Vikan - 02.12.1993, Page 74
,|-!ilíinik'-ck'-l*iff!W*í;
/ ■y,/r
v05NU-ROMAN6*
!! N HIIAUMONTjJÍ
jusnrii
fremur kosið árgangana frá ‘83 og ‘85 sem
báðir voru frábærir. Engu að síður er þetta
góður kostur. Verð: 3610 kr.
Rjúpa:
CHATEAU CLERC MILOIN
GRAND CRU FAVILLAC 1988 (rauðvín)
Kannski aðeins of ungt ennþá en það er alltaf
hátíðlegt augnablik þegar tappinn er tekinn úr
flösku af víni af þessu tagi. Sannkallað jóla-
vín. Frá því að Baron Philippe de Rotschild
keypti þennan búgarð árið 1970 hefur vínið
farið stigbatnandi frá ári til árs og er nú farið
að ógna sjálfum kónginum, Chateau Mouton-
Rotschild, í flestu nema verðlagningu. Mouton
er, sem kunnugt er, frá 1973, eitt af fimm vín-
um í Medoc Grand Cru flokknum en hin eru
Chateau-Lafite Rotschild, Chateau-Latour,
Chateau-Margaux og Chateau-Haut-Brion.
Verð: 3390 kr.
Þau vín sem mælt hefur verið með að
drukkin séu með villbráðarréttunum eiga í
raun öll jafnvel við, hvort sem um er að ræða
rjúpu, hreindýr eða gæsabringur. Þau uppfylla
öll þær kröfur sem Halldór gerir til slíkra vína
en þetta er ávallt smekksatriði.
Kalkúnn:
FERIQUITA 1990
Þetta portúgalska rauðvín var fyrst framleitt
árið 1880 og hlaut sín fyrstu gullverðlaun á
vínsýningu í Berlín átta árum síðar. Nú fyrst,
að 95 árum liðnum, gefst okkur íslendingum
loksins kostur á að kaupa þetta afbragðsvín í
ÁTVR. Það er lagað úr Castelau Frances vín-
þrúgum og minnir sláandi á góðan búrgúndí.
Svæðið, sem vínið er frá, er í sendnum og
kalkríkum hlíðum sunnan við Lissabon. Per-
equita bragðast vel með öllu kjöti. Einnig má
mæla með því með fiski sé það blandað til
helminga með sódavatni. Góð kaup. Verð:
850 kr.
Annað rauðvín sem hentað gæti vel með
ofangreindum mat:
CHATEAU BELLES GRAVES 1988.
Verð: 1550 kr.
GALLO CABERNET SAUVIGINOrS 1986.
Verð: 1140 kr.
drekka með honum. í því sambandi má nefna
COTE DE RHONE til dæmis. Þá er gjarnan
hálft glas af rauðvíni fyllt upp með sódavatni.
Þið ættuð að prófa þetta með sniglum.
Hangikjötstartar:
VILLA ANTIINORI 1992
Þetta milda og ávaxtakennda hvítvín frá
Toscana á Ítalíu skilur eftir sig þægilegt eftir-
bragð og fellur vel að reyk- og melónubragð-
inu. Verð:910kr.
Ef soðið hangikjöt er haft sem aðalréttur
mælir Halldór með rauðvíninu CHATEAU DE
RIOISS, Special Reserve 1990. Það er dökkt
en þó fínlegt, leyfir reykbragðinu að njóta sín
og fylgir því meira að segja vel eftir. Þetta
stafar af því að vínið er lagerað á nýjum
eikartunnum en þær eru endurnýjaðar árlega.
Úr eikinni dregur vinið í sig þennan mjúka
keim sem minnir á reyk. Hið sama gerist
reyndar með koníak en þar er ferillinn miklu
lengri og flóknari. Verð: 1490 kr.
AÐALRÉTTUR
Úrbeinaöar gæsabringur:
CHATEAU TALBOT,
Grand Cru, Saint Julien 1983 (rauðvín)
Dökkt, kraftmikið cjæðavín. Vínið, sem nú
býðst í verslunum ATVR, er af árgangi ‘83 og
því er nú hárréttur tími til að drekka það og
verður það svo nokkur næstu árin. Vín af
þessu tagi þarf að minnsta kosti sjö til átta ár
til að brjóta sig og verða drykkjarhæft. Góð
kaup. Verð: 2440 kr.
Hreindýrasteik:
VOSNE-ROMANÉE BEAUMO 1987
Rautt búrgúndívín, Ijóst í glasinu en bragð-
mikið, með góðum eftirkeimi og fylgir vel eftir
bragðinu af villbráðinni. Vínið, sem okkur
býðst, er af árganginum 1987 en Halldór hefði
EFTIRRÉTTIR
Gott eftirréttavín að mati Halldórs Sigdórsson-
ar er til dæmis CHATEAU LAEAURIE
PEYRAGUEY 1990. Líkt og Medoc-vínin
voru Sauternes-vínin árið 1855 gæðaflokkuð.
Þar ber hæst Chateau Yquem en verðlagn-
ingin á þeim vökva er með ólíkindum. Það vín
sem við eigum hér aðgang að er að vísu ekki
jafnfrægt og þekkt en eigi að síður frábært.
Það er í „grand cru“ flokki og hæfir réttum á
borð við frómas við hátíðleg tækifæri. Það er
mjög sætt og er best vel kælt. Verð: 3980 kr.
Með jólabúðingnum gæti verið við hæfi að
drekka svolítið portvín, til dæmis ROYAL
OFORTO VINTAGE 1984. Þegar portvín
hefur verið einkennt með „vintage“ er búið að
gefa því ákveðinn gæðastimpil. Það er fram-
leitt úr bestu fáanlegum þrúgum, úr bestu vín-
görðunum og í bestu vínárunum, þegar skilyrð-
in eru ákjósanlegust. Vínið hefur verið geymt á
tunnum í minnst þrjú ár. Verð: 2080 kr. □
74 VIKAN 24. TBL. 1993