Vikan - 21.12.1999, Blaðsíða 17
Þuríður Lilja Valtýsdóttir 4 ára
Hveráafmæli á jólunum?
„Ég fæddist 5. desember, þá eru
bráðum komin jól."
Á ekki Jesús líka afmæli á jólun-
um?
„Jú, Jesús sem er á himninum."
Manstu hvað mamma hans og
pabbi heita?
„Ég man ekki hvað mamma
hans heitir en ég held að pabbi
hans heiti Guð"
Hvað gerum við ájólunum?
„Við hengjum upp fallegt jóla-
skraut, setjum upp jólatré og gef-
um gjafir. Einu sinni átti ég 15 pen-
inga en núna á ég bara 9 eftir."
Hvernig jólapakka langar þig
mest að fá?
„Ég vil fá mjúka pakka. Mig
langar mest að fá kjói frá ömmu,
Pláar sokkabuxur frá afa og bláa
rúllukragapeysu frá mömmu."
Hefur þú hjálpað mömmu að
baka fyrirjólin?
„Já, þá bakaði ég piparkökur
með henni. Mér finnst gaman að
baka piparpökur."
Hefur pú fengið kartöflu í skó-
inn?
„Nohj, aldrei. Maður verður samt
að haga sér vel annars fær maður
kartöflu í skóinn."
Finnst þér fallegt að hafa snjó á
jólunum?
„Já, mig langar að hafa fullt af
snjó, maður má nefnilega bara
renna sér á sleða ef það er snjór
annars verður sleðinn ónýtur."
Hvað ætlar þú að gefa mömmu
og pabba í jólagjöf?
„Gulan spotta."
Þórunn Jörgensen 4 ára
Pétur Þór Karlsson 5 ára
Þuríður Lilja lfaltýsdóttir 4 ára