Vikan - 25.03.1993, Blaðsíða 82
VOR- OG SUMARLlNAN
FRÁ JUVENA
Vor- og sumarlína Juvena á
sviði andlits- og augnfarða
nefnist í ár „myndir og minn-
ingar“ (Colour & Memories)
enda mun vera um að ræða
mikið samspil af þessu tvennu
sem gerir línuna svo spenn-
andi. Línan skiptist í þrjá meg-
inþætti: Inspiring Memories,
Mystical Memories og Excit-
ing Memories.
Litalínunni fylgir nýr „Cover
Stick'1, farðastautur til að hylja
bauga og galla í húðinni, og
er hann kallaður Concealer,
sá sem hylur.
BABY NATURALS -
KREM OG SNYRTI-
VÖRUR FYRIR BÖRN
Vörur þessar standast ströng-
ustu gæðakröfur sem foreldar
og vísindamenn nútímans
gera til þeirra hluta sem ætl-
aðir eru börnum sérstaklega. í
Baby Naturals vörunum eru
einungis hrein og upprunaleg
hráefni og þær státa meðal
annars af eftirfarandi: Þær eru
lausar við dýraefni, eru þróað-
ar án tilrauna á dýrum, þær
eru ofnæmisprófaðar, eru án
viðbættra litarefna, eru um-
hverfisvænar og eyðast af
sjálfdáðum í náttúrunni auk
þess sem þær eru í endurnýt-
anlegum umbúðum, þær inni-
halda extrakt af kamillu og
blaðlilju (Aloe Vera).
í Baby Naturals línunni er
að finna áburð, froðubað,
krem, púður, barnaolíu og
þurrkur.
NÝTT ILMVATN
FRÁ L'ALTRO
Nýja ilmvatnið frá L’altro
Borsalino er með margbrotn-
um ilmi sem inniheldur meðal
annars angan af greipaldini,
brasilískri myntu, liljum vallar-
ins, jasmínu og rós, muskolíu
og sandelviði. Þetta er hrff-
andi ilmur, ferskur og róman-
tískur í senn.
ETERNA '27, 24 STUNDA RAKAKREM
MEÐ ETERNAGEN
o
Nýlega kom á markað hér nýtt rakakrem í ETERNA 27 línunni
frá Revlon. Eterna 27, 24 stunda húðkremið hefur notið mikil-
la vinsælda hér á landi um langt árabil, en hér er á ferðinni
nýr valkostur fyrir þær sem kjósa léttara rakakrem.
Eterna 27, 24 stunda rakakremið má nota jafnt eitt sér,
undir farða og jafnvel yfir nóttina, ef húðin þarfnast ekki mik-
illar næringar. Til dæmis er gott að nota það að deginum en
Eterna 24 stunda kremið yfir nóttina.
Eterna 27, 24 stunda rakakremið inniheldur efni sem örva
eigin rakamyndun húðarinnar og hjálpa henni til að viðhalda
eðlilegum húðraka. Einnig stuðlar Eternagen-efnið að því að
viðhalda mýkt og teygjanleika húðarinnar og vinnur með því
gegn ótímabærri hrukkumyndun.
Eterna 27 kremlínan var sú fyrsta sem kom á markaðinn og
sérstaklega var hönnuð til að vinna á móti öldrun húðarinnar.
Þetta efni hefur sannað ágæti sitt undanfarin fimmtán ár.
Nafnið Eterna 27, sem þýðir ævinlega 27, segir allt um
eiginleika þessara ágætu húðkrema frá Revlon.
NÆSTU VIKU
í NÆSTU TVEIMUR TÖLUBLÖÐUM
KYNNIR VIKAN KEPPENDURNA í
FEGURÐARSAMKEPPNI ÍSLANDS.
LESIÐ EINNIG VIÐTAL VIÐ
CINDY CRAWFORD OG NJÓTIÐ
RÁÐLEGGINGA SÚPERMÓDELSINS.
A BLAÐSOLUSTAÐI 6. APRIL
82 VIKAN 6. TBL. 1993