Vikan - 21.12.1999, Blaðsíða 14
Texti og myndir: Kristján Már Hauksson
Flogið í fang jólasveinsins
Fyrr í desember fóru 400 langveik, munaðarlaus og/eða dauðvona
börn í ferð lífs síns í risabotu Atlanta til að hitta „aluöru" jólasvein,
bann eina sanna í Lapplandi.
Sá sem stendur fyr-
ir þessu heitir Con
Murphie og er
hann í forsvari fyr-
ir „Children to
Lappland Appeal.“ Hann
hafði sín fyrstu kynni af
langveikum börnum þegar
systursonur hans fékk
krabbamein í nýru. Innblás-
inn af þeim styrk sem veik
börn búa yfir ákvað hann að
reyna að gera þeim lífið létt-
ara. Árið 1992 fór hann
fyrstu ferðina með nokkra
tugi af börnum til jólasveins-
ins í Lapplandi. Boeing 747
þota íslenska flugfélagsins
Atlanta er fyrsta risaþotan
sem lendir á flugvellinum í
Rovanhiemi í Lapplandi svo
fjölgunin á þessum litlu gest-
um jólasveinsins er gífurleg.
Lagt af stað
Ferðin hófst klukkan 4.30
á því að blaðamaður var
vakinn og sóttur, ásamt
áhöfn flugvélarinnar, á hótel
í miðbæ Dublinar. Strax og
komið var út á völlinn hófst
undirbúningur á vélinni.
Starfsfólk Atlanta, sem
greinilega er starfi sínu vax-
ið, fór hamförum og skreytti
vélina með klassísku ís-
lensku jólaskrauti. Klukkan
7.30 var síðan byrjað að taka
á móti börnunum sem voru
á leiðinni til Finnlands að
hitta jólasveininn, þann eina
og sanna sem býr í Jóla-
sveinalandinu og er nú líka
orðinn jólasveinn írskra
barna. Börnin sem fóru í
ferðina til jólasveinsins eru
frá ýmsum spítölum og
stofnunum vítt og breitt um
írland og mörg þeirra eru
við dauðans dyr. Sum komu
í fylgd lækna og hjúkrunar-
fólks, sem fylgdu þeim hvert
fótspor. Mörg þessara barna
eiga aðeins nokkra mánuði
eftir ólifaða.
Allt gleymt
En þennan dag voru öll
veikindi gleymd og hjartað
sló í takt við jólalögin sem
hljómuðu í hátalarakerfi há-
tíðlega skreyttrar risaþot-
unnar. Þótt flugið sé farið í
samvinnu við ýmis félög og
góðgerðarstofnanir má að
mestu þakka Con Murhpie
og útvarpsstöðinni FM 98 í
Dublin þessa framkvæmd,
en þessir aðilar hafa safnað
áheitum og styrkjum til að
gera ferðina mögulega sjö-
unda árið í röð. Það er mik-
ið fyrirtæki að flytja 400
börn milli landa og skipulag-
ið verður að vera óaðfinnan-
legt, sérstaklega í ljósi þess
að mörg barnanna eru mjög
mikið veik.
Það var greinilegt að
börnin voru mjög spennt,
það sást í augunum og
heyrðist á röddinni.
Rætt við börnin
Stacy Ogrady, sem er tæp-
lega 5 ára gömul hnáta, átti
engin orð yfir því að vera á
leiðinni að hitta „alvöru“
jólasvein, þennan eina
sanna, og andlitið á henni
ljómaði eins og sólin þegar
ég brá fyrir mig „ástkæra, yl-
hlýra“ og sagði að tungumál
jólasveinsins væri ekkert
ósvipað.
Shane Ward, 11 ára strák-
ur, sagðist ekkert trúa á jóla-
sveininn, en ef þessi væri
með skegg og væri góður þá
myndi sú skoðun breytast og
sú varð raunin. Hann var
eitt sælubros á heimleiðinni.
Hvernig lendir maður
jumboþotu á jóla-
sveinaflugvelliP
Þegar á staðinn var komið
eftir 3 tíma flug og dyrnar
opnuðust biðu eftir okkur
rútur. Úti var rúmlega 20
stiga frost. Bara það að
horfa yfir vetrarríki Lapp-
lands var ævintýri líkast, fal-
legur jafnfallinn snjór lá yfir
öllu og þar mátti sjá Sama,
hreindýr og allskyns furðu-
verur og dýr. Þetta var mót-
tökunefndin og til að auka á
ævintýrablæinn þá breyttist
andardráttur minn við út-
öndun í silfurlitaða kristalla
sem að svifu á braut í kuld-
anum.
Nú voru börnin kölluð
hvert út í sína rútu og brátt
héldu þær á brott fullar af
ungu fólki. Fyrst var börn-
unum boðið í hreindýra-
14 Vikan