Vikan


Vikan - 21.04.1993, Qupperneq 10

Vikan - 21.04.1993, Qupperneq 10
 w ' i T* 4 V Það er hugsað öðruvísi héma. Það eru einhvern veg- inn allir til sölu. Við íslendingar erum ekkert á þessari bylgju- lengd. Við erum ekki svona mikið til sölu. Ég er til í að gera mitt besta, sýna hæfileikana og vinna alveg eins og brjál- æðingur en ég ætla ekki að selja sálina mína. Kannski á ég eftir að tapa á einmitt því! Ég er að athuga hvort ég get náð einhverjum árangri hérna með mínum leiðum, við verð- um bara að sjá hvort það tekst eða ekki. Só far só gúdd! Ef ég kemst hins vegar að þvf að ekki er hægt að komast áfram hérna á eigin verðleikum og án þess að skríða fyrir ein- hverjum lúsablesum þá er ég farin aftur heim til mömmu og pabba!” - Hverrtig liggur leiðin frá því að vera þú og að verða poppstjarna? „Fyrsta skrefið er að fá um- boðsmann með nógu mikil sambönd og hann gerir tónlist- armyndband. Það er síðan sent stóru útgáfufyrirtækjun- um. Ég er komin með um- boðsmann, hann heitir Eddie Barber og hefur góð sambönd, þekkir forstjórann hjá Capitol Records. Hann er núna að hjálpa mér að finna góða upp- tökustjóra sem geta tekið upp lagið sem við gerum mynd- band við. Þetta verður samt erfitt, þetta er hálfgerður dýra- garður hérna en mér líkar hann vel. Ætli ég passi ekki bara svona vel inn í hann, ég er svo skrítin.” EKKERT ÓKEYPIS - Og í hvaða búri ert þú? „Ég er í Ijónabúrinu - nei, ætli ég sé ekki í apabúrinu. Aparnir eru alltaf að skemmta fólki og það er það sem ég vil gera.” - Dýragarðar eru ekki ekta frumskógar og haft er á orði að hvergi í veröidinni sé allt jafn- mikið „gervi” og hér. Sumir segja að annað hvert brjóst í Los Angeles sé gervi. Hvernig er að vera ekta íslendingur með ekta brjóst og ekta Ijóst hárí þessari gerviveröld? „Ég er sammála þessu, það er voðalega mikið „gervi” hérna. Ameríkanar eru ákaf- lega gjarnir á að óska manni alls hins besta þó maður þekki manninn ekki neitt. Alls staðar segja allir „How do you do?” og „Have a nice daý’ og þess háttar. Ég kann mjög vel við þetta og er alveg sama hvort fólk meinar þetta eða ekki. Mér líður vel að heyra þetta og er farin að segja þetta sjálf. Ég var einu sinni stödd í búð á Melrose Avenue og það barst í tal að ég væri íslensk. Þá spurði afgreiðslumaðurinn hvort ég vissi hverjir Sykur- molarnir væru og ég sagði svo vera. Ég hélt að gæinn ætlaði að pissa f buxurnar af hrifningu þegar hann sagði: „Björk kom einu sinni hérna inn, það var alveg me-eei-iiri háttar. Þau hljóta að vera ofsalega fræg á íslandi.” Það er mjög skemmtilegt hvað þau eru fræg og virt hérna úti. Reyndar höfðar megnið af tónlistinni þeirra ekki til mín en mér finnst samt að þau eigi að fá fálkaorðuna, bara fyrir það sem þau eru búin að gera fyrir ísland og hversu langt þau hafa náð.” - Hefur þú trú á því innst inni að það heppnist hjá þér að byggja upp feril í tónlist hérna úti? „Já. Það er að segja innst inni er þessi gífurlega sterka von. Ef maður trúir ekki á sjálfan sig, af hverju ætti ein- hver annar að gera það? Það er nóg af fólki hér um allt sem er til í að bregða fyrir mann fæti og hér hjálpar enginn neinum ókeypis. Það kostar allt. í skólanum erum við mik- ið að hjálpa hvert öðru en það er allt debit-kredit. Ef maður er að gera lista yfir það sem maður hefur gert í tónlistar- bransanum þarf að telja allt til og ýkja fimm hundruð pró- sent! Það er vegna þess að þetta gera allir hinir! Segi maður bara frá því sem mað- ur hefur raunverulega gert halda allir að maður hafi gert brot af því - sé að ýkja!” ENGINN FRIDUR - Þú hefur svolítið sérstakan stíl. Fjögurra ára frænka mín kallar þig alltaf Barbí. Þú ert með þessi vatnsbláu augu, Ijóst hár og málar þig og klæðir öðruvísi en flestar ís- lenskar konur. Sumir vilja meina að þú hafir amerískan stíl. Hvers vegna? „Minn stíll er bara að vera ég sjálf. Þegar þú lítur á mig sérðu Önnu Mjöll. Ég er ekki að reyna að vera eitthvað sem óg er ekki því svoleiðis lagað skín alltaf í gegn. Þegar fólk sér mig heima finnst því ég oftast hafa amerískan stfl, Ameríkönum finnst ég vera dæmigerður Skandinavíubúi og þegar ég var í Tælandi fannst fólkinu þar ég vera eins og Gilitrutt! Svona eru nú skoðanir mannanna misjafn- ar. Ég hef líka heyrt heima að ég sé að stæla Dolly Parton. 10VIKAN 8.TBL. 1993
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.