Vikan - 21.04.1993, Síða 52
dyggðir en eins og svo margt
annað getur þetta gengiö út í
öfgar. Við sjáum ekki fram í
tímann og getum í mörgum til-
vikum alls ekki vitað hvaöa á-
kvörðun við eigum að taka ef
við gerum algera kröfu um að
gera ekki mistök. Þá verðum
við að taka einhverja ákvörð-
un og taka síðan afleiðingun-
um og takast á viö mistökin ef
ákvörðun okkar reynist mis-
tök. Ef þú gerir slíka ofurkröfu
um að gera ekki mistök frest-
ar þú því sem gæti leitt til mis-
taka eða er erfitt á einhvern
hátt. Það safnast saman sem
óleyst verkefni í heilanum og
heldur áfram að gerjast þar
og trufla þig öðru hverju með
því að minna á sig. Þess
vegna færð þú á tilfinninguna
að þú Ijúkir engu verki. Það er
alltaf nóg af óleystum verkefn-
um.
Framhaldið einkennist svo
af því að þér finnst þú ekki
geta slakað á og notið lífsins
fyrr en þú hefur lokið öllum
verkefnum þínum, á hvaða
sviði sem er, það er bæði í
vinnu og einkalífi. Með tíman-
um verður þetta svo aðalein-
kennið á lífi þínu og þú lærir
aldrei að njóta þess. Ef þú
færð frið, til dæmis í sumarfríi,
veist þú ekkert hvað þú átt af
þér aö gera og finnur þér
alltaf ný og ný verkefni vegna
þess að það er eini hátturinn
sem þú kannt á því aö lifa líf-
inu. Þannig verður lífið verk-
efnabundiö, bundið við verk-
efni sem þarf að Ijúka. Þessu
lýkur aldrei því þú finnur alltaf
eitthvaö til að fást við og skilja
eftir óklárað þannig að í raun
ertu að bíða eftir því að lífinu
Ijúki.
Þegar svo er komið finnur
þú engan tilgang meö því
sem þú ert aö gera. Því lýkur
heldur aldrei. Þú verður
þreyttur og orkulaus og „út-
brunninn”.
SVEFNTRUFLANIR
Svefntruflanir eru eðlileg af-
leiðing af þessu. Hugurinn
getur ekki slakað á, hvorki
þegar þú ert í samræðum við
aðra eða þegar þú ert kominn
upp í rúm og ætlar að fara að
sofa. Hann heldur áfram að
vinna vegna stressins og
neyðir þig til þess að halda á-
fram að hugsa út leiðir til að
Ijúka verkefnum án þess að
gera mistök. Jafnvel ef þér
tekst að sofna heldur starf-
semi hugans áfram [ svefnin-
um og getur vakiö þig eins og
innbyggö klukka til að koma
þér að verki svo þú getir lokið
því.
Oft finnst fólki, þegar svona
er ástatt, að það vinni 14-16
tíma á sólarhring en þegar
það lítur til baka yfir afköstin
sér það að það hefði getað
lokið þessu á helmingi þess
tíma sem það tók.
HVAÐ ER TIL RÁÐA?
[ flestum tilvikum er nauðsyn-
legt að leita sér aðstoðar.
Munstrið er svo sterkt að það
er mjög erfitt að reyna að
brjóta það án aðstoðar sál-
fræðings. Þú þarft að leggja
áherslu á að njóta lífsins, gera
eitthvað fyrir sjálfan þig
þannig að þú finnir tilgang í
lífinu með því að lifa því lif-
andi. Þú þarft að leyfa þér að
gera mistök eins og mannlegt
er. Þú veröur hvorki verri eöa
betri fyrir bragðið, aðeins
mannlegri. Þú þarft að læra
að hætta að fresta hlutum,
ganga beint til verks og klára
það sem fyrir liggur og slaka
síðan á og njóta þess sem þú
hefur verið aö gera - keyra
þig út í líkamsrækt og hella
þér út í það að vera til fyrir
sjálfan þig, finna nautn í því
að vera þú sjálfur en standa
þig samt í því sem þú gerir.
Öll þessi afkastavinna og
þetta verkefnabundna líf er af-
leiðing þjóðfélagsbreytinga
undanfarinna áratuga og hef-
ur ekkert að gera með tilgang
lífsins en tengist hins vegar
tæknivæöingu þjóöfélagsins
og lífsgæðakapphlaupi sem
síðan er óvíst að þú fáir að
njóta í ellinni því ekki er víst
að þú lifir svo lengi ef þú ætlar
að ofgera sjálfum þér á bestu
árunum þínum.
Eitt af því sem þú getur
væntanlega gert strax er að
læra að skipulegggja þig bet-
ur, bæði hvað varðar að á-
kveöa hvenær þú ætlar að
gera hlutina og standa við
það en einnig hvað varðar að
nota pappír og penna. Skrif-
aðu niður allar hugmyndir,
bæöi frumhugmyndir og hug-
myndir um aðgerðir í ákveðn-
um málum og komdu því
þannig út úr huganum. Þegar
þetta er komið á blaö þarf
hugurinn ekki lengur aö
muna eftir þessu. Notaöu
dagbók með tímaáætlun og
lærðu að nota einhverja teg-
und af skipulagi. Til eru nokk-
ur námskeið sem gætu hjálp-
að þér.
Ræddu þetta við aðra, sér-
staklega þá sem þú sérð að
kunna aö njóta lífsins og
þiggðu góð ráð. Ef það dugar
ekki skaltu leita þér aðstoðar.
Góðar kveðjur,
Sigtryggur
• •
ANNA MJOLL FRH. AF BLS. 11
LITLA UÓSHÆRÐA
NEGRABARNIÐ
- Hvernig líður dagurinn hjá
Önnu Mjöll?
„Ég er venjulega komin út í
leikfimisal um klukkan átta á
morgnana og er þar til klukkan
níu. Þá fer ég inn og þvæ
þvott, vaska upp og svoleiðis.
Svo fer ég að læra. Það sem
felst í því að læra er aö semja
lög og texta, eitthvað sem sett
er fyrir í skólanum og svo að
sjálfsögðu að æfa mig á hljóm-
borðið og í söng. Tónfræðin
tekur svo mikinn tíma auk þess
sem ég þarf aö þjálfa tóneyraö.
Síðan er, eins og áður sagði,
nauðsynlegt að hringja út um
allt og hitta fólk til að halda
samböndum lifandi. Ef einhver
ætlar aö gera eitthvað fyrir mig
þarf ég að hringja í hann á
hverjum degi. Annars gleymist
allt sem um var talaö. Seinni
partinn fer ég svo í skólann og
er þar fram á kvöld. Þegar ég
kem heim læri ég aðeins
meira, fer kannski í leikfimina
aftur og þegar því er lokið er
ég alveg búin að vera. Þetta
hljómar nú kannski ekki
strembið en er það nú samt.”
- Hvað ætlaði Anna Mjöll
aö verða þegar hún yrði stór?
„Hún ætlaði að verða svört!
Ég var alveg harðákveðin í að
verða svertingi. Mamma og
pabbi voru alltaf að ferðast um
landið með hljómsveitinni á
sumrin og eitt sumarið fór með
þeim svört nektardansmær á-
samt öðrum skemmtikröftum.
Þá vissi ég auðvitað ekkert
hvaö það var en ég vissi að hún
var með þeim í þessari sýningu.
Hún var svo sæt og hún var svo
góð við mig og frænku mína,
hún leyföi okkur að leika okkur
með perlufestarnar sínar og ég
bara hreinlega dáði þessa
manneskju. Og ég ætlaði að
veröa alveg eins og hún þegar
ég yrði stór. Það virðist hins
vegar ekki hafa gengið upp."
- Hvernig var að alast upp
sem barn foreldra sem voru
heimsfrægir um allt ísland?
„Það var bara mjög gaman.
Ég hef alltaf verið mjög stolt af
mömmu og pabba, þau eru al-
veg frábær. Stundum voru aör-
ir krakkar og jafnvel fullorðiö
fólk að yfirheyra mann: Hvað
áttu mörg systkini? Hvernig er
heima hjá þér? Fólk var voða
forvitiö um hagi mína.”
- Hvað áttu mörg systkini?
„Einn bróöur, Andra Gauk.
Hann er tuttugu og níu og er
læknir. Hann er að fara aö
vinna á skurðdeild spítala í
New Hampshire núna í júní."
HVAÐA LYKT ER ÞETTA?
„Fyrst þú varst að spyrja mig
um skemmtanalífið þá dettur
mér í hug að segja þér frá
partíi sem mér var boðið í. Það
var haldið í húsi sem Barry
Goldwater átti (hann var mjög
frægur stjórnmálamaður sem
árið 1964 bauð sig fram til
embættis forseta Bandaríkj-
anna en laut í lægra haldi fyrir
Lyndon B. Johnson). Sonur
hans á húsið núna. Þetta hús
er gífurlega stórt og íburðar-
mikið en ótrúlega ósmekklegt.
Þegar ég og vinir mínir vorum
búin að vera í partíinu svolitla
stund fór ég að taka eftir skrít-
inni lykt og spuröi einn við-
staddra hvaða lykt þetta væri.
Þá kom á daginn að fólk var að
reykja maríhúana og ég hafði
bara aldrei séð það gert áður.
Fólkið vissi ekki hvert það ætl-
aði, svo hissa varö það. Svo
var mér og vinum mínum boðið
en við afþökkuðum og upp úr
því létum við okkur hverfa.
Þetta byrjaði bara allt í einu, þá
var eins og allir í partíinu væru
farnir að reykja gras og það var
ekkert fyrir okkur."
- Hvernig er með karlamálin
hjá þér, ertu í sambandi við
einhvern?
„Nei, ég var með íslenskum
strák, Binna, en það er búið.
Þaö gekk ekki upp. Hann var
minn fyrsti alvörukærasti, við
erum enn góðir vinir. Annars
hef ég nóg með að hugsa um
sjálfa mig hérna þannig að ég
held að samband sé ekki inni í
myndinni enn um sinn.”
ísinn var löngu búinn og sólin
tekin að hníga til viðar. Mann-
þröngin á Venice Beach hafði
þynnst verulega, götusalarnir
teknir til við aö hreinsa af borð-
um sínum og sumir farnir heim
með gróða dagsins. Eftir að
hafa leyft sandinum á ströndinni
að leika við tærnar dagpart
máttum við Anna Mjöll setja á
okkur frelsisheftandi skóbúnað
og héldum inn í mengaða stór-
borgina við Kyrrahafiö.
Eftir að heim kom bárust
þær fréttir af Önnu Mjöll að hún
væri komin í vinnu hjá fyrirtæki
sem umboðsmaðurinn hennar
á. Það heitir Much Fun Prod-
uctions og sérhæfir sig í að
gera tónlistarmyndbönd. Starf
hennar þar felst í aö fara á
fundi hjá stóru útgáfufyrirtækj-
unum og fá að gera fyrir þau
myndbönd viö lög sem þau
gefa út. Anna Mjöll er síðan
meðframleiðandi á myndbönd-
unum. Gott mál í gangi og Vik-
an óskar henni góðs gengis í
nýja starfinu. □
52 VIKAN 8.TBL. 1993