkar gæti verið griðastaður góðleikans, þess í stað er háð hér per- sónuleg sjálfsdýrkun manna sem oft hafa alls ekki hæfileik- ann til að stjórna, eru kannski sæmilega hannaðir fyrir sitt lít- ið annað, en fyrir algjöra blindu þeirra sem ráða þá til forystustarfa eru þeir í sand- kassaleik, sitja með saman- bitnar listrænar varir og hugsa látlaust um einhverja leiki með litlu peðin sín. Ég hef horft á ágæta menn setta til hliðar, gerða valdalitla allt í einu því þeir tilheyra ekki áhangendum nýs yfirmanns, eru ekki samstíga í þeirri ó- geðfelldu pólitík sem er rekin á þessu rassblauta landi, sem velur og hafnar eftir litrófi stjórnmála en ekki manna- gæðum. Ég sagði við samferða- manninn að ég gæti svo sem tekiö upp á þeim skramba að kæfa góðmennskuna sem reynt var að troða í mig i bernsku og ég hef haft í heiðri. „Því gerir þú það ekki, mannskratti?“ sagði sá gamli. „Maður nennir ekki aö lesa alla þessa þlíðu sem frá þér kemur. Farðu að brýna hornin á þér, ertu ekki naut? Það er eins og mig minni þaö. Farðu í flagið fræga.“ Við komum að gatnamót- um. Hann sagðist ekki nenna lengra, rétti mér sinabera hönd, fingralanga í bestu merkingu, horfði á mig og hvarmar hans voru rauðir og augun vatnsblá eins og lón í lygnu. Ég var oröinn áttavilltur þegar ég hafð' hann ekki lengur til að leiða mig áfram. Ég nam staðar rétt til að átta mig á því hvar ég væri stadd- ur í tilverunni. Framhjá streymdi mannelfan, boðótt stundum og ég hugsaði um alla þessa fiska sem syntu þar, fiska sem voru í augna- blikinu frjálsir en einhvers staöar beið þeirra veiöimaöur og myndi fyrr eða síðar húkka í þá. Það sprungu nöfn ýmissa manna í höföi mér. Menn, sem stóðu framarlega í menn- ingunni, byltu sér þar aö hætti hvala, blésu fúlu fram- kvæmdavatni út í fagurt loftið og sungu sjálfum sér dýrð en peðunum í fjöruborðinu kvala- söng. Vikan er ekki hætt að koma út. Viö sjáum hvað setur. □ DANNY DEVITO Frh afbis 23 Kennedy stóð fyrir sem dómsmálaráðherra í forsetatíð bróður síns, Johns F. Hann er náð- aður í tíö Nixons forseta sex árum síðar. Hoffa kenndi fyrrum félögum sínum um það hversu lengi hann þurfti aö sitja í fangelsi og um að hafa útilokað sig frá þátttöku í sínum gömlu samtökum næstu tíu árin. Við rannsóknir okkar komumst við að því að Hoffa studdi Nixon vegna þess að hann hélt því fram að hann væri eini forsetinn sem ekki hefði lagst gegn löglegri starfsemi verkalýðsfé- laga eða reynt aö hafa puttana í því sem þau gerðu. Hann sagði að allir forsetar úr röðum demókrata hefðu lagst gegn þeim en ekki repúblikanar. Hoffa studdi alla þá einstaklinga og hvern þann málstað sem gæti stuðlað að því aö menn hans bæru meira úr býtum. Hann var hugsjónamaður.“ REYNI AÐ GERA MITT BESTA - Þykir þér vænna um eina mynd þína fremur enaðra? „Sérhver sú mynd sem ég á hlut að er mér jafnmikilvæg og hinar, hvort sem ég stjórna henni, leik í henni stórt eða lítið hlutverk eða geri hvort tveggja. Þetta er eins og með börnin manns. Ef þriggja barna faðir segir til dæmis að sér þyki vænna um yngsta barnið en hin tvö þá er eitthvað ekki í lagi með hann, gott foreldri gerir alls ekki upp á milli barna sinna. í hvert sinn sem ég vinn að mynd tengist ég henni mjög náið á meðan, án tillits til þess hvort ég hef unnið við hana síðustu tvö árin eða tvo mánuðina. Þær skipta mig allar jafnmiklu máli. Ég get nefnt sem dæmi myndina The World's Greatest Lover. Ég sat í stúdíóstólnum mínum hjá Fox f tvær vikur á meðan tökur fóru þar fram þangað til fólk hætti að taka eftir mér. En þegar loksins kom að því að ég flytti þær tvær setningar sem mér bar lagði ég mig jafnmikið fram og ef ég hefði verið að leika aðalhlutverk- ið. Ég reyni alltaf að gera mitt besta." - Það eru ekki nema örfá ár síðan þú leik- stýrðir þinni fyrstu mynd. Hefur það komið þér á óvart hve frami þinn er orðinn mikill á þessu sviði í Hollywood? „Hvort það komi mér á óvart? Ég veit það ekki.“ DeVito hlær góðlátlega. „Ég var alltaf sannfæröur um að ég gæti þetta og nú vona ég að mér hafi tekist betur upp en síðast. Það er gott til þess að vita að fólk treysti manni til að fást við hluti sem gera miklar kröfur til manns, kröfur sem heimta af manni alla þá kunnáttu og krafta sem maður býr yfir. Það er vissulega góð tilfinning. Ég vona að ég hafi verið traustsins verður." - Hvert verður næsta verkefni þitt? „Ég veit það ekki ennþá. Nú ætla ég að taka mér svolítið frí áður en ég ákveð í hvaða mynd ég tek næst þátt sem leikari eða leikstjóri. Ég býst við að taka mér góðan tíma til að lesa yfir handrit og ýmislegt sem liggur fyrir en ég hef ekki tekið ákvöröun um hvert veröur næsta verkefni mitt. Ef ég tek að mér hlutverk vil auðvitað halda áfram að vinna með góöum leikstjórum og góðu fólki. Ef Jack kæmi til mín og segði að ég væri upplagður í ákveðið hlutverk í mynd sem hann stjórnaði myndi ég auðvitað strax taka boðinu." DeVito hlær dátt. „í augnablikinu er samt ekkert sérstakt á dagskránni, ég læt það bíða um sinn.“ □ 6. TBL. 1993 VIKAN 45

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.