Vikan - 01.07.1993, Side 33
vildu frekar halda sig við klak-
ann og spila hér. „Við reynd-
um að spila einu sinni f mán-
uði og það komu þetta 150
manns á tónleika hjá okkkur,
yfirleitt sama fólkið. Þá var
ríkjandi þetta sama vand-
ræðaástand og er núna. Ég
skil nú eiginlega ekki hvernig
maður nennti þessu.“
SJÓMENNSKAN
ER EKKERT GRÍN
Eitthvert uppáhaldslag á Öllu
heila klabbinu? „Nei, þetta er
nú allt rosalega gott, sko,“
segir Gunni og glottir. „Á-
kveðin lög hafa kannski elst
betur en önnur, til dæmis síð-
asta platan sem stendur næst
manni I tíma og er best unnin
tæknilega séð. Þó má
kannski nefna Engin ævintýri
af Goðinu, svona til að nefna
eitthvað." Það lag fjallar um
sjómennsku á ansi kómískan
hátt og því liggur beinast við
að spyrja Dr. Gunna hvort
hann hafi verið á sjó.
„Já, ég og Steini gítarleikari
fórum einu sinni á sjó, á trillu
og vorum á handfærum. Ég
var náttúrlega sjóveikur en
gat haldið í mér ælunni þang-
að til fyrsti þorskurinn kom á
færið. Sá fékk að finna fyrir
því. Sumir gætu haldið að ég
væri eitthvað á móti sjómönn-
um ef þeir heyra það lag, en
svo er ekki. Textinn er eigin-
lega útfærsla á kvikmyndinni
Skyttunum eða eittvað á þá
leið að sjómaður kemur í land
og verður að hafa æðislega
gaman, af því að hann er bú-
inn að hafa það svo leiðinlegt
lengi. Svo verður allt bara
áfram hundleiðinlegt þegar
hann kemur í land.“
ENSKIR TEXTAR
GERA SIG EKKI
Dr. Gunni hefur það orð á sér
að vera eins konar „neðan-
jarðargúrú“ hér á landi enda
hefur hann mikinn áhuga á
svokölluðum neðanjarðar-
rokksveitum, hvað svo sem
sú skilgreining segir okkur.
„Það er sú tónlist sem maður
er alinn upp við og það er
skemmtileg tómstundaiðja að
gera út á þennan markað.
Það hlýtur að vera aðeins
meiri vaxtarbroddur, innan
gæsalappa, þegar hljóm-
sveitir eru að gera eitthvað
nýtt, þó það sé nú frekar
erfitt."
Við höldum áfram að tala
' um frumleika/ekki frumleika í
rokki og hann vindur sér að
textunum. „Það er líka annað
í þessu að enskir textar eru
bara hálfgert prump og tónlist
sungin á máli innfæddra lifir
miklu lengur. Það er hægt að
taka dæmi af Trúbrot en þó
Lifun sé almennt talin meist-
araverk, sungin á ensku, þá
var hún ekki eins vinsæl og
fyrsta plata þeirra, sem var
sungin á íslensku. Það gerir
sig einhvern veginn ekki eins
vel að syngja á ensku og ís-
lensku.“
Árið 1991 gaf Dr. Gunni út
sjö tommu plötu í gamla vín-
yl-stílnum f Finnlandi og
gerði sú skífa, Eins og fólk er
flesk, það gott á óháðum vin-
sældalistum þar í landi. Og í
sumar og haust er meiri út-
gáfa í vændum, þrjár sjö
tommur verða gefnar út, ein í
Finnlandi og tvær í Banda-
ríkjunum.
„Þetta form, sjö tomman,
lifir mjög góðu lífi meðal neð-
anjarðarrokkara, er ódýrt og
mjög hentugt form til að
koma sér á framfæri. Fyrir-
NÝJAR HUÓMPLÖTUR NÝJAR HUÓMPLÖTUR
■
STJORNUGJOF
***** = FRÁBÆR/MEISTARAVERK
**** = MJÖG GÓÐ
S.H. DRAUMUR:
ALLTHEILA KLABBIÐ
ÓMÓTSTÆÐILEGUR
DRAUMUR
Á árunum 1982-1988 starfaði
f bláköldum raunveruleika ís-
lenskrar rokktónlistar hljóm-
sveitin S.H. Draumur og segja
má að sú sveit hafi verið
draumur rokkaðdáandans
sem vill hafa hlutina hráa,
hressandi og umfram allt
kraftmikla og öðruvísi. Gunnar
Hjálmarsson (bassi/söngur),
Birgir Baldursson (trommur)
og Steingrímur Birgisson
sköpuðu einhver eftirminnileg-
ustu rokkaugnablik þessa
tímabils með lögum á borð við
Helmút á mótorhjóli, Öxna-
dalsheiði og Grænir frostpinn-
r -h ' -
' r, ■ v
s»ry >
j:
. '\ J
tækið Bad Vugum í Finnlandi
gaf út smáskífuna í hittifyrra
og má segja að það fyrirtæki
sé besta rokkfyrirtæki í Evr-
ópu. Það ætlar að gefa út
aðra plötu sem ef til vill kem-
ur til með að heita Lifur. Önn-
ur platan, Fuzz & Sway,
verður gefin út hjá litlu fyrir-
tæki á landamærum Mexíkó
og Kalifornfu, fyrirtæki sem
nokkrir pípulagningamenn
eiga og reka. Svo verður
þriðja platan gefin út hjá fyrir-
tæki í Kaliforníu sem heitir
Hell Yeah. Þetta er allt mjög
hrá rokktónlist og allt upp í
fimm lög á plötu, stuttir rokk-
arar.“
Það sem eftir lifir árs mun
Gunni spila hér heima og á
Norðurlöndunum, með að-
stoð trommuheila og Ara
Eldon. „Ég er ekkert búinn að
bóka, það eru menn úti sem
gera það. Ég fer bara út og
læt hlutina ráðast.“ □
*** = GÓÐ
** = SÆMILEG
* = LÉLEG
mjög lifandi (Nótt eins og
þessi, af tónleikum í Casa-
blanca). Geggjaður húmor Dr.
Gunna í textunum („Guð gaf
okkur Hófí“: Bimbirimbirim-
bamm) blandaðist fullkomlega
við rokkið og Draumurinn var
ómótstæðilegur. Það er Allt
heila klabbið líka, punktur!
STJÖRNUGJÖF: ★★★★★
i.H. Draumur var hreint út
sagt frábær sveit. Allt heila
klabbiö rekur feril Draums-
ins frá 1982-1988.
ar, þó svo að stundum hafi
sveitin verið að leika hreina
popptónlist með brassi,
munnhörpu og sellói (á einu
breiðskífu sinni, Goð, sem er
ein besta afurð níunda ára-
tugarins).
Allt heila klabbið er ferill
S.H. Draums frá upphafi til
enda og í kaupbæti fá hlust-
endur þrjú aukalög, tekin upp
við ýmsar aðstæður og sum
c5-
<v>
Cö
oo
CD
P.M. DAWN: THE BUSSALBUM
MÝKT
Það er heldur mýkri áferð á
þeirri tónlist sem dúettinn
P.M. Dawn flytur á The Bliss
Album. P.M. Dawn er frá New
Jersey í Bandaríkjunum og
samanstendur af Prince B
(Atrell Cordes) og DJ Minute
Mix (Jarret Cordes). í hipp
hoppinu sínu, sem er hið
skemmtilegasta á köflum og
ansi melódískt, birta þeir vídd
f þeirri tónlist sem er kannski
ekki mjög áberandi. Þetta er
eins konar draumkennd út-
gáfa sem fer stundum yfir í
hreint popp, svo sem í lögun-
um Filthy Rich og Holding on,
en það er reyndar skrifað á
Prince B og bandarísku söng-
konuna Joni Micthell!
Sumir myndu afgreiða
þessa tónlist sem væmna en
hún hefur sætt og fallegt yfir-
borð á köflum, eins og ballað-
an To Love Me More sýnir.
Svo er þarna athyglisverð út-
gáfa á Norwegian Wood frá
Bítlunum, í hipp hopp stíl og
alls ekki sem verst en sjálf-
sagt myndu hörðustu bítlaað-
dáendur fá hressilegar melt-
ingartruflanir við að heyra
þessa útgáfu.
Fyrir þá sem vilja kynna sér
öðruvísi hipp hopp er The
Bliss Album kannski rétta
platan, danshæf, djassblönd-
uð, poppuð, hipp hoppuð en
umfram allt áheyrileg.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★
P.M.
Dawn:
Melódískt
hipp hopp.
13.TBL. 1993