Vikan - 21.04.1993, Síða 64
TIÐAHVORFIN
ÚT ÚR SKÁPNUM
Nýveriö komu út í
Bandarfkjunum tvær
bækur um breytinga-
skeiö kvenna. Þaö er í sjálfu
sér ekki í frásögur færandi
nema hvaö önnur bókin, The
Silent Passage eftir Gail
Sheehy, hefur þegar náö met-
sölu og búist er viö því aö hin,
Climacterium eftir Germaine
Greer, fylgi henni fast eftir upp
listann.
Germaine Greer er höfund-
ur Kvengeldingsins en í nýju
bókinni fer Greer vítt og breitt
um mannkynssöguna og ræöir
meðal annars hlutverk
maddömunnar í ýmsum þjóö-
félögum. Hún talar opinskátt
um ósýnileika miðaldra
kvenna í vestrænni menningu
og óréttlæti kerfis sem hefur
3: silfurhæröa karla í hávegum
§ en útskúfar kvenkyns jafnöldru
^ þeirra sem ónothæfri, aumk-
Igj unarveröri, uppþornaðri
“ skrukku.
'S Greer reynir þó ekki aö
'O segja að miðaldra kona sé
ennþá gjaldgeng „á markaðin-
>5 um” né aö kona geti fundið ást
og hamingju á hvaða aldri
sem er ef hún bara haldi sér
hressri og kynfærunum rökum,
annaðhvort meö östrógeni eða
smurningsefnum úr lyfjabúð-
um. „Þaö er fjári erfitt aö vera
miöaldra í þessu þjóðfélagi,”
segir Greer, „og þaö er sjálfs-
blekking aö láta eins og svo
sé ekki.” Ekki aö kvartanir
komi aö neinu gagni; kona
sem kvartar yfir einkennum
tíöahvarfanna eöa hræðslunni
viö aö veröa ein í ellinni fær
líklega það svar aö hún geti
sjálfri sér um kennt. „Hafi þér
ekki tekist aö ná þér í mann,
hvaö þá aö halda í honum líf-
inu eöa þér viö hlið til fimm-
tugs, hafirðu ekki eignast nein
börn eða ekki getað fengiö
þau sem þú ólst upp til aö
koma sómasamlega fram viö
þig - þá klúðrarðu áreiðanlega
tíöahvörfunum líka,” segir hún.
í bókinni kemur Greer inn á
væntingar umhverfisins um
undarlega hegöun kvenna á
breytingaskeiði. Hún bætir því
viö aö margar sögur um hegö-
unarvanda kvenna á breyt-
ingaskeiði séu einfaldlega lýs-
ingar á vissu þroskaferli. „Þaö
getur veriö ógnvekjandi aö
velta málunum fyrir sér í ein-
rúmi og hugsanlega aö syrgja
stundir sem koma aldrei aftur
og þaö sem verra er, sáran
tlma sem var sóaö, en þaö er
miklu hættulegra að gera þaö
ekki," segir Germaine Greer.
Metsala á bókum um breyt-
ingaskeiðið er að hluta komin
til af því aö um þessar mundir
eru stórir árgangar banda-
rískra kvenna einmitt á því
skeiði eöa um fimmtugt.
Bandaríkjamenn eru naskir aö
sjá út væntanlega markaði og
fljótir að laga sig að breyttum
áherslum. Fólk á fimmtugs-
aldri hefur veriö stórneytendur
síðustu áratuga og því um aö
gera aö höföa til þess sem á
sér staö í lífi þess hverju sinni.
EINKENNI OG
ANDLEG ÁHRIF
Aldurinn og allt sem honum
fylgir er óhjákvæmilegt en
konan er eina veran sem upp-
lifir tíöahvörf. Þegar tíðahvörfin
bresta á er oft ýmislegt annað
aö gerast I lífi konunnar. For-
eldrar hennar eru hugsanlega
aö veikjast og deyja, börnin
eru uppkomin og farin aö
heiman, hlutverk hennar á
heimilinu breytist og algengt er
aö hjón slíti samvistum á
þessum aldri. Þaö er á þessu
tímabili sem konur gleypa ró-
andi lyf í stórum stíl. Breyt-
ingaskeiöiö getur varaö allt frá
nokkrum mánuöum upp í
fimmtán ár þótt algengasti tím-
inn sé fjögur til fimm ár. Helstu
einkenni þess eru hita- og
svitakóf en orsök einkennanna
er aö líkami konunnar er hætt-
ur framleiðslu hormónsins
östrógens. Einkennum breyt-
ingaskeiðsins fylgir oft mikil
andleg vanlíöan. Gróf áætlun
er aö einn þriöji hluti kvenna
fái slæm einkenni, einn þriðji
væg einkenni og einn þriöji lítil
eöa engin og oft sleppa þétt-
holda konur best.
Tvö aðalkvenhormónin eru
östrógen og prógesterón. Af
östrógenum er mest í fyrri
hluta tíðahringsins og á þeim
tíma er slímhúöin f leginu að
byggjast upp. Viö egglos fer
framleiösla prógesteróns í
gang. Tveimur vikum síöar
hættir prógesterónið að byggj-
ast upp og tíðablæðing á sér
staö.
Fyrstu einkenni tíöahvarf-
anna eru aö blæðingar veröa
óreglulegar. Þegar þetta gerist
er konan á milli 45 og 55 ára
en þess eru dæmi aö miklu
yngri konur hætti aö hafa á
klæðum. í upphafi skeiösins
dregur úr prógesterónfram-
leiðslu og síðan úr östrógen-
framleiöslu. Það er þá sem
hita- og svitakófin koma og
þau geta verið mjög misslæm,
allt frá því að konan fái eitt til
tvö köst á sólarhring upp í aö
fá eitt til tvö á klukkustund.
í upphafi tíöahvarfanna á
konan einn þriöja ævinnar eftir
ólifaöan. Þegar östrógenfram-
leiöslan hættir veldur þaö víð-
tækum áhrifum um allan lík-
amann. Brjóstin rýrna, húöin
breytist og þynnist og sjálfs-
myndin gæti oröiö neikvæöari.
Slímhúð í legi rýrnar og þaö er
ástæða þess aö konur fá tíðari
þvagfærasýkingar eftir tíða-
hvörfin. Þurr leggöng geta
valdið óþægindum viö samfar-
ir og konunum er hættara viö
sveppasýkingum. Hormóna-
uppbót stendur til boöa þeim
konum sem vilja og það sem
helst mælir meö henni er að úr
ýmsum einkennum tíðahvarf-
anna dregur og líðan konunn-
ar er allt önnur og betri.
BEINGISNUN
Ftannsóknir á beingisnun hafa
leitt ( Ijós að íslendingar eru
slst betur staddir en aörar
þjóöir. Líklegt er að einn fjórði
kvenna fái slæma beingisnun
og litlar, Ijósar konur sem
reykja eru í sérstakri hættu,
svo og konur meö ættarsögu
um beingisnun. Beingisnun
getur verið mikið vandamál og
illa haldnar konur byrja aö
brotna um úlnliðina upp úr
sextugu, 65 ára fer hryggurinn
aö hrynja saman og þær lær-
brotna viö aö detta. Östrógen
stuölar hins vegar aö því aö
beinmassinn haldi sér og hefj-
ist östrógenmeðferö strax í
upphafi tíðahvarfanna er hægt
aö koma í veg fyrir beingisn-
un.
Konum er nauösyn aö fá
nægt kalk og beinin á aö
byggja upp á unga aldri og
viðhalda hreyfingu ævina á
enda. íslenskar konur viröast
fá nægt kalk en reykingar hafa
mjög slæm áhrif á beinmassa
og sömuleiðis mikil áfengis-
neysla.
HVAÐ ER TIL RÁÐA?
Þau lyf sem konum standa til
boða eru ýmist náttúruleg
östrógen eða samsetning af
östrógenum og prógesteróni.
Þau hormónalyf sem mest eru
notuð hér á landi líkja eftir
tíöahring konu sem ennþá
framleiöir sín hormón. í
hringnum eru 28 töflur. Fyrstu
tólf töflurnar innihalda östró-
gen, í næstu tíu eru östrógen
og prógesterón og í síðustu
sex vægt östrógen. Blæöingin
kemur á meöan sex síðustu
töflurnar eru teknar og viö aö
fá svolítið östrógen meöan á
blæðingunni stendur fær kon-
an ekki hita- og svitaköstin
sem annars kæmu innan
þriggja daga frá því hætt er á
töflunum.
Einnig fást kaflaskiptar töflur
meö 21 töflu. Fyrstu ellefu töfl-
urnar innihalda östrógen og
næstu tíu östrógen og pró-
gesterónefni. Meö þessum
töflum er gert sjö daga hlé á
hormónagjöf. Blæðingar koma
á töflulausa tímabilinu, þannig
að hormónaskortseinkenni
geta komið fram meöan á
blæðingu stendur.
I
i
I
64 VIKAN 8. TBL. 1993