Vikan - 21.04.1993, Page 4
AU-PAIR ER EINN MOGULEIKINN EN
ÞORIRÐU - VILTU
GETURÐU?
▲ Vigdís
Hjalta-
dóttir hjá
Skóla sf.
► Strangar
reglur
gilda um
fjölskyldur
sem og þá
sem
gerast
au-pair.
Étfff
'tm r8
: j, :
w*! 1fl wjjm (
••i víinr \v < s mm IU
^ Mikiö er
lagt upp
úr því að
fólk geti
stundað
nám
rneðan
þaö er
au-pair.
Fátt langar þann er lítið
veit, segir kveðið hvort
sem það er að fornu eða
nýju og á hér vel við. Við
vörpum þessu svona fram
vegna þess að nú skal hugað
að möguleikum ungs fólks til
þess að upplifa heiminn í nýju
Ijósi í nýju umhverfi - að vita
svolítið meira um það hvað líf-
ið hefur upp á að bjóða.
Skóli sf. heitir lítið fyrirtæki
sem síðastliðin átta ár hefur
starfrækt einkakennslu í ýms-
um greinum. í samtali við Vik-
unna sagði forsvarsmaður
skólans, Vigdís Hjalladóttir,
að yfirleitt væri um einka-
kennslu að ræða í skólanum
þó vitaskuld kæmi fyrir að ein-
hverjir sameinuðust um tím-
ana og gætu þannig dreift
kostnaði. Enda hækkar hann
ekkert þó fleiri séu um hituna
en á móti kemur að hver um
sig fær í því hlutfalli minni
beina athygli kennarans sem
nemur auknum nemenda-
fjölda. Mest er hins vegar um
stuðningskennslu fyrir einn í
einu.
Eitt af þeim verkefnum sem
Skóli sf. hefur á sínum snær-
um er umboð fyrir E.F.-foun-
dation sem byrjaði raunar
sem tómstundaskóli en rekur
nú starfsemi byggða á heils-
árskerfum. Á vegum Skóla sf.
geta nemendur því gengið inn
í skipulag E.F. hvenær ársins
sem er og stundað nám í
hverju því landi sem óskað er
og tekur þátt í samstarfinu.
Hér má nefna lönd eins og
Bandaríkin, England, Kanada,
Ástralíu, Frakkland, Spán,
Ítalíu og Þýskaland. Margir
sem þegar eru komnir út í at-
vinnulífið erlendis notfæra sér
þessa þjónustu til tungumála-
náms. Þannig er ekki endi-
lega eingöngu um unglinga
að ræða.
AU-PAIR LÍKA
Þessi sömu samtök bjóða
einnig upp á au-pair mögu-
leika og þar er lögð áhersla á
að það fólk sem fer á vegum
samtakanna til slíkar ársdvalar
erlendis geti lært eitthvað í
leiðinni. Starfið er þokkalega
launað eða um sex þúsund á
viku, frítt fæði og uppihald.
Miðað er við að skilað sé
fjörutíu stundum á viku. Helg-
arnar eru fríar. Einu skilyrðin
eru þau að viðkomandi séu á
bilinu átján ára til tuttugu og
fimm og með bílpróf. Það þyk-
ir líka mjög æskilegt að um-
sækjendur hafi einhverja
reynslu af barnagæslu og
helst náttúrlega eitthvað gam-
an af slíku starfi. Eins og gefur
að skilja hafa stúlkur einna
helst sótt í þessi störf þó piltar
geti það vitaskuld einnig. Vart
þarf að taka fram að reglu-
semi er áskilin og yfirleitt
æskilegt að viðkomandi reyki
ekki þó það sé yfirleitt ekki
skilyrði.
Strangar reglur gilda um
þær fjölskyldur sem fá að taka
til sín au-pair frá fjarlægum
slóðum á vegum E.F. og
Skóla sf. Bakgrunnur þeirra er
kannaður með því til dæmis
að rætt er við heimilislækni
fjölskyldunnar og nágranna.
Svipað gildir um þá sem
sækja um að komast í störfin.
En yfirleitt eru fjölskyldurnar af
því taginu sem kallað er í góð-
um stéttum og tiltölulega laus-
ar við vandamál. Þær eru oftar
en ekki í góðum efnum enda
þarf vart að tiltaka það sér-
staklega þegar rætt er um fólk
sem hefur á annað borð efni á
því að ráða au-pair. Margar af
þessum fjölskyldum hafa líka
tekið slikan starfskraft áður og
jafnvel oft og þannig er komin
ákveðin reynsla á margar fjöl-
skyldnanna.
FRÍTT Á STAÐINN
Fargjaldið er greitt fyrir þau
sem fara út sem au-pair auk
þess sem boðið er upp á
ferðalag innanlands með við-
komandi fjölskyldu, að
minnsta kosti einu sinni á
dvalarárinu. Allar helstu ferða-
og slysatryggingar taka sjálf-
krafa gildi með ráðningunni
þannig að hver unglingur þarf
ekki að hafa áhyggjur af slík-
um málum.
„Mér finnst sérstaklega at-
hugandi fyrir krakka á þessum
aldri að kanna þessa mögu-
leika. Atvinnuástandið er ekki
gott hér á landi núna og eftir
menntaskóla getur til dæmis
verið gott að taka sér eitt ár
eða svo til umhugsunar og
nýrra upplifana," segir Vigdís
en hún segist verða vör við
aukinn áhuga skólafólks á ís-
landi fyrir því að kanna ókunn
lönd.
„Það er líka mikilvægt að
krakkar, sem fara út í þetta,
gefist ekki strax upp og þau
þurfa að greiða ákveðna
tryggingu, sem ég held að sé
um 30.000 krónur núna, fyrir
því að þau hætti ekki í miðju
kafi. Ef allt fer að óskum fá
þau þessa peninga endur-
greidda þegar þau koma
heim. Þau sem vilja vera mán-
uð í viðbót eftir árs dvöl hafa
vegabréfsáritun fyrir einn
mánuð að auki ef þau langar
að ferðast svo dæmi sé tekið.
Þá er nokkur samheldni með-
al þeirra sem eru í Bandaríkj-
unum á vegum þessara sam-
taka,“ bætir Vigdís við en
samtökin standa öðru hverju
fyrir samkomum fyrir ungling-
ana. Og nú getum við sagt
okkur að marga sé farið að
langa enda nokkru nær um
au-pair starfsemi. Hér er líka
um áhugaverða möguleika að
ræða fyrir fólk sem þorir, vill
og getur. □
4 VIKAN 8.TBL. 1993