Vikan - 21.12.1999, Blaðsíða 4
iW^iiCðdiiuiM ■
Svona eruf
'ólin
~JTi er jólahátíðin íþann mund að ganga í
/ / garð með tilheyrandi hátíðarbrag.
JL T Margir eru búnir að vinna hörðum
höndum að undirbúningi jólanna og hinna marg-
umtöluðu aldamóta, sem beðið hefur verið í of-
vœni. Eins og ávallt hefur verið mikil umræða
um streitu og kvíða sem hrjáir margtfólk í
desembermánuði. Nú er svo komið að
ýmsir sérfrœðingar bjóða upp á námskeið í
þeim tilgangi að gera „jólakvíðann" léttbœrari,
það rignir yfir okkur einföldum uppskriftum til
þess að húsmœður brenni nú ekki útfyrir Þorláks-
messu ogfólk er hvatt til að gera jólainnkaupin
snemma til þess að létta á álaginu mikla sem mynd-
ast hjá mörgum íþessum mánuði. Er ástœða til
þess að láta svona?
Eg held ekki. Jólin eru árviss viðburður og við get-
um gengið að þeim vísum, nema efvera skyldi að
raunverulegur heimsendir vœri í nánd. Við vitum
það affenginni reynslu að jólunum fylgir ákveðið
álag og það skiptir litlu sem engu þótt við œtlum að
kaupa fœrri gjafir eða jólakort í ár, vera búin að
kaupa gjafirnar í ágúst og þarfram eftir götum.
Jólunum fylgir alltaf ákveðið álag. Við breytum því
ekki frekar en gangi himintunglanna. Því er ekki úr
vegi að taka því sem fyrirfram gefinni staðreynd og
vinna með álaginu í stað þess að berjast á móti því.
Þegar kemur að hápunktinum, aðfangadagskvöldi,
þá erum við jú alltaf hamingjusöm og rjóð í kinn-
um þegar við setjumst niður við hátíðarkvöldverð-
inn og börnin okkar iða í skinninu af eftirvœntingu
og koma varla niður bita af jólasteikinni. Svona
eru nefnilega jólin. Og verða alltaf.
Jólablað Vikunnar í ár er hátíðlegt að vanda og
sjálf Grýla gefur tóninn í stuttu einkaviðtali. Við
kíkjum í aldamótaspegilinn og rifjum upp eftir-
minnilegar uppgötvanir frá öldinni sem er að líða
og erum með umfjöllun um sígild jólamyndbönd.
Akaflega hugljúf jólalífsreynslusaga mun eflaust
snerta strengi í hjörtum margra og jólakynlífið
auka á hjartsláttinn! Við erum með áhugavert við-
tal við unga lögreglukonu sem lœtur sér annt um
œskuna okkar og bjóðum upp á glœsilegar matar-
uppskriftir sem tilvalið er að prófa um jólin, svo
fátt eitt sé talið.
Starfsfólk Vikunnar óskar landsmönnum öllum
gleðilegra ogfriðsœlla jóla,
Hrund Hauksdóttir
Jóhanna Steingerður Margrét V. Ingunn B. Anna B. Guðmundur
Harðardóttir Steinars- Helgadóttir Sigurjóns- Þorsteins- Ragnar
ritstjóri dóttir blaðamaður dóttir dóttir Steingrímsson
blaðamaður
auglýsinga- auglýsinga- Grafískur
stjóri stióri hönnuður
Ritstjórar Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund
Hauksdóttir vikan@frodi.is Útgefandi Fróði
Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599
Stjórnar-formaður Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515
5515 Framkvæmdastjóri Halldóra Viktorsdóttir
Sími: 515 5512 Blaðamenn: Steingerður
Steinarsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar Anna B. Þorsteinsdóttir og
Ingunn B. Sigurjónsdóttir Vikanaugl@frodi.is
Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar
Steingrímsson Verð í lausasölu 459 kr. Verð í
áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. pr
eintak . Ef greitt er með gíróseðli 389 kr pr.
eintak. Litgreining og myndvinnsla Fróði Unnið í
Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin
varðandi efni og myndir
Áskriftarsími:
515 5555