Vikan - 27.07.1999, Blaðsíða 26
Texti: Hrund Hauksdóttir
Taktu áhættu!
Hversu margar sögur höfum við ekki heyrt af konum sem hafa aldrei gert neitt
spennandi, hafa aldrei orðið ástfangnar og ekki notið þess sem iífið hefur
upp á að bjóða? Örugglega alit of margar.
„Lífið er eitt spennandi æv-
intýri eða hreint ekki neitt,“
sagði Helen Keller eitt sinn
en þrátt fyrir að hafa verið
blind og heyrnarlaus frá 18
mánaða aldri útskrifaðist
hún úr háskóla með sæmd
og gaf út fjöldann allan af
bókum og þar á meðal ævi-
sögu sína.
IVladoiiiia er d:eini uin konn
sem er óhrædd við aft fara
ótroftnar slóftir oj> kærir sig
kollótfa nin alnienningsálit.
Hún lét drannia sína rætast
og lét livorki liágan Ijárhag
né slæina l'élagslega stftftn
aftra sér frá því sækja á
hrattann. I'aft hefur lieldur
lietur skilaft sér eins og
frægt er orftift.
Sumir lifa lífi sínu líkt og
það sé ævintýri út í gegn.
Við heyrum af svoleiðis
fólki í gegnum fjölmiðla,
fólki á borð við Richard
Branson, með blessaðan
loftbelginn sinn, og Díönu
prinsessu, sem í raun tók
mikla áhættu með því að
standa í ástarsambandi við
Dodi og berjast gegn jarð-
sprengjum. En sumir svífa
bara í gegnum lífið án
nokkurra átaka, halda sig
innan öryggismarkanna og
láta aðra um að taka áhætt-
ur og lifa á ystu nöf. Pað er
allt gott og blessað en við
stöndum stöðugt frammi
fyrir áhættu í okkar daglega
lífi, hvort sem okkur líkar
betur eða verr. Að fara yfir
götu er að taka áhættu. Að
verða ástfangin er áhætta.
Hjónabandið er áhætta, þú
tekur þá áhættu að það mis-
takist og þú verðir fyrir von-
brigðum eða þú tekur þá
áhættu að verða hamingju-
söm og fyrir suma er það
virkileg áhætta.
Ef þú situr aðgerðarlaus
heima og lætur tækifærin
renna þér úr greipum þá
verður líf þitt fyrirsjáanlegt
og leiðinlegt. Einhvern tím-
ann kernur að því að þú
verður gömul og bitur og
röflandi um það að þú hafir
aldrei sleppt fram af þér
beislinu og látið drauma
þína rætast. Með svona við-
horfum tekur þú nefnilega
þá áhættu að draumar þínir
rætist aldrei. Þú færð aldrei
frábæra draumastarfið, gef-
ur hæfileikum þínum aldrei
tækifæri til að njóta sín að
fullu og þú kannar aldrei
framandi lönd eða kynnist
nýju, áhugaverðu fólki.
Hvers vegna skyldir þú
taka áhættu?
Hugsaðu þér allar ástar-
sögurnar sem örva ímynd-
unaraflið, allt frá Ösku-
busku til kvikmyndarinnar
Pretty Woman. Þær fjalla
„Lifið er annað hvort eítt
spennandi ævintýri eða
hreint ekki neitt.“
allar um hetjuna sem lætur
slag standa og stekkur út í
óvissuna. Hún heldur af
stað í ákveðinni leit sem
gerir hana eldri, vitrari og
ánægðari með lífið.
„Að taka áhættu er talið
vera hollt,“ segir Corinne
Usher sem er klínískur sál-
fræðingur við Amersham-
spítala í Bandaríkjunum.
„Við tengjum slíka hegðun
við áhugavert fólk eins og
Madonnu og fleira frægt
fólk. Okkur finnst það sjar-
merandi og tengjum það við
þá spennu og eftirvæntingu
sem fylgir því að lifa á ystu
nöf. Ef þér leiðist þá eru
ástarsögur og kvikmyndir
ágætis flóttaleið því þú getur
sefað og huggað sjálfan þig
við þá hugmynd að þú getir
nú gert ýmislegt, þú getir
tekið stóra „sjensinn" og lát-
ið draumana rætast, ef þú
bara kærir þig um. En
stundum getur draumurinn
verið svo langsóttur að hann
er orðinn afsökun fyrir því
að aðhafast ekki neitt."
Hræðslan við hið
ókunna
Hver er helsta afsökunin
fyrir því að aðhafast ekkert
og lifa áfram einföldu og
hættulausu lífi? Það er ótti.
Við spyrnum oft á móti því
Qkkur finnst allt í lagi að Branson þjóti um loftin blá með
hetjustælum og Madonna sé eggjandi á sviði á brjóstahaldar-
anum, með róðukross dinglandi um hálsinn. En við erum ekki
eins og þau; við erum ekki heimsfrægir stóriaxar.
26 Vikan
Áttu |)ér leyndan draum uiii aft verða rilliöfundur en þorir
ekki aft neliia þaft vift nokkurn niaitn? Leyfftu liælileikuin
liíniini aft lilóuistra í staft þess aft láta tækifærin renna þér úr
jjreipiiin oj> liafftu staftfasta trú á sjálfri þér. Koindu skrifuin
þíniini á franifæri oj> láttu skeika skiipiiftu.