Vikan - 21.04.1993, Qupperneq 34
MODIR OXKAR El RISIH UPP
FRA DAUDUM EFTIR iO JUt
Sjö systkini á Bretlandi og ír-
iandi eru hætt aö efast um það
lengur aö móöir þeirra sé nú
endurborin og sé komin á meö-
al þeirra í líkama annarrar
konu.
Jenny er þrjátíu og sjö ára
gömul kennslukona og hefur
sannfært systkinin um aö hún búi
yfir vitneskju um fjölmarga hluti
og atburöi frá æskuheimili þeirra
sem einungis móöir þeirra gæti
hafa vitaö en hún lést fyrir sextíu
árum. Þau geta ekki annað en
trúaö því sem Jenny hefur haldið
fram því að hún gat:
-Staðsett æskuheimili þeirra
nákvæmlega meö því aö viröa
fyrir sér kort af heimabæ þeirra.
- Lýst húsinu í smáatriðum.
- Rifjað upp ýmsa atburöi sem
gerðust á heimilinu.
Systkinin sjö fóru hvert í sína
áttina þegar Mary móöir þeirra dó
því að öllum nema einu var kom-
iö fyrir hjá vandalausum. Nú hafa
þau sameinast í fyrsta skipti
þessi sextíu ár.
DREYMDI FYRRA LÍF
Sagan hófst þegar hin ensk-
fædda Jenny var aöeins þriggja
ára. Hana dreymdi stööugt á-
kveðið hús á írlandi og fjölskyldu
meö nafninu Sutton. Hún óx síö-
an úr grasi, giftist og eignaðist tvö
börn. Engu aö síður létu þessir
draumar hana aldrei í friöi og
alltaf dreymdi hana eitthvað nýtt
sem varöaöi bæði húsið og fjöl-
skylduna sem þar bjó.
Aö því kom aö hún gat staðsett
þetta fyrrum „heimili" sitt í írska
smábænum Malahide, í nágrenni
Dublin. í framhaldi af því hóf hún
aö hafa uppi á „börnum" sínum.
Hún byrjaði á því að hringja í
þann mann sem hún var sann-
færö um aö væri elsti sonur
hennar, hinn 73 ára gamla Sonny
Sutton sem býr í Leeds. „Hún
spuröi mig að nafni," segir Sonny,
„og sagöi síðan aö ég heföi átt
heima á írlandi. Hún nefndi Mala-
hide og sagöi mér fjölmargt um
móöur mína og fjölskyldu. Hún
lýsti einnig ýmsum smáhlutum á
heimilinu eins og myndum á
veggjum, húsgögnum og þar
fram eftir götunum. Ég spurði
hana hvernig stæöi á þessari vit-
neskju. Hún svaraði því til aö
hana hefði dreymt húsiö og fjöl-
skylduna síöan hún var lítið barn.
Þegar samræöum okkar lauk
lagöi ég símtólið frá mér og sagöi
við konu mína: Hér er eitthvað
meira en lítiö skrítið á seyöi. Fyrst
gat ég ekki meö nokkru móti trú-
aö því sem Jenny sagöi enda eru
sextíu ár síðan móöir mín dó. Ég
hef hitt Jenny þrisvar eða fjórum
sinnum síöan og er nú farinn aö
líta á hana sem eina af fjölskyld-
unni vegna alls þess sem hún
hefur sagt mér, þaö kemur allt
heim og saman.
Þegar móöir mín dó splundraö-
ist fjölskyldan og var öllum börn-
unum komið í fóstur nema mér.
Ég varð eftir hjá Jack fööur mín-
um. Nú hefur Jenny sameinaö
okkur eftir öll þessi ár, nema
yngstu systur okkar, Bridie, sem
Jenny á örugglega líka eftir aö
hafa uppi á.“
NÁKVÆMAR
UPPLÝSINGAR
Jenny, sem er frá bænum
Towcaster í Northants á
Englandi, hefur nú skrifaö bók um
drauma sína og reynslu síðustu
mánuöi. „Þaö var ótrúlega mikið
um hvers konar smáatriöi í
draumum mínum, nægilega mörg
og nákvæm til þess aö ég gat
bent á húsiö sem fjölskyldan bjó í
og til þess að hafa uppi á fjöl-
skyldunni."
Hluta upplýsinganna fékk
Jenny í draumum sínum og aðrar
komu fram sem minningar henn-
ar frá liöinni tíð. „í einum draumn-
um kom fram dauði minn og bitur
aðskilnaöurinn viö börnin. í æsku
átti ég erfitt meö aö skilja og
sætta mig viö að aöra skyldi ekki
dreyma fyrra lif sitt og minnast
þess. Mér fannst þaö sjálfsagður
hlutur sem truflaöi mig ekki fyrr
en aðrir fóru aö taka eftir þessu í
fari mínu og þótti þetta skrýtiö.
Síðar meir fór ég aö lesa um fólk
sem minntist fyrra lífs og þaö
varö mér hvatning til þess að
kynna mér þetta nánar.
Þaö sem hefur sannfært mig
um að ég sé aö gera rétt er sú
mikla nákvæmni sem einkennt
hefur drauma mína og minningar,
eins og fæðingardagar barnanna
og fleiri atriöi þar sem engu hefur
skeikaö. Mig dreymdi til dæmis
nöfn barna minna og ég „sá“ hús-
iö sem fjölskyldan haföi búiö í,
auk þess sem ég fann þorpið
Malahide meö því að skoða
landabréf."
Ein systirin, Betty, sem er sex-
tug, hitti Jenny fyrst fyrir örfáum
vikum. „Ég er farin aö venjast
þessu núna. Ég veit aö slíkir hlut-
ir geta gerst en ég er engu aö
síður hálfsmeyk. Þaö voru systk-
ini mín sem sannfærðu mig um
aö Jenny væri ekki aö fara meö
staölausa stafi.
Fulltrúi útgáfufyrirtækisins, sem
hefur væntanlega bók á sínum
snærum, segir aö Jenny sé ein-
staklega næm, mjög nákvæm og
greinagóð og hún sé sannarlega
enginn loddari. „Þaö er ekkert
það í fari hennar sem bent getur
til þess aö hún sé að tala um eitt-
hvaö sem hún hefur ekki fulla vit-
neskju um - eöa aö hún sé aö
fara meö ósannindi." Bók hennar,
Yesterdays Children, er væntan-
leg á breskan markaö í maí. Út-
gefandinn er Piatkus. □
Jenny er þrjátíu og sjö ára kenn-
ari.
Elsti bróöirinn, Sonny, fékk fyrstu
upphringinguna frá Jenny.
Hún lést fyrir sextíu árum. Mary meö eitt barna sinna.
34 VIKAN 8.TBL. 1993