Vikan - 27.07.1999, Blaðsíða 17
saman áður en það
giftist en þau Sophie
og Játvarður fengu
að búa saman fyrir
brúðkaupið með samþykki
drottningarinnar. Sérfræð-
ingar í konungsfjölskyldunni
vilja meina að hrakfarir
hjónabanda eldri barnanna
og hræðilegur dauðdagi
Díönu hafi gert Elísabetu
mildari í kröfum sínum og
nútímalegri í hugsun.
Aðrir telja að ástæðan fyr-
ir því hversu þægileg drottn-
ingin hafi reynst Sophie sé
sú að Játvarður njóti þess að
vera yngstur af börnum El-
ísabetar. Hann hefur fengið
að njóta mun meira sjálf-
stæðis en eldri systkini hans.
A sínum tíma yfirgaf hann
herinn þegar hann vildi
frekar fá að sinna áhugamáli
sínu, að vinna við leikhús. I
dag rekur hann eigið fyrir-
tæki í leikhúsiðnaði og
starfar mikið með söng-
leikjahöfundinum fræga,
Andrew Lloyd Webber.
Brúðkaup þeirra Sophie
og Játvarðar þótti mjög lát-
laust á konunglegan mæli-
kvarða en mörgum sjón-
varpsáhorfendum þótti nóg
um þegar sýnt var frá brúð-
kaupinu í beinni útsendingu.
A gestalistanum voru 550
gestir sem eru töluvert færri
en gengur og gerist í konung-
legum brúðkaupum. Þar var
hvorki að finna stjórnmála-
menn né sendiherra. Þar var
einungis fólk sem hefur ein-
hver tengsl við brúðhjónin
og þeirra nánustu.
Brúðkaupsveislan þótti
líka óvenjuleg að því leyti
að þar var hlaðborð og því
þurftu allir gestirnir, líka
drottningin, að sækja sér
veitingar. Slíkt hefur ekki
tíðkast áður í konunglegum
brúðkaupum.
Á brúðkaupsdaginn fékk
Sophie nýtt eftirnafn þegar
drottningin ákvað að þau
hjónin fengju titilinn her-
togahjónin af Wessex og því
er nýja nafnið Sophie Helen
Windsor.
Sjálf hefur Sophie fengið
að heyra að hún líkist Díönu
prinsessu en svarar því
þannig að ekki sé hægt að
vera óánægður með að líkj-
ast henni; hins vegar séu þær
mjög ólíkar í eðli sínu.
„Díana hafði sinn persónu-
leika og ég hef minn,“ svar-
aði Sophie þegar hún var
spurð út í þetta.
Sophie hefur ekki þótt
vera mjög upptekin af útliti
sínu eða klæðnaði fram til
þessa sem tengdamömmu
þótti víst mikill kostur. Að
sögn Sophie þarf hún núna
að hugsa vel um útlit sitt og
getur ekki skroppið ómáluð
á gallabuxunum út í búð.
Slíkt hæfir ekki meðlimi
bresku konungsfjölskyld-
unnar.
Stuttu fyrir brúðkaupið
fékk Sophie sína eldskírn í
fjölmiðlum þegar breska
slúðurblaðið The Sun birti
mynd af henni þar hún sást
berbrjósta.
Vinkona hennar frá fyrri
tíð hafði selt blaðinu mynd-
ina dýrum dómum.
Sophie þótti duglega að
skemmta sér á árum áður
og eyddu öllum helgarfrí-
um í veisluhöld ásamt
vinum sínum.
Talsmaður kon-
ungsfjölskyldunn-
ar fordæmdi
myndbirtinguna og
daginn eftir birti
blaðið afsökunarbeiðni.
Skaðinn var skeður og
Sophie var gjörsamlega mið-
ur sín. Tilvonandi tengda-
fjölskylda hennar studdi vel
við bakið á henni á örlaga-
stundu. Viðbrögð almenn-
ings vegna birtingarinnar
komu henni verulega á
óvart því inn um bréfalúg-
una streymdu samúðarbréf,
síminn hringdi stanslaust og
fjöldi manna var tilbúinn að
hughreysta hana.
Á brúðkaupsdaginn var
Sophie búin að jafna sig að
fullu og mætti í St. Georgs
kapelluna í hvítum og falleg-
um brúðarkjól, tilbúin að
giftast prinsinum sínum.
Tíminn verður að leiða í
ljós hvort hjónabandið sé
byggt á nægilega traustum
grunni og hvort Sophie þoli
pressuna sem fylgir því að
vera tengdadóttir Elísabetar
Bretadrottingar.
Vikan 17