Vikan - 25.03.1993, Qupperneq 76
TEXTI: JÓHANN GUÐNIREYNISSON / UÓSM.: BRAGIÞÓR JÓSEFSSON
Miss Hawaiian Tropic keppnin afstaSin þetta áriÖ
\h- -
\triy r -' -f
ÞRJÁR ÍSLENSKAR
FEGURÐARDÍSIR
í GÓÐUM MÁLUM
Icelandic Models og Samú-
el eru nú aðilar að keppn-
inni Miss Hawaiian Tropic
sem fram fer árlega á
Daytona Beach í Flórída.
Þegar þetta er skrifað er
kynning á keppendum um titil-
inn 1994 að hefjast í nýjasta
hefti Samúels og þrjár stúlkur
nýkomnar að utan þar sem
þær tóku þátt í keppninni. Það
voru þær Laufey Bjarnadóttir,
forsfðustúlka Vikunnar 1991,
Nanna Guðbergs og Árný
Hlfn Hilmarsdóttir. Komu þær
í sjöunda himni til baka enda
allar með einhvers konar til-
boð upp á vasann og má
nefna að Ijósmyndari sem tek-
ur mjög mikið af myndum fyrir
tímaritin Vogue og
Cosmopolitan vill fá Nönnu til
sín í myndatökur.
Umboðsskrifstofur í Vín,
París og víðs vegar um
Bandaríkin sýndu stúlkunum
áhuga enda eru allir helstu
fjölmiðlar og módelfyrirtæki
með útsendara sína á staðn-
um.
Keppnin er tekin mjög al-
varlega og er lagt mikið upp
úr því að öllum kröfum um ör-
yggi keppenda sé fullnægt en
milli sjötíu og áttatíu stúlkur
keppa um titilinn. Til dæmis
gátu stúlkurnar okkar vart
hreyft legg eða lið nema ör-
yggisverðir væru nálægir. Þá
hlýtur keppnin mikla athygli í
Bandaríkjunum, ekki síst
vegna þess að um það leyti
sem hún er haldin eru vel-
flestir bandarískir mennta-
skólanemar í leyfi og þá er
stemmningin á ströndinni víst
eins og hún gerist best í bíó-
myndum.
Meðfylgjandi mynd er tekin
af þeim Laufeyju, Árnýju og
Nönnu þegar þær komu sam-
an til hófs á Litlu-ftalíu áður
en þær héldu til Flórída. Þar
klæddust þær síðkjólum frá
versluninni Sautján, kjólum
sem þær héldu íklæddar á vit
ævintýra sinna við suðurhöf.
Auk þess höfðu þær með sér
til viðbótar níu stórglæsilega
kjóla frá versluninni Plexiglas.
Förðun fyrir mydatöku
annaðist Kristín Stefánsdóttir
með snyrtivörum frá Gale
Hayman.
Eins og að framan greinir
verða keppendur um titilinn
1994 kynntir í Samúel og
verður fulltrúi íslands í keppn-
inni valinn í Perlunni í sept-
emberlok. Þá mun ein stúlkn-
anna ennfremur halda til
Mílanó til samstarfs við þekkt-
an Ijósmyndara. □
• •
DAGBLOÐUNUM
Fyrir fáum árum var fiski
pakkað inn í dagblöð - nú eru
það fyrirsætur sem eru um-
vafðar pappírnum. Anna
Toher datt niður á þessa
snyrtilegu lausn í keppni förð-
unarnema um daginn. Anna
keppti í Ijósmyndaförðun og
notaði Bryndísi nokkra Jóns-
dóttur til sköpunarinnar. Og
þegar spurt var að leikslokum
stóð Anna með pálmann í
höndunum. Þá liggur það sem
sagt Ijóst fyrir: Ekki henda
blöðunum, stelpur - þið gæt-
uð notað þau næst þegar þið
farið á ball.
Gott þarf
ekki að
vera dýrt
Eigendur Vero Moda, mæðgurnar Margrét Jónsdóttir og
Marta Árnadóttir.
Tískuverslunin Sonja,
sem flestir muna eftir við
Laugaveg 81 í höfuð-
borginni, hefur tekið stakka-
skiptum og er orðin hluti af
evrópskri verslunarkeðju.
Þann 11. mars síðastliðinn
var nafni verslunarinnar breytt
í Vero Moda en það er einmitt
heiti keðjunnar. Þessi breyting
er svar við breyttum aðstæð-
um í þjóðfélaginu og kröfu
neytenda um lækkun vöru-
verðs, til samræmis við það
sem gerist í öðrum Evrópu-
löndum.
Verslanir Vero Moda er að
finna víða í Evrópu og á Norð-
urlöndum eru þær geysivin-
sælar. Alls er að finna á þriðja
hundrað Vero Moda verslanir
[ Evrópu en þetta er sú fyrsta
sinnar tegundar á íslandi.
Vero Moda rekur eigin
verksmiðjur víða um heim en
flestar þeirra eru þó á Ítalíu.
Þarna er um að ræða tísku-
fatnað sem er bæði glæsileg-
ur og vandaður og - það sem
okkur íslendingum þykja góð-
ar fréttir - hann er á sérstak-
lega hagstæðu verði enda er
mottóið: Gott þarf ekki að
vera dýrt.
Með því að flytja allar vörur
inn frá einum framleiðanda og
í stórum sendingum stuðla
kaupmennirnir og mæðgurnar
Margrét Jónsdóttir og Marta
Árnadóttir að því að verð vör-
unnar verði sambærilegt við
það sem tíðkast í öðrum lönd-
um Evrópu.
Innréttingar verslunarinnar
eru frá Vero Moda og öll
hönnun og skipulag í sam-
ræmi við aðrar slíkar verslanir
( Evrópu. Margrét og Marta
segja takmarkið vera að bjóða
tískuvöru á viðráðanlegu verði
og bestu mögulega þjónustu í
notalegri verslun. □
76 VIKAN 6.TBL. 1993
TEXTI: HELGA MÖLLER / UQSM.: BRAGIÞ. JÓSEFSSON