Vikan - 25.03.1993, Blaðsíða 50
ÍSTEX HF.
Stærö: 115 x 185 cm. í þessu
teppi eru 198 dúllur (11 á
Preidd og 18 á lengd).
Efni: Flos og Flórafrá
Heklunál nr. 4 1/2.
Heklfesta: Ein dúlla, sem
samanstendur af fjórum um-
feröum, er 11 cm á kant.
HEKLAÐFERÐIR:
Loftlykkjur = •
Bandinu er Prugöið um nálina
sem síðan er dregiö í gegnum
lykkjuna á nálinni.
Stuölar = I
Bandinu er brugöiö um nálina
áöur en henni er stungið í
lykkju næstu umferðar á und-
an, bandið dregið í gegn,
bandinu brugöiö um nálina og
dregiö gegnum 2 af 3 lykkjum
á nálinni, brugöiö enn um nál-
ina og dregið gegnum 2 lykkj-
ur.
Keðjulykkja =)
Nálinni er stungið f lykkju og
bandiö dregið í gegn og áfram
gegnum lykkjuna á nálinni.
Leiðbeiningar í táknum
'C\\r w/* \ i/ ’wri’
• zrjTll•
C^T/í\!Vi\7:^"
~:./!\. /J\ ./l\.:~=
:./J\./ll./l\./l\.:
• = loftlykkja
I = stuðull
) = keöjulykkja
LITAVAL
Til þess að voöin veröi ekki of
óróleg er gott aö hafa einn
grunnlit og hafa hann sem
ystu umferðina (4. umferð) á
hverri dúllu. í þessari voö er
svipaður litur einnig haföur í
miöju hverrar dúllu (1. um-
ferö). Síðan er gaman aö
spreyta sig á margvíslegri lita-
samsetningu.
Fitjiö upp 6 loftlykkjur, teng-
iö í hring meö keðjulykkju.
1. umferð: 3 loftlykkjur, 2
stuðlar utan um hringinn, * 3
loftlykkjur (horn), 3 stuðlar
utan um hringinn, endurtakiö
frá * tvisvar, 3 loftlykkjur og
tengiö í efstu loftlykkju í byrjun
umferöar meö keöjulykkju.
Slítið frá og dragið endann í
gegn.
2. umferð: Skiptið um lit.
Festiö í eitt hornið meö keöju-
lykkju, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í
horniö, * 1 loftlykkja, 3 stuölar
um næsta horn, 3 loftlykkjur, 3
stuðlar um sama horn, endur-
takið frá * tvisvar, 1 loftlykkja,
3 stuölar í fyrsta hornið, 3 loft-
lykkjur, keðjulykkja í efstu loft-
lykkju í byrjun umferöar. Slítiö
frá og dragið endann í gegn.
3. umferð: Skiptiö um lit.
Festið í eitt hornið meö keðju-
lykkju, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í
horniö, * 1 loftlykkja, 3 stuölar
í næstu loftlykkju, 3 stuölar, 3
loftlykkjur og 3 stuðlar í næsta
horn, endurtakið frá * tvisvar,
1 loftlykkja, 3 stuölar f fyrsta
hornið, 3 loftlykkjur, tengiö í
efstu loftlykkju í byrjun um-
ferðar meö keðjulykkju. Slítiö
frá og dragið endann í gegn.
4. umferð: Skiptið um lit
(nú með grunnlit). Festið eins
og fyrr í eitt hornið, heklið
hornin eins og bætiö viö
stuðlahóp (3 stuölar) í loft-
lykkjur á milli stuðlahópa.
Hekliö þannig 1 loftlykkju á
milli stuölahópa en 3 loftlykkj-
ur í hornum. Þannig má
stækka hverja dúllu og bæta
viö umferöum aö vild.
Frágangur
Fallegast er aö þvo dúllurnar
áöur en þær eru saumaöar
saman. Þvoiö úr ullarsápu og
skolið vel. Leggið slétt til þerr-
is.
Saumaö saman: Leggiö
dúllurnar meö rétturnar sam-
an og varpið saman með
grunnlit, takiö í aftara bandiö í
ystu umferðinni.
Kantur: Heklið aö lokum
kant utan um allt teppiö
þannig: Heklið 2 umferðir af
stuölahópum, hafið 1 loftlykkju
á milli f hliöum en 3 loftlykkjur
í hornum. □