Vikan - 01.07.1993, Blaðsíða 42
REYNSLUAKSTUR Á HRAÐBRAUTUM EVRÓPU
Um heim allan er þessa
dagana verið að
kynna nýjan eðalvagn
frá Ford verksmiðjunum.
Hann ber heitið MONDEO og
blaðamaður Vikunnar reynslu-
ók honum á hraðbrautum Evr-
ópu. Þetta er fyrsti bíll nýrrar
kynslóðar bíla frá Ford verk-
smiðjunum en hann á að vera
hægt að kalla alþjóðabíl, á
sem sagt að sameina allt það
besta sem finna má í bæði
amerískum og evrópskum bíl-
um. Það á við hvað varðar til
dæmis aksturseiginleika,
tækni, öryggi, þægindi og
glæsilega hönnun.
Mondeo er fyrsti bíllinn í
sínum verðflokki sem búinn er
öryggisloftpúða í stýri og sjálf-
virkum öryggisbeltastrekkjara
fyrir framsæti en slíkur búnað-
ur er í öllum bílum af þessari
gerð. Mondeo er einnig fyrsti
Ford bíllinn þar sem allar
gerðir með bensínvél eru
sextán ventla og einnig fyrsti
Fordinn þar sem boðið er upp
á stillanlegt höggdeyfakerfi
þannig að bíllinn getur haft
annaðhvort eiginleika lúxus-
bíls eða sportbíls, allt eftir þvi
hvers eigandinn óskar. Enn-
fremur má nefna nýjustu teg-
und hraðastillikerfis og loft-
kælikerfi með nýjustu gerðum
af loftsíum sem sjá um að
halda andrúmsloftinu í far-
þegarýminu eins hreinu og
mögulegt er.
Blaðamaður Vikunnar tók
við bílnum í Lúxemborg og ók
honum eins og leið liggur til
Parísar, þaðan suður í
Cognac-héraðið og aftur til
baka til Lúxemborgar í gegn-
um París. Þetta eru um eitt
þúsund og sex hundruð kíló-
metrar og fjórir daga voru
teknir í að fara leiðina þannig
að vel náðist að kynnast eig-
inleikum bílsins, jafnt kostum
sem göllum.
ELDSNEYTISGJÖFIN
AFTENGIST VIÐ
ÁREKSTUR
Yfirbyggingin er mjög nútíma-
leg, skemmtilega straumlínu-
leg jafnframt því að hafa
virðulegt yfirbragð. Hún ber
vott um vandaða smið þar
sem hvergi finnast misfellur
og frágangur er allur hinn
besti. Mikil vinna hefur einnig
verið lögð í að gera hana sem
best úr garði með tilliti til ör-
yggis farþeganna. Má sjá
ýmsa nýja tækni sem tengd
hefur verið henni eins og sér-
stakan búnað sem kemur í
veg fyrir að hurðirnar læsist
við hliðarárekstur. Einnig hef-
ur verið komið fyrir rofa sem
aftengir eldsneytisgjöfina við
árekstur.
Vel fer um farþega, hvort
heldur setið er fram- eða aft-
ursæti í bílnum. Ýmsir mögu-
leikar á stillingu framsætanna
auka enn á vellíðan þeirra
sem þar sitja. Má meðal ann-
ars nefna að hægt er að
hækka þau og lækka ásamt
því að velta þeim til þannig að
horn á milli bols og læra
breytist. Jafnframt eru hæðar-
stillingar á festingum öryggis-
beltanna. Þess má geta að
bíllinn er einnig búinn stillan-
legu stýri.
Skemmtileg hönnun stjórn-
búnaðar Ford Mondeo ásamt
mjög svo góðri staðsetningu
hans er eftirtektarverð. Það
síðarnefnda er eitt það sem
þarf að vera í lagi í hönnun
ökutækja, nú á tímum hraða
og mikilvægis viðbragðsflýtis.
Eru allir mikilvægir takkar á á-
berandi stöðum og tilgangur
þeirra skýr og augljós þannig
að ekki þarf að leita að þeim
þegar mest ríður á.
Við reynsluakstur Vikunnar
kom í Ijós að Ford Mondeo er
einstaklega lipur og þægilegur
i akstri innanbæjar. Hann hef-
ur eiginleika smábílsins, þó
vart geti hann fallið í þann
flokk, en jafnframt eiginleika
lúxusbílsins. Á hraðbrautun-
um kom hann verulega á ó-
vart og þá sérstaklega vegna
þess hversu vel hann lá á
veginum. Öryggistilfinning var
ráðandi allan tímann og skipti
þá ekki máli þótt hraðinn væri
orðinn vel á annað hundraðið.
Það verður ekki sagt um aðra
bíla ( svipuðum stærðar- og
verðflokki sem blaðamaður
hefur reynsluekið við sömu
aðstæður.
Þrátt fyrir að krafturinn í
þessum 1,8
lítra bíl sé
ekkert of-
skammtaður
þá skilaði
hann mjög
vel sínu og
ekki var
hægt að
kvarta þar
sem alltaf
virtist eitt-
hvað vera
eftir. Stýrið,
sem er
tannstang-
► Sófa-
settiö i
Mondeo.
Mikió er
einnig lagt ■
öryggis-
búnaó.
42 VIKAN 13.TBL. 1993