Vikan - 21.04.1993, Page 42
hefur hún átt heima fyrir vest-
an en var reyndar i Reykjavík
í eitt ár barn að aldri. Birna er
átján ára og 166 cm há. For-
eldrar hennar eru þau Hildur
Hilmarsdóttir og Guðmundur
Geirsson. Birna stundar nám
við Framhaldsskóla Vestfjarða
á ísafirði þar sem hún er á
raungreinabraut. Hún er á
öðru ári.
Birna Málmfríður hefur lítið
sem ekkert starfað að sýning-
ar- eða fyrirsætustörfum fram
að þvi að hún var valin feg-
urðardrottning Vestfjarða.
Hún hefur þó farið á nám-
skeið í slíkum störfum hjá
Módelmynd og eitthvað komið
fram á tískusýningum í skól-
anum. Um slíkt talar hún hins
vegar af mestu hógværð. Hún
er því á byrjunarreit hvað
þetta varðar. Um áhugamálin
segir Birna að dans sé ofar-
lega á lista, sérstaklega sam-
kvæmisdansar. Hún hefur
einnig leikið töluvert og segist
hafa gaman af því, meðal
annars hafi leikfélag skólans
nýverið sett upp leikrit og sýnt
það á Akureyri. Framtíðin er
óráðin en ekki ólíklegt að eitt-
hvað sem tengist raungrein-
um verði fyrir valinu í starfi.
millinafn þaðan: Xochitl sem
er indíánanafn komið frá Az-
tekum og merkir blóm. Brynja
er 19 ára og 170 cm há. For-
eldrar hennar eru Ágústa Sig-
þórsdóttir og Vífill Magnús-
son. Brynja stundar nám við
Kvennaskólann í Reykjavík
þar sem hún er á þriðja ári á
náttúrufræðibraut. Samhliða
námi hefur hún starfað við
kynningar fyrir Vífilfell og hún
er starfandi hjá lcelandic
Models.
Margir muna eftir Brynju í
forsíðustúlkukeppni Vikunnar
og í kjölfar þeirrar keppni
keppti hún um titilinn Queen
of the World. Áhugamálin eru
fyrirsætustörf, leikhús en hún
stundaði ballett og dans til
margra ára, sígild tónlist og
óperur. Brynja hyggur á lang-
ferð að loknu stúdentsprófi,
ætlar til Mexíkó þar sem systir
hennar býr. Þar ætlar hún að
leggja stund á spænskunám.
Þá langar hana að komast í
hjálparstarf í framandi landi, til
dæmis á vegum Rauða kross-
ins. Áframhaldandi sýningar-
og fyrirsætustörf eru jafnframt
á döfinni.
BIRNA MALMFRIÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
er fegurðardrottning Vest-
fjarða. Hún býr í Hnífsdal en
er fædd á Akureyri. Lengst af
BRYNJA
VÍFILSDÓTTIR
er fegurðardrottning Reykja-
víkur. Hún býr í Kópavogi en
er fædd í Mexíkó. Hún ber