Vikan - 01.07.1993, Blaðsíða 16
POtl EIJ
* (ðtfi
UMIMW
JOAN COLLINS í SAMTALI VIÐ VIKUNA
EINKAVIÐTAL OG UÓSM:
ÞORSTEINN ERLINGSSON
ið hittumst á Carlton
hótelinu í Cannes.
Það var ekki að sjá að
þessi kona hóldi upp á sex-
tugsafmæli sitt í sömu viku.
Maður gæti frekar haldið að
um fertugasta aldursárið væri
að ræða. Joan Collins gekk
tfgulega inn í svítuna, íklædd
hvítri dragt með bláum borð-
um. Hárgreiöslan var svipuð
því sem maður á að venjast
og förðunin óaðfinnanleg.
Hún settist niður, hellti vatni f
glas fyrir framan sig og virtist
njóta sfn til fullnustu.
Joan Henrietta Collins
fæddist í London 23. maí
1933 og er elsta barn Jos-
ephs Williams Collins og Elsu
Bessant. Yngri systir hennar,
Jackie Collins, er sem kunn-
ugt er þekktur metsölubóka-
höfundur (Hollywood.
Þar sem Joseph var um-
boðsmaður fyrir Ijóða- og
söngbækur kom mikið af
þekktum söngvurum, dönsur-
um, leikurum og öðrum góð-
um listamönnum til hans og
því fékk Joan tækifæri til að
kynnast slíku fólki og hafði
það mikil áhrif á uppvöxt
hennar. „Þessa feimnu, inn-
hverfu strákahatandi stelpu
dreymdi mjög fljótlega um að
verða þekktur listamaður,"
segir Joan Collins.
Þegar hún var f almennum
skóla fyrir stúlkur, Francis
Holland School, kom hún f
fyrsta sinn fram á sviði í West
End uppfærslu á Brúðuheimili
Ibsens. Tveimur árum síðar
hætti hún f kvennaskólanum
til að innrita sig f Royal
Academy of Art leiklistarskól-
ann. Faðir hennar var mjög á
móti þessum áformum en
hann þurfti að draga sig í hlé
eftir að Joan hafði minnt hann
á að hann heföi alltaf verið að
tala við sig um ávinning þess
að fara í gegnum lífið með
opnum huga og hvatt sig til að
setja sig í spor annarra áður
en hún dæmdi. Þau feðginin
gerðu með sór málamiðlunar-
samning sem hljóðaði þannig
að ef stelpan sýndi engan ár-
angur f náminu eftir tvö ár
hætti hún f leiklistinni og færi í
ritaraskóla.
Áður en árin tvö voru liðin
hafði hún tryggt að faðir henn-
ar næði ekki fram vilja sfnum.
Það gerði hún með þvf að
hefja fyrirsætustörf sem
leiddu til þess að hún fékk
samning við hið risastóra
kvikmyndafyrirtæki Rank Org-
anisation Ltd. og árið 1952
kom hún fram í sinni fyrstu
kvikmynd, Lady Govia Rides
Again, sem flokka má sem
kaldhæðnislega grínmynd.
Nokkur hlutverk komu í kjöfar-
ið .en það var langt á milli
þeirra.
Joan sagði að það væri
skiljanlegt að fólk hefði ekki
verið áfjáð í að ráða hana þar
sem hún lék ekkert annað en
einhverjar tæfur, ungar glæpa-
konur eða varasamar mellur.
Að lokum var það Howard
nokkur Hawks, einn af fáum á-
hrifamiklum kvikmyndagerðar-
mönnum í Hollywood, sem tók
af skarið og réö hana ( hlut-
16VIKAN 13.TBL.1993