Vikan - 21.12.1999, Blaðsíða 36
Ofnsteiktur Kalkúnn
með Grand Nlarnier sósu
Setjið allt í blandara nema
epli og appelsínur og hrærið
saman í 1-2 mínútur. Epli og
appelsínur eru afhýdd, skor-
in í litla bita og blandað var-
lega út í.
Léttsteikið blaðlauk og
vínber. Setjið allt nema app-
elsínuna útí og þykkið með
maizena sósujafnara þegar
sýður, kryddið eftir smekk
og bætið appelsínum út í.
4-6 kg. Kalkúnn
Kalkúnn þarf að vera
ófrosinn þegar matreiðsla
hefst, annars er hætta á að
hann bakist ekki fullkom-
lega. Gott er að krydda með
salti, pipar og season all eða
einhverju öðru góðu kjöt-
kryddi. Athugið hvort inn-
matur er í fuglinum og fjar-
lægið ef hann er til staðar og
setjið fyllinguna í. Setjið
kalkúninn í 180 gráðu heitan
ofn og bakið í 20-25 mínútur
og lækkið niður í 140 gráður.
Gott er að hækka hitann aft-
ur í lok eldamennsku í 200
gráður síðustu 15-20 mínút-
urnar. Eldunartími er 3-4
klst. Gott er að nota einnota
kjötmæli sem stungið er í
fuglinn, þegar réttum hita er
náð skýst pinni út úr mælin-
um og kalkúnninn er tiibú-
inn. Leitið upplýsinga um
kjötmæla hjá þeim sem þið
kaupið kalkúninn af. Fylgist
reglulega með framvindu
eldunar og penslið kalkún-
inn eftir 20-30 mínútna eld-
un og síðan reglulega eftir
það. Þegar eldun er u.þ.b.
hálfnuð er gott að hella ör-
litlu vatni í ofnskúffuna og
nota sem soð í sósu. Athug-
ið að rétt stilling sé á ofnin-
um, best er að hafa blástur
á, ef hann er ekki til staðar
skal nota bæði undir og yfir-
hita.
Fylling
250 g grísahakk eða
annað hakk eftir smekk
2 epli
1 appelsína
1/2 laukur
5 sneiðar samlokubrauð
2 egg
1 dl rjómi
1 tsk. kjötkraftur
1 tsk. grœnmetiskraftur
örlítill pipar
Grand Marniersósa
3-4 appelsínur
1/4 bolli blaðlaukur
1 bolli vínber eftir eigin
vali (helst steinalaus)
250 ml appelsínusafi
100 ml vatn má sleppa ef
soð er 250 ml eða 2,5 dl)
250mlsoð
9 cl Grand Marnier líkjör
2-3 msk. sykur
Annað: Ljós sósujafnari,
soð afkalkún, grænmetis-
og kjötkraftur.
Skerið börk utan af appel-
sínum, skerið appelsínur í
litla bita og fjarlægið steina.
Notið börk af 1/2 appel-
sínu og skerið langsum í
þunnar ræmur. Skerið þvert
á blaðlauk í þunnar sneiðar.
Skerið vínberin í tvennt og
fjarlægið steina, ef vínberin
eru steinalaus má nota þau
heil.
Einnig gæti verið gott að
hafa aðra sósu sem er þekkt
á heimilinu með, þannig að
hægt sé að koma til móts við
sem flesta á heimilinu.
R ] ú p u r
2-3 hamflettar rjúpur
á mann.
Steikið rjúpu á pönnu upp
úr smjöri og kryddið með
salti og pipar. Færið rjúpuna
annað hvort í steikingapott
eða í venjulegan pott. Sjóðið
safa upp af pönnu með
hvítvíni eða vatni.
Eftir forsteikingu er rjúpa
sett í steikingarpott og elduð
í 45-60 mínútur við 200
gráðu hita.
36 Vikan