Vikan - 17.12.1998, Blaðsíða 34
. Jr JF w * '
' 'fir;
Að þessu sinni er hátíðarrétt-
ur uppskrift Vikunnar.
Dóróthea Einarsdóttir sendir
okkur uppskrift sína að ístertu
og við sendum henni konfekt-
kassa frá Nóa Síríus að laun-
um. Þetta er spennandi upp-
skrift og um að gera að prófa
hana fyrir jólin.
ísterta
5 eggjahvítur
2 dl strásykur og flórsykur
(blandað til helminga)
1/2 tsk. cream of tartar
súkkulaði eftir smekk (brytj-
að smátt saman við)
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar
með sykrinum og cream of
tartar blandað saman við.
Súkkulaði bætt í eftir smekk.
Bökunarpappír er breiddur á
ofnplötu og á hann eru
teiknaðir 2 hringir. Deiginu
eru sprautað á eða skipt í tvö
tertuform. Bakast við 100-125
gráðu hita í 35 mínútur. (Setj-
ið deigið inn í heitan ofninn)
5 eggjarauður
legg
70 g strásykur
100 g súkkulaði, brætt
1 dl Bailey's Irish cream
1 dós blandaðir ávextir
(stappaðir og síaðir)
1/2 lítri rjómi
Eggjarauður, egg og sykur er
þeytt saman. Brædda súkkulað-
inu, líkjörnum og stöppuðum
ávöxtunum bætt saman við.
Rjóminn er þeyttur og öllu
hrært varlega saman. Blandan
er sett ofan á botnana og fryst.
Skreytt með súkkulaði og
kirsuberjum áður en tertan er
borin frarn.
Hvernig vœri að gauka gómsœtri uppskrift að okkur á Vikunni og við sendum tveggja hœða
konfektkassa frá Nóa Síríus um hœl, sem þakklœtisvott fyrir þœr uppskriftir sem birtast.
Best væri efmynd af réttinum fylgdi með og nafnið á þeim sem á að fá glaðninginn.
Get égfengið uppskriftina? Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykjavík”.