Vikan - 21.12.1999, Blaðsíða 24
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Myndir: Sigurjón Ragnar
Tískuheimurinn á netinu
internetið hefur opn-
að mönnum nýjar
víddir í verslunar-
háttum. í gegnum
netið er meðal ann-
ars hægt að kaupa
flugmiða, bækur og
fatnað. Fyrir skömmu
opnaði ung íslensk
kona fyrstu íslensku
tískuverslunina á
Internetinu, tiska.is.
Það harf kiark, hor
og bekkingu til að
leggja út í slíkt ævin-
týri og Eva Dögg Sig-
urgeírsdottir er ein
heirra sem hefur allt
sem til harf.
Hugmyndin að
versluninni
kviknaði fyr-
ir löngu síð-
an en undir-
búningurinn hófst þó ekki
fyrr en dóttir Evu fæddist í
febrúar síðastliðnum. Þegar
Eva Dögg var komin í barn-
eignafrí gat hún fyrst gefið
sér tíma til að skipuleggja
draumaverslunina.
Verslunarstjórinn er ekki
ókunnur heimi tískunnar.
Hún starfaði í tískuverslun
samhliða menntaskólanámi
og þegar kom að því að
auka við menntunina valdi
hún sérhæft viðskiptafræði-
nám sem einblíndi á rekstur
tískuverslana. Skólann fann
hún í Kaliforníu og þar
kynntist hún líka töfrum
Internetsins.
„Maðurinn minn byrjaði í
markaðsfræðinámi og ég
kom út til hans hálfu ári síð-
ar. Ég hóf nám í ljósmyndun
en slíkt nám er ekki mjög
hagnýtt. Ég datt niður á
skóla sem kenndi sérhæfða
viðskiptafræði, námið kall-
ast „fashion merchandis-
ing". Þetta var mjög mark-
visst og hagnýtt nám sem
hefur komið sér vel. Á
meðan við vorum úti feng-
um við okkur nettengingu,
enda netið að ryðja sér til
rúms á þessum slóðum. Við
vorum með tölvupóst og
spurðum gjarnan vini og
ættingja hérna heima hvort
þeir væru með slíkt. Oftast
var nú bara hlegið að okkur,
við áttum einn vin sem var
með tölvupóst og það þótti
hið mesta tækniundur að við
gætum sent póst á milli
landa með þessum hætti.
Foreldrar okkar gáfu okkur
faxtæki til að auðvelda sam-
skiptin."
Lærði margt í Hagkaup
Var unga parið ekki
spennt fyrir því að prófa að
starfa ytra?
„Jú, jú. Við gátum bæði
hugsað okkur að vera áfram
úti að útskrift lokinni en við
fengum góð atvinnutilboð
hérna heima svo að við
fluttum heim í ársbyrjun
1996. Ég fór að starfa fyrir
Hagkaup,varinnkaupa-
stjóri í ungbarnafatnaði til
að byrja með og síðar var ég
með allan barnafatnaðinn.
Ég lærði mikið í starfi
mínu hjá Hagkaup. Þetta
var besta reynsla sem ég gat
Vikan